Regnvotur Sunak vonar að hlutirnir geti einungis skánað

Enginn sér fram á annað en mik­inn ósigur Íhalds­flokks­ins í Bret­landi, þar með tal­inn Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins. Sunak boð­aði samt snemm­búnar kosn­ingar á dög­unum og verða þær haldnar í byrjun júlí. Mikil óánægja með dýr­tíð­ar­krísu, kreppu­á­stand og óreiðu­kenndan Íhalds­flokk virð­ist ætla að skila Verka­manna­flokknum fyrstu rík­is­stjórn sinni síðan frá ósigri Gordons Brown árið 2010.

Regnvotur Sunak vonar að hlutirnir geti einungis skánað
Gegn­drepa Rishi Sunak lýsir yfir snemm­búnum kosn­ingum Mynd: AFP

Á gráum og votum degi þann 22. maí til­kynnti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Rishi Sunak, um snemm­búnar kosn­ingar 4. júlí næst­kom­andi, en þær hefðu að óbreyttu farið fram í lok árs. Eins og hefð er fyrir hélt Sunak ræðu sína fyrir framan Downing Street 10, skrif­stofu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og heim­ili ráð­herr­ans. 

Í miðju kafi hóf hávær tón­list að glymja í nágrenn­inu og yfir­gnæfði nán­ast ræðu Sunaks. „Things can only get better“ ómaði þannig yfir til­kynn­ingu for­sæt­is­ráð­herr­ans, en lagið er víð­frægt orðið sem kosn­inga­lag Verka­manna­flokks­ins árið 1997, þegar Tony Blair leiddi flokk sinn til stór­sig­urs. 

Sú upp­á­koma varð til þess að ramma kirfi­lega inn tragík­ó­mískar kring­um­stæð­urnar, þar sem óvin­sæli auð­mað­ur­inn Sunak með regn­blautar herðar sínar prufu­keyrði sjálfs­traustið fyrir kom­andi kosn­ingar þar sem flokki hans er spáð sögu­legu hruni.

„Ætli þetta sé ekki bara svona illu er best aflokið hugsun“
Eiríkur Bergmann
pró­fessor í stjórn­mála­fræði

Umræðan í Bret­landi og utan þess hefur und­an­farna mán­uði ein­kennst …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár