Jógasetur á slóðum raðmorðingja

Jörðin Öxl á Snæ­fells­nesi er lík­lega þekkt­ust fyrir ill­virki ábú­and­ans á sext­ándu öld. Nú er öldin önnur og frið­sæld og feg­urð helsta aðdrátt­ar­aflið.

Jógasetur á slóðum raðmorðingja

Friðsæld og slökun mun ein­kenna jörð­ina Öxl á Snæ­fells­nesi ef áform eig­enda um að byggja þar jóga­setur verða að veru­leika. Þeir reka þar reyndar þegar gisti­hús og bjóða upp á aðstöðu til jóga­iðk­unar í þeim húsum sem fyrir eru á jörð­inni.

Þjóð­sögur miklar, sumar studdar ákveðnum heim­ildum, segja ábú­and­ann á Öxl í lok sext­ándu aldar, Björn Pét­urs­son, hafa myrt að minnsta kosti níu manns. Segja sumar sögur að fjöld­inn hafi verið nær 15. Er hann almennt kall­aður Axlar-Björn og sagður eini raðmorð­ingi Íslands.

En nú er öldin önnur og and­inn á Öxl það svo sann­ar­lega. Eigendur jarð­ar­innar hafa óskað eftir breyt­ingu á deiliskipu­lagi sem felur í sér bygg­ing­ar­reit undir jóga­setur þar sem einnig yrðu gist­i­rúm fyrir 20 manns. Þá hyggja þeir á end­ur­bætur og end­ur­upp­bygg­ingu á núver­andi mann­virkjum að Öxl. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár