Katrín með minna fylgi en bæði Halla Hrund og Baldur

Einn fram­bjóð­andi er búinn að fimm­falda fylgi sitt á rúmum tveimur vikum á meðan að annar mælist nú í fyrsta sinn ekki með mest fylgi allra í kosn­ingspá Heim­ild­ar­innar.

Katrín með minna fylgi en bæði Halla Hrund og Baldur

Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri er nú sá fram­bjóð­andi til for­seta Íslands sem mælist með mest fylgi allra í kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar, sem vigtar þær skoð­ana­kann­anir sem gerðar eru. Alls segj­ast 24,9 pró­sent svar­enda ætla að kjósa hana nú og er það í fyrsta sinn sem hún leiðir sem fram­bjóð­andi frá því að farið var að gera kosn­inga­spár fyrir kom­andi kosn­ingar rétt fyrir mið­bik apr­íl­mán­aðar. Halla Hrund hefur bætt við sig næstum 20 pró­sentu­stigum á rúmum hálfum mán­uði og fylgi hennar hefur því fimm­fald­ast á þeim tíma. 

Þeir fram­bjóð­endur sem hafa orðið fyrir mestu fylgis­tapi vegna upp­gangs Höllu Hrundar eru Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík og Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team.

Fylgi Katrínar mælist nú 23,7 pró­sent og hefur dreg­ist saman um 7,3 pró­sent frá 13. apríl. Samkvæmt nýj­ustu spánni situr Katrín nú í þriðja sæti yfir þá fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi. Það er í fyrsta sinn í kosn­inga­spám Heim­ild­ar­innar vegna for­seta­kosn­ing­anna sem hún mælist ekki með mest fylgi allra. Jón hefur tapað minna en Katrín, eða alls 3,5 pró­sentu­stigum frá fyrstu spá, og mælist nú með 15,5 pró­sent stuðn­ing.

Halla Tóm­as­dóttir er hins vegar komin niður í fjögur pró­sent eftir að hafa mælst með sjö pró­sent fylgi fyrir rúmum tveimur vikum. Hún hefur því hlut­falls­lega tapað um 43 pró­sent af fylgi sínu á umræddu tíma­bili og þrátt fyrir að sitja í fimmta sæti yfir þá fram­bjóð­endur sem eru með mest fylgi þá er hún meira 11,5 pró­sentu­stigum frá Jóni Gnarr í fjórða sæt­inu. 

Baldur stöðugri

Baldur Þór­halls­son sker sig úr hópnum sem nýtur mest fylgis á þann hátt að fylgi hans hefur verið stöðugra en hinna þriggja. Það mælist sem stendur 24,2 pró­sent, sem er það minnsta sem Baldur hefur mælst með, en það er samt sem áður undir tólf pró­sent minna fylgi en það sem hann mæld­ist mest með.

Til sam­an­burðar hefur fylgi Katrínar fallið um tæp­lega 24 pró­sent frá því að það topp­aði og fylgi Jóns Gnarr um rúm­lega 18 pró­sent. 

Þeir fjórir fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi mætt­ust í fyrsta sinn í kapp­ræðum í Pressu á Heim­ild­inni síð­ast­lið­inn föstu­dag. Áhuginn á þætt­inum var mik­ill og met­að­sókn var á vef Heim­ild­ar­innar á meðan að á þætt­inum stóð. Hægt er að horfa á hann í heild hér að neðan. 

Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi dóm­ari, mælist með þriggja pró­senta fylgi og Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona með 1,6 pró­sent. Aðrir fram­bjóð­endur mæl­ast sam­tals með 3,1 pró­sent stuðn­ing. 

Í dag varð líka ljóst hversu margir muni berj­ast um að verða næsti hús­ráð­andi á Bessa­stöðum, en kosið verður laug­ar­dag­inn 1. júní. Af þeim 13 sem skil­uðu inn með­mæl­enda­listum fyrir loka­frest á föstu­dag telj­ast ell­efu lög­legir fram­bjóð­endur. Þau eru, auk ofan­greindra, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, Ástþór Magn­ús­son, Eiríkur Ingi Jóhanns­son og Helga Þór­is­dóttir. Framboð Kára Vil­mund­ar­sonar Hansen og Viktors Trausta­sonar voru úrskurðuð ógild. 

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spáin er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig.

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks­skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár