Segir Evrópu ekki tilbúna í stríð

Donald Tusk, for­sæt­is­ráð­herra Póllands, segir að Evrópa þurfi að efla varnir sínar. „Stríð er ekki lengur hug­mynd úr for­tíð­inni.“

Segir Evrópu ekki tilbúna í stríð
Donald Tusk segir stríð ekki lengur fjar­stæðu­kenndan mögu­leika í Evrópu. Mynd: AFP

For­sæt­is­ráð­herra Póllands, Donald Tusk, varar við því að frek­ari ófriður brjót­ist út í Evrópu, og segir álf­una ekki nægi­lega vel und­ir­búna. Hann segir engan í Evrópu geta talið sig öruggan tak­ist Rúss­landi að sigra Úkraínu.

„Stríð er ekki lengur hug­mynd úr for­tíð­inni,“ segir Tusk. Segir hann nýja tíma vera runna upp – fyr­ir­stríðsár í Evrópu.  BBC greinir frá.

Harkan í sókn Rússa í Úkraínu hefur farið vax­andi síð­ast­liðnar vikur. Nefnir Tusk til dæmis að Rússland hafi ráð­ist á Kyiv með hljóð­fráum eld­flaugum í dags­ljósi í fyrsta sinn fyrr í vik­unni.

Vill að Evrópuþjóðir seti aukið fé í varnarmál

Tusk heldur því fram að Evrópa verði Banda­ríkj­unum eft­ir­sókn­ar­verð­ari sam­herji ef álfan styrki heri sína. Er þetta óháð því hvort það verði Joe Biden eða Donald Trump sem sigrar í for­seta­kosn­ing­unum í haust.

Þrátt fyrir að vilja eflda heri leggur Tusk ekki til að Evrópa þurfi endi­lega að verða sjálf­stæð frá …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár