Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta Íslands

For­sæt­is­ráð­herra ætlar í for­seta­fram­boð og hefur beðist lausnar fyrir ráðu­neyti sitt.

Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til forseta Íslands
Ætlar fram Katrín Jak­obs­dóttir hefur verið for­sæt­is­ráð­herra frá því síðla árs 2017. Mynd: Golli

Katrín Jak­obs­dóttir ætlar að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Þetta upp­lýsti hún í ávarpi sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum rétt í þessu. 

Hún hefur óskað lausnar fyrir ráðu­neyti sitt og hætta sem for­sæt­is­ráð­herra. Í ávarp­inu sagði Katrín að hún hefði fyrir all­nokkru ákveðið að gefa ekki kost á sér í næstu þing­kosn­ingum. Áfram brenni hún hins vegar fyrir því að vinna sam­fé­lag­inu gagn og vil gera það áfram. „Að þeim sökum hef ég ákveðið að beið­ast lausnar sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands og gefa kost á mér í kom­andi for­seta­kosn­ingum. Ég mun á kom­andi vikum ferð­ast um landið og von­andi hitta ykkur sem flest og ræða við ykkur um fram­tíð­ina, því ég trúi því að ég geti á þessum vett­vangi verið íslenskri þjóð og sam­fé­lag­inu öllu til gagns.“

Katrín er fædd 1. febr­úar 1976, og er því nýlega orðin 48 ára gömul. …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jakob Bragi Hannesson skrifaði
    Sorglegt að hún haldi það að hún fái stuðning þjóðarinnar. Hún hefur verið dyggur stuðningsmaður fjármagnseigenda og elítunnar. Sem ,,pólitíkus" hefur hún þverbrotið öll ,,prinsipp" sín og svikið öll sín heit. Íslendingar leitum ekki þangað sem við erum kvöldust fyrir. Hjá Katrínu er engan styrk að fá né huggun!
    3
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Aldrei minn forseti.

    Verði hún forseti þá verður það fyrir tilstuðlan kjósenda sem skilgreina sig hægra megin á hinu pólitíska litrófi.

    Vinstri kjósendur og sér í lagi sósíalistar munu ekki kjósa þennan svikara. Það er mín skoðun og spá.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár