Kosningamyndband forsetans vekur undrun og umtal

Halla Tóm­as­dóttir vann for­seta­kosn­ing­arnar með miklum stuðn­ingi ungs fólks, sem hefur meðal ann­ars verið tengdur TikTok-her­ferð. Í umdeildu kosn­inga­mynd­bandi frá Höllu á miðl­inum sést ungur piltur í jakka­fötum van­virða stúlku.

Kosningamyndband forsetans vekur undrun og umtal
Halla Tóm­as­dóttir Var kjörin for­seti Íslands um helg­ina með 73 þús­und atkvæðum, eða 34,1% allra atkvæða. Mynd: Golli

Halla Tóm­as­dóttir, nýkjör­inn for­seti Íslands, er talin hafa und­ir­byggt óvæntan sigur sinn í for­seta­kosn­ing­unum um helg­ina með vel heppn­aðri TikTok-her­ferð. Eitt mynd­band­anna, sem birt var um helg­ina, hefur verið gagn­rýnt harð­lega á grund­velli þess gild­is­mats sem það birtir, en Halla kvaðst með for­seta­fram­boði sínu vilja hafa jákvæð áhrif á gild­is­mat þjóð­ar­innar.

Í einu mynd­band­anna, sem upp­skar 50 þús­und áhorf, sjást tveir ungir jakka­fata­klæddir menn koma á kjör­stað á bif­reið að gerð­inni Land­rover Discovery sport, kasta lyklunum til ungrar konu og hrinda síðan annarri. Mynd­bandið er hvatn­ing til ungs fólks um að kjósa undir yfir­text­anum: „Fram­tíðin er okkar“.

Kosn­inga­mynd­bandMyndband sem birt­ist um helg­ina á aðgangi Höllu Tóm­as­dóttur á TikTok hefur vakið undrun reynslu­bolta í stjórn­mála­um­ræðu.

Einn þeirra sem gagn­rýnir mynd­bandið er Egill Helgason fjöl­miðla­maður, sem um ára­bil stýrði umræðu­þætt­inum Silfrinu. „Tik Tok mynd­bandið er óhugn­an­legt og ótrú­legt að það hafi komið úr ranni fram­bjóð­anda,“ segir hann í sér­stakri Facebook-færslu um mynd­bandið. 

Sagt ótrúlegt og verulega óþægilegt

Fyrr í dag fjall­aði rit­höf­und­ur­inn Eiríkur Örn Norðdahl um mynd­bandið og sigur Höllu. Undir færslu hans um efnið lýsa fleiri óhug yfir mynd­band­inu. Þeirra á meðal er Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem hafði lýst stuðn­ingi við Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. „Tik-tokið er ótrú­legt!“ segir Össur og bætir við: „Verulega óþægi­legt.“

Sam­flokks­maður Össurar, sem var þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á síð­asta kjör­tíma­bili, rit­höf­und­ur­inn Guð­mundur Andri Thorsson, lýsir sömu­leiðis undrun. „Ég get ekki hætt að hugsa um það hvernig hann hrindir kon­unni sem þeim mæta, bara si svona.“

„Ég get ekki hætt að hugsa um það hvernig hann hrindir kon­unni sem þeim mæta, bara si svona“

Aðrir hafa bent á að mynd­bandið sé í raun í þeim stíl sem tíðkast á TikTok. Almennt birt­ist ákveð­inn létt­leiki í þeim mynd­böndum sem Halla birti í aðdrag­anda kosn­inga. Sjálf hefur hún talað um að gleði og hug­rekki hafi ein­kennt fram­boðið og það hafi skilað sér. 

Náði unga fólkinu með sér 

Samkvæmt könnun Maskínu sem birt var dag­inn eftir kjör­dag skar Halla sig úr í stuðn­ingi ungs fólks. Halla mæld­ist með 36,7% stuðn­ing hjá fólki á aldr­inum 18 til 29 ára, en Katrín Jak­obs­dóttir komst næst með aðeins 15,3% stuðn­ing hjá sama ald­urs­hópi. 

Út frá tekju­hópum mæld­ist Halla hins vegar með mestan stuðn­ing meðal þeirra sem höfðu hæstar tekjur, en þar komst Katrín nærri.

Þegar horft var til stuðn­ings til stjórn­mála­flokka naut Halla mests stuðn­ings þeirra sem eru hægra megin í stjórn­málum, stuðn­ings­fólks Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks og svo Fram­sókn­ar­flokks.

Lýsti áhyggjum af neikvæðri orðræðu 

Í kosn­inga­bar­átt­unni lýsti Halla áhyggjum af því að orð­ræðan í sam­fé­lag­inu bendi til þess að fólki líði illa. „Ég hef sér­stak­lega áhyggjur að ef unga fólk­inu okkar líður ekki vel þá held ég að engu okkar geti liðið vel,“ sagði hún meðal ann­ars í við­tali við Heim­ild­ina. 

Sem for­seti geti hún haft jákvæð áhrif þar á. „Ég vil að and­leg og sam­fé­lags­leg heilsa þjóð­ar­innar sé góð og ég vona að ég eigi eftir að geta lagt mitt af mörkum, með mörgum öðrum, á hönd á plóg svo að svo verði,“ sagði hún til að mynda í við­tali við Vísi í gær. Ungt fólk væri sér­stak­lega orðið þreytt á skautun í sam­fé­lag­inu.  

Sigraði með yfirburðum

Halla Tóm­as­dóttir var kjörin for­seti með yfir­burðum um helg­ina, þrátt fyrir að Katrínu Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði verið spáð sigri fram á síð­ustu stundu. Hún tekur form­lega við emb­ætt­inu af Guðna Th. Jóhann­essyni í ágúst.

Kjósa
72
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Frekja og hroki.
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hér má sjá hvernig útgerðin reyndi að koma Davíð Oddssyni á Bessastaði 2016

    https://www.rikisend.is/skyrslur/nanar?id=287

    Fróðlegt verður að sjá uppgjör Katrínar Jakobsdóttur 2024
    2
  • ÁÁÞ
    Ágúst Á. Þórhallsson skrifaði
    Mjög ósmekklegt, hrokafullt og kvenfyrilitlegt myndband. 🫣
    8
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Skelfileg viðhorf koma þarna fram, hroki dýrkun á þeim sem eiga flottan bíl, kvenfyrirlitning. Halla heppin að þetta komst ekki í hámæli fyrir kosningar. Ætlar hún að svara fyrir þetta? Mér líður illa að sjá þetta.
    9
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Ógeðslegt hvernig hann lemur í konuna. Halla Tómasdóttir, sem sendir svona myndband frá sér er ekki forseti minn!
    7
  • VK
    Víðir Kristjánsson skrifaði
    Viðskiptaráðið sigraði hægri ríkisstjórn!
    3
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hægri öflin sigruðu þrátt fyrir óvinsælustu stjórn og óvinsælasta forsætisráðherra hægri manna á Íslandi. Hvernig stendur á þessu? Eru íslendingar svona ruglaðir? Það hlýtur að vera. Er einhver sem getur skýrt út þessi undarlegheit?
    6
  • Kári Jónsson skrifaði
    NKL þetta er veruleikinn í samfélaginu okkar, við höfum flest HUNSAÐ þetta, myndbandið afhjúpaði þennan ógeðfellda veruleika. Tek fram að ég kaus annan frambjóðanda.
    7
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Þetta myndband vekur óhug og sýnir þá hugmynd útrásarvíkinganna um og eftir 2000 "hér kem ég og allir skulu víkja". Þessi hugmynd endaði í hruninu 2008 og 2009. Halla ætti að biðja allt landsfólk afsökunar á þessu skammarlega myndbandi.
    19
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Er þetta hluti af nýu útfærsluni á kapitalisma sem háttvirtur forseti talaði um
    10
  • VEK
    Védís Elsa Kristjánsdóttir skrifaði
    Minnir óþægilega á þátt úr Útrás.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár