Forsetakappræður í beinu streymi á vef Heimildarinnar

Þeir sex fram­bjóð­end­ur sem mæl­ast með mest fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ili­dar­inn­ar mæt­ast í kapp­ræð­um í Tjarn­ar­bíói í kvöld. Bein út­send­ing verður frá þeim á vef Heim­ild­ar­innar.

Íkvöld, þriðju­dag­inn 28. maí, mun Heim­ildin standa fyrir kapp­ræðum milli þeirra sex for­seta­fram­bjóð­enda sem mæl­ast með meira en tveggja pró­senta fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá mið­ils­ins.

Kapp­ræð­urnar fara fram í Tjarn­ar­bíói og verða þær einu sem fram fara í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga þar sem áhorf­endur verða í sal.  Áskrif­endum Heim­ild­ar­innar var boðið að koma og vera við­staddir án greiðslu en aðrir þurftu að greiða hóf­legt gjald fyrir aðgang. Það seld­ist nær sam­stundis upp á kapp­ræð­urnar og því verður hús­fyllir. 

Kapp­ræð­unum verður stýrt af Aðal­steini Kjart­ans­syni og Margréti Mart­eins­dóttur. Húsið verður opnað klukkan 18 og skömmu síðar hefj­ast lif­andi umræður, undir stjórn Ragn­hildar Þrast­ar­dóttur, á sviði með sér­fræð­ingum þar sem fjallað verður um ýmsa anga for­seta­kosn­ing­anna. 

Kapp­ræð­urnar sjálfar hefj­ast svo klukkan 20. Gert er ráð fyrir að þær standi til 21.30. Þeim verður streymt beint á vef Heim­ild­ar­innar. 

Þeir fram­bjóð­endur sem hafa stað­fest komu sína eru Arnar Þór Jónsson, Baldur Þór­halls­son, Halla Hrund Loga­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Jón Gnarr og Katrín Jak­obs­dóttir. Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá mælist fylgi þeirra á bil­inu 6,3 til 24,3 pró­sent en aðrir fram­bjóð­endur mæl­ast sam­an­lagt með um fjög­urra pró­sent fylgi.

Hér má fylgj­ast með kapp­ræð­unum: 

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • mjög glatað að þurfa að borga 3990kr ef maður vill sjá þetta til enda :/
    0
  • Sveinbjörn Pétursson skrifaði
    Katrín, minn framtíðar forseti. Enn smá nervös um að þjóðin velji eitthvað annað, en samt ekki. Áfram Katrín!!
    0
  • GR
    Guðrún Rósa skrifaði
    Hvenær byrja útsending ?
    0
  • VB
    Viktoría Birgisdóttir skrifaði
    Hlakka til að horfa og hvet minn mann Baldur alla leið!
    2
  • KJ
    Kolbeinn Jónsson skrifaði
    Af hverju bara efstu 6?
    Maður vill fá að heyra í öllum frambjoðendum, sérstaklega þeim sem fá litla sem enga umfjöllun…
    Að vera efstur í skoðanakönnunum á ekki að gefa frambjóðanda forréttindi umfram aðra frambjóðendur.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár