Umhverfistofnun telur bæði ótímabundinn kvóta og veðsetningu hans umdeilanlegar breytingar

Rík­is­stofn­unin Umhverf­is­stofnun gerir athuga­semdir við tíma­lengd rekstr­ar­leyfa í sjó­kvía­eldi hér á landi. Nu þegar hafa borist 54 umsagnir við frum­varpið um lagar­eldi eftir að það var lagt fram á Alþingi í lok apríl. Frum­varpið er afar umdeilt og hefur umræða um það verið hluti af kosn­inga­bar­átt­unni til emb­ættis for­seta Íslands.

Umhverfistofnun telur bæði ótímabundinn kvóta og veðsetningu hans umdeilanlegar breytingar
Hörð umræða um frum­varpið Umræðan um lagar­eld­is­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar hefur verið hörð og hélt mat­væla­ráðu­neytið meðal ann­ars nýlega sér­stakan upp­lýs­inga­fund um lagar­eld­is­frum­varpið. Þar ræddi skrif­stofu­stjóri mála­flokks­ins í mat­væla­ráðu­neyt­inu, Kolbeinn Árnason, meðal ann­ars um það. Mynd: Golli

Rík­is­stofn­unin Umhverf­is­stofnun gagn­rýnir fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á lengd rekst­ar­leyfa í lax­eldi á Íslandi í nýju frum­varpi um lagar­eldi sem er til með­ferðar á Alþingi.  Stofn­unin telur að ef rekstr­ar­leyfin í sjó­kvía­eld­inu eigi að vera ótíma­bundin þurfi að setja harð­ari ákvæði um mögu­lega end­ur­skoðun á starfs­leyf­unum.  Þá gagn­rýnir stofn­unin einnig að ekki liggi skýr­lega fyrir hvort lax­eld­is­fyr­ir­tækin megi veð­setja og fram­selja rekstr­ar­leyfi sín til þriðja aðila og taka þurfi af allan vafa um þetta. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn stofn­un­ar­innar um lagar­eld­is­frum­varpið sem Umhverf­is­stofnun skil­aði aftur til atvinnu­vega­nefndar þann 16. mai. 

Um er að ræða sömu umsögn og Umhverf­is­stofnun skil­aði um frum­varpið í febr­úar en stofn­unin telur að ekki hafi verið tekið nægi­legt mark á henni. 

Ekki liggur fyrir hvaðan laga­greinin komEkki liggur ennþá fyrir hvaðan og frá hverjum laga­greinin um að rekstr­ar­leyfin í lax­eld­inu hér við land eigi að vera ótíma­bundin er komin. Bjarkey Gunn­ars­dóttir ætlar …
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár