Sögulegar kosningar í Bretlandi

Bretar ganga til þing­kosn­inga í dag. Kjör­staðir verða opnir til klukkan tíu í kvöld að stað­ar­tíma. Íhalds­flokknum hefur gengið illa að bæta við sig fylgi á þeim sex vikum sem liðið hafa frá því að Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, boð­aði til snemm­bú­inna kosn­inga. Verka­manna­flokk­ur­inn nýtur góðs af óvin­sældum Íhalds­flokks­ins og er spáð sögu­legum sigri í nótt.

Sögulegar kosningar í Bretlandi
Óvinsæll en sig­ur­strang­legur Keir Starmer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, er tal­inn afar lík­legur til þess að taka við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu þegar nið­ur­stöður þing­kosn­ing­anna liggja fyrir í fyrra­málið. Starmer þykir lítt vin­sæll meðal bresku þjóð­ar­innar en flokk­ur­inn gæti engu að síður tryggt sér um 70 pró­sent þing­sæta á breska þing­inu. Mynd: /AFP

Þing­kosn­ingar í Bret­landi hófust í dag. Kjör­staðir um allt land opn­uðu klukkan sjö í morgun að stað­ar­tíma en þeim verður í lokað í kvöld klukkan tíu að stað­ar­tíma. Verka­manna­flokk­inum er spáð stór­sigri í kvöld. Samkvæmt kosn­inga­spá YouGov er flokknum spáð 39 pró­sent greiddra atkvæða sem myndi skila flokknum 431 sætum á breska þing­inu af þeim 650 sem kosið er um.  

Gangi sú spá eftir væri það stærsti sigur í Verka­manna­flokks­ins frá því hann var stofn­aður árið 1900. Sigurinn myndi slá met sem hefur staðið síðan flokk­ur­inn vann glæstan sigur árið 1997 undir leið­sögn Tony Blair. Í þeim kosn­ingum tryggði Verka­manna­flokk­ur­inn sér 418 þing­sæti. 

Uppfært klukkan 21:41: Samkvæmt útgöngu­spám sem gefnar voru út þegar kjör­stöðum lok­aði klukkan 21 að íslenskum tíma er Verka­manna­flokknum spáð 410 sætum og Íhalds­flokknum 131 sæti. 

Keir Starmer, sem að öllum lík­indum verður næsti for­sæt­is­ráð­herra Brelt­ands, þakkar kjós­endum fyrir traustið: 

Verkamannflokkurinn græðir á óvinsældum Íhaldsflokksins

Sir John Curtice, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við háskól­ann í Strathclyde, fer fyrir teymi sem kemur útbýr útgöngu­spá kosn­ing­anna, í frétt á vef BBC segir hann að svo gæti farið að til­kynnt verði um sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna tvöleytið eftir mið­nætti ef fyrstu nið­ur­stöður reyn­ast afger­andi. Loka­nið­ur­stöður munu þó að öllum lík­indum liggja fyrir snemma í fyrra­málið klukkan sjö á stað­ar­tíma á morgun. 

Sir John Curtice hefur verið fasta­gestur í kosn­inga­sjón­varpi breska rík­is­út­varps­ins BBC frá árinu 1979. Segja má að Sir John Curtice gegni svip­uðu hlut­verki og Ólafur Þ. Harð­ar­son hefur sinnt hér á landi, hann hefur ásamt Boga Ágústs­syni sem hefur greint tölur og lesið í spilin í kosn­inga­sjón­varpi RÚV frá árinu 1986.  

Blaða­maður RÚV tal­aði nýverið við Sir John Curtice sem sagði að þrátt fyrir óvin­sældir leið­toga Verka­manna­flokks­ins, Keir Starmer, gæti flokk­ur­inn fengið allt að 70 pró­sent þing­sæta. Flokk­ur­inn og leið­togi þess njóti góðs af óvin­sældum Íhalds­flokks­ins og mis­tökum sem þeir hafa gert að und­an­förnu.   

Þingmenn Íhaldsflokksins undirbúa sig fyrir erfiða nótt

Sex vikur eru liðnar síðan að Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og for­maður Íhalds­flokks­ins, boð­aði til snemm­búna kosn­inga. Sunak til­kynnti bresku þjóð­inni um ákvörðun sína í ræðu sem hann hélt fyrir framan skrif­stofu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins á Downing stræti 10. 

Á meðan for­sæt­is­ráð­herr­ann greindi löndum sínum frá ákvörðun sinni brast á úrhellis regn sem bif­aði þó ekki Sunak sem hélt ræðu sinni áfram þrátt fyrir að vera orð­inn gegn­blautur. Þótti sumum upp­á­koman vera lýsandi fyrir stöðu Íhalds­flokks­ins sem spáð er að muni tapa meira 250 þing­sætum í nótt. Gangi spárnar eftir fengi flokk­ur­inn um sæti á þing­inu sem eru ögn fleiri sæti en Frjáls­lynda demókra­ta­flokknum er spáð.   

Nigel Farage, leið­togi Umbóta­flokks­ins

Þrátt fyrir að Umbóta­flokkur Nigels Farage er spáð þriðja mesta stuðn­ingnum í spá YouGov. Er honum spáð aðeins um þremur þing­sætum. Ástæðan fyrir þessu er sú sama og liggur að baki spáðum stór­sigri Verka­manna­flokks­ins. Í Bret­landi eru ein­menn­ings­kjör­dæmi sem veldur því að fylgi flokka á lands­vísu spáir tak­markað fyrir um end­an­lega þing­sæta­skipan.

Setið á valdastóli í 14 ár

Breski Íhalds­flokk­ur­inn hefur setið í rík­is­stjórn í fjórtán ár. Á þessum árum hafa fimm gegnt emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, fjórar þing­kosn­ingar hafa verið haldnar og tvær þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur. Á und­an­förnum árum hefur fylgi flokks­ins dreg­ist saman, en sú þróun á veru­legt skrið á tímum kór­ónu­veru­far­ald­urs­ins. Fylgis­tapið er rakið til ýmissa hneyksl­is­mála og óvin­sælla ákvarð­ana sem teknar voru af rík­is­stjórn Boris Johnson. 

Fylgi flokks­ins hélt áfram að skreppa saman eftir að Johnson sagði af sér og tók skarpa dýfu á þeim stutta en um leið storma­saman tíma þegar Liz Truss gegndi emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Eftir aðeins 49 daga í emb­ætti sagði Truss af sér. Flokknum hefur ekki tek­ist að ná sér aftur á strik síðan.     

Á vef breska fjöl­mið­ils­ins The Guardian er birt sam­an­tekt yfir frétta­flutn­ing helstu dag­blaða í Bret­landi. Flest blöðin spá afger­andi sigri Verka­manna­flokks­ins. Athygli vekur að frétta­miðlar á borð við The Sun og The Times, blöð sem eru í eigu fjöl­miðla­sam­steypu auð­manns­ins Ruperts Murdoch virð­ast fagna yfir­vof­andi stjórn­ar­skiptum.

En blöðin, sem og aðrir fjöl­miðlar í eigu Murdoch, eru þekkt fyrir að hafa hampa íhalds­sömum stjórn­mála­skoð­unum og gjarnan farið hörðum orðum um Verka­manna­flokk­inn í frétta­flutn­ingi sínum.  

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár