„Sjúkdómur sem getur leitt til geðveiki, fangelsisvistar, heimilisleysi eða dauða“

Stjórn­ar­maður í Samtökum aðstand­enda og fíkni­sjúkra segir tvo úr vina­hópi sonar síns hafa lát­ist á þriggja mán­aða tíma­bili, 15 og 17 ára gamlir. Ekkert sér­hæft úrræði er hér á landi fyrir ungt fólk með vímu­efna­vanda. Talið er að um hund­rað manns lát­ist árlega af fíkni­sjúk­dómnum árlega.

„Sjúkdómur sem getur leitt til geðveiki, fangelsisvistar, heimilisleysi eða dauða“
Rósir hinna látnu Rósirnar sem voru lagðar við Alþing­is­húsið, aðstand­endur lögðu eina rós fyrir hvern ein­stak­ling sem hafði lát­ist úr fíkni­sjúk­dómnum.

„Ég þekki orðið ansi vel þennan stóra og sístækk­andi hóp skjól­stæð­inga Frú Ragn­heiðar eftir að hafa starfað þar í átta ár. Ég er sjálfur óvirkur alkó­hólisti og aðstand­andi. Ég missti föður minn úr alkó­hól­isma síð­asta haust og fyrir um mán­uði reyndi bróðir minn að fyr­ir­fara sér í Kringl­unni. Hann not­aði bæði brenni­vín og pillur, og var kom­inn á enda­stöð. Við í stjórn sam­tak­anna erum öll reynslu­boltar sem þekkjum þessi mál vel,“ segir Þröstur Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Samtaka aðstand­enda og fíkni­sjúkra (SAOF). Frú Ragn­heiður er skaða­minnk­andi úrræði á vegum Rauða kross­ins þar sem fólk í virkri neyslu fær aðstoð í nærum­hverfi sínu, til að mynda vegna nála­skipta.

„Ég missti föður minn úr alkó­hól­isma síð­asta haust og fyrir um mán­uði reyndi bróðir minn að fyr­ir­fara sér í Kringl­unni“
Þröstur Ólafsson

SAOF voru stofnuð í lok nóv­em­ber á síð­asta ári. Skömmu síðar stóðu sam­tökin fyrir …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnhildur Erla Halldórsdóttir skrifaði
    Mjög mikilvægt að hjálpa þessu veika fólki og það er til skammar hvernig komið er fram við Árna Tómas.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    https://www.youtube.com/watch?v=o8uVSzVY8kQ
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Maður veltir fyrir sér breitingunni sem hefur orðið á vímuefnaneyslu landsmanna frá því að fíkniiðnaðurinn fór að setja upp heilaþvottarstöðvar (meðferðarstöðvar við alkavísinda alkhólisma) fyrir rúmum 40 árum en þá þekktist varla á íslandi að fólk sprautaði sig með eiturlyfjum kannski innanvið 10 manns sem höfðu komist upp á þetta liggjandi í rugli erlendis allt lagnt gengnir fíknisjúklingar. En nú 40 árum síðar skipta sjúklingarnir þúsundum með miklum dauðsföllum ungir líffæragjafar í meirihluta og alls ekki allir alkahólistar heldur drepnir með eiturlyfjum sem sett eru út í fíkniefnin sem notuð eru með vínininu á skemmtanalífinu. Getur verið að þetta sé ekki að virka nema fyrir bisnessin með dópið og líffæragjafana og vísindin á bakvið séu ekki rétt vegna þess að veltan er í fyrirrúmi og snýst allt um peninga. Take care of the bisness. því miður er búið að byggja upp heilmikla spillingu og glæpastarfsemi í kringum þennan heilaþvott og alkavísindi sem eru vafasöm í meira lagi og árangurinn eftir því. Tóku Guð úr myndinni og tróðu vafasömum vísindum í staðin criminal mind) Semsagt vantar vitið til að greina á milli í æðruleysisbæninni og áranguruinn eftir því. Þakka Guði fyrir að vera ekki alkahólisti þó auðvitað mikið sé búið að reyna að troða þessu bulli á mig
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Áhugaverð lesning
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár