Brottvísun Yazan og fjölskyldu frestað – „Þetta gefur þeim smá von“

Yazan Aburajab Tamimi og fjöl­skyldu verður ekki vísað úr landi í júlí eins og til stóð. Umsókn verður end­ur­send til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Lögmaður Yazans telur að ákveðnar máls­á­stæður hafi ekki verið kann­aðar eða rann­sak­aðar rétt.

Brottvísun Yazan og fjölskyldu frestað – „Þetta gefur þeim smá von“
Yazan Aburajab Tamimi Hinn ell­efu ára gamli Yaz­an greind­ist með Duchenne , sjald­gæfan vöðva­hrörn­un­ar­sjúk­dóm, þegar hann var tveggja ára gam­all. Til stóð að vísa honum og for­eldrum hans úr landi en brott­vís­un­inni hefur nú verið frestað. Fram að versl­un­ar­manna­helgi. Mynd: Golli

Fyr­ir­hug­aðri brott­vísun Yazans Aburajab Tamimis og for­eldra hans, Mohsen og Ferial, hefur verið frestað um fjórar vikur. Þetta stað­festir Albert Björn Lúð­vígs­son, lög­maður Yazans, í sam­tali við Heim­ild­ina. Vísir greindi fyrst frá. 

„Þetta gefur þeim smá von,“ segir Albert, sem mun í dag senda inn end­ur­tekna umsókn til kæru­nefndar útlend­inga­mála sem byggir á nýjum máls­á­stæðum. Hann segir málið þess eðlis að ekki sé hægt að skilja það við sig. „Meðan ennþá er mögu­leiki þá reynir maður áfram.“ 

Albert telur að ákveðnar máls­á­stæður hafi ekki verið kann­aðar eða rann­sak­aðar rétt. Rétt­inda­gæslu­maður fatl­aðra er með mál hans til skoð­unar og hefur bent á að Yazan átti, sam­kvæmt vinnu­reglum og samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðra, rétt á því að rétt­inda­gæslu­maður yrði skip­aður í hans máli og að ákveðið mat færi fram á fötlun hans, sem hefur ekki verið gert. „Ég tel að þetta og fleiri atriði gætu verið þess vald­andi að málið verði skoðað að nýju,“ segir Albert. 

Fjöl­skyldan kom hingað í leit að hæli í fyrra. Yazan, sem er frá Palest­ínu, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn duchenne og hafa læknar vottað fyrir það að hann muni hljóta skaða af ef hann fær ekki við­eig­andi lækn­is­með­ferð. 

Kæru­nefnd útlend­inga­mála hafn­aði beiðni fjöl­skyld­unnar um end­ur­upp­töku hæl­is­um­sóknar þeirra um miðjan júní og til stóð að vísa þeim aftur til Spánar, hvar fjöl­skyldan er ekki með hæli, yfir í byrjun júlí. Fjöl­skyldan fékk vega­bréfs­á­ritun á Spáni og komst kæru­nefnd útlend­inga­mál að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­skyldan skyldi fara aftur til Spánar á grund­velli dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, jafn­vel þó að þar séu þau ekki með stöðu flótta­manns eða hæl­is­leit­enda og eigi því sem stendur ekki rétt á að fá þar við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Yazan. Kæru­nefndin sagði, rang­lega miðað við nokkur lækn­is­vott­orð sem Heim­ildin hefur fengið að sjá, að Yazan hefði „ekki verið undir neinu sér­stöku eft­ir­liti eða í með­ferð vegna [sjúk­dóms­ins] hér á landi.“

Duchenne sam­tökin, ÖBÍ, Einstök börn, Þroska­hjálp, sam­tökin Réttur barna á flótta og Ung­menna­ráð Unicef hafa öll sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem brott­vís­un­inni er mót­mælt og þá voru sál­fræð­ingur, kenn­arar og þroska­þjálfi sem þekkja til Yazans á meðal þeirra sjö sem skrif­uðu undir mót­mæla­yf­ir­lýs­ingu sem þau sendu Heim­ild­inni. Undir hana skrifa einnig vinir Yazans hér á Íslandi. 

Yazan og fjöl­skylda hans sögðu ítar­lega frá aðstæðum sínum í við­tali við Heim­ild­ina fyrir rúmum mán­uði. Þá sagði Yazan að hann hefði verið boð­inn vel­kom­inn í Hamra­skóla frá fyrsta degi og að þar liði honum vel. 

„Þið hljótið að hafa farið með mig til himna­ríkis,“ sagði Yazan við for­eldra sína. Nú fær hann að vera á Íslandi í að minnsta kosti fjórar vikur í við­bót, fram að versl­un­ar­manna­helgi.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hanna Þorgrímsdóttir skrifaði
    Það á að segja já eða nei strax!! Þau eru búin að vera hérna í ár, svo á að fara með þau úr landi, svo er því "frestað" !!! Þetta er klikkun og ekkert annað. Ekki skrítið að.sumir verði hálf klikkaðir stundum, hvernig haldið þið að þetta fari með fólk öll.þessi bið og meiga heldur ekkert gera til þess að bjarga sér. En ráðamenn vita að ef þeir leyfa fólki að malla svona á ríkinu þá verða íslendingar brjálaðir á því að allir séu nú á spenanum.... hverjum er það að kenna????
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Á ekkert að hjálpa þessu vesalings barni og foreldrum þess? Hafið skömm fyrir!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár