Enn ein stólaskipti ráðherra ekki lausnin

Enn ein stóla­skipti ráð­herra koma ekki til greina til að leysa enn einn vanda rík­is­stjórn­ar­innar að mati þing­manns Við­reisnar, sem hyggst styðja van­traust­s­til­lögu á mat­væla­ráð­herra.

Enn ein stólaskipti ráðherra ekki lausnin
Van­traust ekki leyst með stóla­skiptum „Vandi þess­arar rík­is­stjórnar er miklu djúp­stæð­ari en svo að hann verði leystur með því einu að skipta ráð­herrum milli ráð­herra­stóla,“ segir Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Van­traust­s­til­laga sem Mið­flokk­ur­inn hefur lagt fram á hendur Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra er djúp­stæð­ari en afstaða þing­manna til hval­veiða að mati Sigmars Guð­munds­sonar, þing­manns Við­reisnar. 

„Þetta snýst að sjálf­sögðu bæði um stjórn­sýslu ráð­herr­ans, algjör­lega óháð því hvaða skoðun maður kann að hafa á til­tek­inni atvinnu­starf­semi þá finnst manni það eðli­leg og sjálf­sögð krafa í stjórn­sýsl­unni að þau fyr­ir­tæki sem á annað borð mega starfa hér á Íslandi að þau búi við ein­hvern fyr­ir­sjá­an­leika í stjórn­sýsl­unni, algjör­lega óháð skoð­unum manns sjálfs,“ sagði Sigmar þegar hann kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þings­ins í upp­hafi þing­fundar í dag. 

Sigmar sagði vand­ræða­gang hafa ein­kennt störf rík­is­stjórn­ar­innar og rík­is­stjórn­ar­flokk­anna allt kjör­tíma­bilið. Algjört meiri­hlutaræði ríki á Alþingi og sagði hann það ekki ganga upp að ein­staka þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar séu settir í þá stöðu að eiga að verja ráð­herra rík­is­stjórnar falli. „Rík­is­stjórnar sem teygir sig ekki til stjórn­ar­and­stöð­unnar í sam­komu­lags­átt í nokkru ein­asta máli.“ 

„Vandi þessarar ríkisstjórnar eru miklu djúpstæðari“

Van­traust­s­til­laga á Bjarkeyju Olsen Gunn­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra verður tekin til umræðu á Alþingi á morgun og að öllum lík­indum verða greidd atkvæði um til­lög­una í kjöl­farið. „Ég sé að því er hreyft í Morg­un­blað­inu í dag að ein leiðin út úr þessum ógöngum fyrir mat­væla­ráð­herra getur verið að skipta ein­fald­lega um ráð­herra­stól eins og hefur verið gert áður á líf­tíma þess­arar rík­is­stjórnar,“ sagði Sigmar, sem telur enn ein stóla­skipti ráð­herra ekki koma til greina.

Slíkt hefur gerst í tvígang á þessu kjör­tíma­bili. Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála­ráð­herra vegna þess að umboðs­maður Alþingis birti álit þess efnis að Bjarna hefði brostið hæfi til að taka ákvörðun um að selja hlut í Íslands­banka til félags í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, í mars 2022. Þá færði Svandís Svav­ars­dóttir sig úr mat­væla­ráðu­neyt­inu í inn­við­a­ráðu­neytið í apríl þegar breyt­ingar voru gerðar á rík­is­stjórn eftir að Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti um for­seta­fram­boð. 

„Vandi þess­arar rík­is­stjórnar eru miklu djúp­stæð­ari en svo að hann verði leystur með því einu að skipta ráð­herrum milli ráð­herra­stóla,“ sagði Sigmar. 

Van­traust á mat­væla­ráð­herra er ekki eina málið sem er á dag­skrá þings­ins þessa síð­ustu daga fyrir sum­ar­frí. Síður en svo. Meðal ann­arra mála má nefna frum­varp um lagar­eldi, sölu á eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka, fjár­mála­á­ætlun 2025-2029, breyt­ingar á lögum vegna end­ur­skoð­unar örorku­líf­eyr­is­kerfis og lista­manna­laun. 

Þinglok voru áætluð síð­asta föstu­dag en þing­fundir og nefnd­ar­fundir verða haldnir næstu daga eftir því sem þörf er á. Ekki liggur fyrir hvenær þing­menn kom­ast í sum­ar­frí. Starfs­á­ætlun fyrir næsta þing­vetur hefur hins vegar verið sam­þykkt af for­sætis­nefnd. Sum­ar­leyfi þings­ins lýkur 10. sept­em­ber þegar þing­setn­ing fer fram. Stefnuræða Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra og umræður um hana fara fram 11. sept­em­ber.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár