Minnast þeirra sem létust úr fíknisjúkdómnum: „Hann var á biðlistanum“

Minn­ing­ar­at­höfn um þá sem hafa lát­ist úr fíkni­sjúk­dómnum verður haldin í Dóm­kirkj­unni í dag. „Leið þessa fólks var grýtt, vörðuð þján­ingu og óham­ingju, og eitt­hvað af þessu fólki hefur lík­lega dáið vegna úrræða­leysis,“ segir for­maður Samtaka aðstand­enda og fíkni­sjúkra sem standa að athöfn­inni. Frændi hennar lést þegar hann var á biðlista eftir með­ferð.

Minnast þeirra sem létust úr fíknisjúkdómnum: „Hann var á biðlistanum“
Rósir sem aðstand­endur lögðu við alþing­is­húsið þegar Samtök aðstand­enda og fíkni­sjúkra (SAOF) vorus tofnuð í nóv­em­ber; hver lagði eina rós fyrir hvern ein­stak­ling sem hafði lát­ist úr fíkni­sjúk­dómnum.

„Þessi dagur er til að heiðra minn­ingu þeirra sem hafa dáið úr sjúk­dómnum en hann er einnig til þess að minna á að við megum aldrei gef­ast upp á að berj­ast fyrir þá sem eru enn lif­andi og eru veikir,“ segir Dagbjört Ósk Stein­dórs­dóttir, for­maður Samtaka aðstand­enda og fíkni­sjúkra (SAOF). 

Til að minn­ast þeirra sem hafa lát­ist úr fíkni­sjúk­dómum standa sam­tökin fyrir minn­ing­ar­at­höfn í Dóm­kirkj­unni í dag, fimmtu­dag, klukkan 17. Þar mun séra Bjarni Karlsson fara með minn­ing­ar­orð og Páll Óskar Hjálmtýs­son mun syngja nokkur lög. 

Við and­dyri Dóm­kirkj­unnar verður síðan kassi þar sem fólk getur skilið eftir bréf sem sam­tökin fara síðan með á Alþingi á morgun. Bréfin eru hugsuð sem skila­boð til alþing­is­manna, bæði til að þeir átti sig á þeirri alvar­legu stöðu sem er uppi þegar kemur að fólki með fíkni­vanda á Íslandi en einnig til að hvetja þá til aðgerða. 

Þá verða lagðar rósir við þing­húsið til að minn­ast þeirra sem hafa lát­ist, en talað er um að allt að hund­rað manns falli frá árlega vegna fíkni­sjúk­dóms­ins.

Full­trúar SAOF stefna að því að minn­ing­ar­dag­ur­inn verði hald­inn árlega héðan í frá en þetta er í fyrsta skipti sem hann er hald­inn.

Dó á biðlistanum

Dagbjört segir að því bréfi sem hún hefur skrifað og ætlar að skilja eftir í kass­anum segi hún meðal ann­ars frá frænda sínum heitnum, Smára Jónssyni, sem lést á þessum degi fyrir þremur árum. „Hann var á biðlist­anum,“ segir hún og vísar til biðlist­anna sem fólk með fíkni­sjúk­dóm­inn þarf að fara á til að kom­ast í með­ferð og fá hjálp. „En hann lifði það ekki af,“ segir hún. 

Dagbjört segir að þau Smári hafi verið bræðra­börn en hann var 55 ára þegar hann lést. „Hann átti sér von um betra líf, von um að verða heil­brigður. Hann hlakk­aði til að verða afi og til að sjá börnin sín eld­ast. Hann var afskap­lega góður maður en hvarf bara inn í þennan sjúk­dóm. Þetta var maður sem hafði allt til brunns að bera. Þetta var ekki lífið sem hann kaus sér,“ segir hún. 

Við minn­ing­ar­at­höfn­ina í dag muni þing­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son síðan flytja örv­arp sem er brot úr ljóði eftir systur Smára heit­ins, Bryndísi Halldóru Jóns­dóttur, sem er svohljóð­andi: „Sárlega saknað á lífs­ins vegi, hljóð­lega minnst á hverjum degi“.

Dagbjört segir þessi orð mjög lýsandi og hún viti til þess að þau sé þegar að finna á tveimur leg­steinum.

Skammarlegt stefnuleysi

Dagbjört leggur áherslu á mik­il­vægi þess að hafa sér­stakan dag til að minn­ast þessa fólks sem fallið er frá, sem varð undir í bar­átt­unni við fíkn­ina. „Leið þessa fólks var grýtt, vörðuð þján­ingu og óham­ingju, og eitt­hvað af þessu fólki hefur lík­lega dáið vegna úrræða­leysis,“ segir hún. 

Sam­kvæmt nýrri út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­un­ar sem birt var í lið­inni viku þá rík­ir al­gjört stefnu- og for­ystu­leysi með­al stjórn­valda gagn­vart ópíóíða­far­aldr­in­um sem nú geis­ar hér á landi. Ekk­ert ráðu­neyti hef­ur tek­ið for­ystu í mála­flokkn­um og eng­in skýr stefna eða að­gerð­ar­á­ætl­un ligg­ur fyr­ir hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig skuli tak­ast á við ópíóíða­fíkn og fíkni­vanda al­mennt.

Þrátt fyrir að ljóst þyki að heil­brigð­is­ráðu­neytið fari með mál­efni ávana- og fíkni­efna, ásamt áfengis- og vímu­vörnum, liggur ekki fyrir gild­andi stefna gagn­vart mála­flokknum hjá ráðu­neyt­inu.

Dagbjört segir þetta stefnu­leysi til mik­illar skammar og úr því þurfi að bæta hið snarasta. „Við megum ekki hætta bar­átt­unni,“ segir hún.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár