Stefnu- og forystuleysi andspænis versnandi ópíóíðavanda

Samkvæmt nýrri úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar ríkir algjört stefnu- og for­ystu­leysi meðal stjórn­valda gagn­vart ópíóíða­far­aldr­inum sem nú geisar hér á landi. Ekkert ráðu­neyti hefur tekið for­ystu í mála­flokknum. Engin skýr stefna eða aðgerð­ar­á­ætlun liggur fyrir hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig skuli takast á við ópíóíða­fíkn og fíkni­vanda almennt.

Stefnu- og forystuleysi andspænis versnandi ópíóíðavanda
Úttekt rík­is­end­ur­skoð­unar sýnir fram á að algjört ábyrgðar- og stefnu­leysi ríki í mála­flokknum Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ekkert ráðu­neyti eða stofnun hefur tekið skýra for­ystu í málum er varða ópíóða­fíkn eða fíkni­vanda almennt.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í hrað­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á ópíóíða­fala­dr­inum sem geisar hér á landi.

Í skýrsl­unni, sem lögð var fyrir Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í dag, er dregin upp afar dökk mynd af stöðu mála. Þar kemur fram að algjört stefnu­leysi ríki um mála­flokk­inn.

Enginn aðili hefur fulla yfir­sýn yfir fjölda ein­stak­linga sem glíma við ópíóíða­vanda. Gagna­söfnun er brota­kennd og mikið mis­ræmi er á milli þeirra upp­lýs­inga sem er safnað af ólíkum stofn­unum sem sinna mála­flokknum. Stjórn­völd búa því ekki yfir gögnum sem geti varpað ljósi á umfang vand­ans. 

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að eng­inn af við­mæl­endum Rík­is­end­ur­skoð­unar hafi getað bent á hvar for­ysta í mála­flokknum lægi. Rík­is­end­ur­skoðun telur þó að full­víst ópíóíða­vand­inn falli undir ábyrgð­ar­svið heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. 

Algjört stefnuleysi í fjögur ár

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár