Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Reykjavík International Film Festival (RIFF) hefur fengið samtals 98 milljónir króna í styrki frá Reykjavíkurborg frá árinu 2013. Þetta kemur fram í svari frá Reykjavíkurborg við spurningum Heimildarinnar um styrkveitingar til hátíðarinnar.
Heimildin greindi frá því fyrir skömmu að fyrrverandi starfsmaður RIFF hafi sent gagnrýnið bréf um hátíðina og eiganda hennar, Hrönn Marinósdóttur, til Reykjavíkurborgar og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands sem einnig styrkir RIFF með fjárveitingu frá íslenska ríkinu.
Gagnrýni starfsmannsins var sams konar eðlis og gagnrýni sem fram kom á RIFF frá starfsfólki árið 2013 í skýrslu sem sérstök eftirlitsnefnd frá Reykjavíkurborg gerði á hátíðinni. Sú skýrsla var aldrei gerð opinber en í kjölfar hennar hætti Reykjavíkurborg að styrkja RIFF um eins árs skeið: „Á árinu 2013 var RIFF með 9 milljónir króna í styrk frá menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar. Á árinu 2014 hlaut hátíðin ekki styrk frá ráðinu. …
Athugasemdir