Ríkið þarf að greiða 34,5 milljónir til verjenda í hryðjuverkamálinu

Sindri Snær Birg­is­son og Ísidór Nathans­son þurfa að greiða 1/4 af máls­kostn­aði í hryðju­verka­mál­inu svo­kall­aða. Ríkið mun greiðar 3/4. Máls­kostn­að­ur­inn sem liggur fyrir eru 46 millj­ónir króna.

Ríkið þarf að greiða 34,5 milljónir til verjenda í hryðjuverkamálinu
Verj­end­urnir Sveinn Andri Sveins­son og Einar Oddur Sig­urðs­son. Mynd: Golli

Málsvarn­ar­laun verj­enda í hryðju­verka­mál­inu svo­kall­aða voru ákvörðuð 46 millj­ónir króna. Er sá kostn­aður fyrir vinnu lög­manna Sindra Snæs Birg­is­sonar og Ísidórs Nathans­sonar. Sindri mun greiða sex millj­ónir króna í máls­kostnað og Ísidór 5,5 millj­ónir króna, þar sem þeirra hluti í máls­kostn­að­ar­ins er ¼.

Lögmaður Sindra var Sveinn Andri Sveins­son og lög­maður Ísidórs  var Einar Oddur Sig­urðs­son. Málsvarn­ar­laun hvors um sig voru ákvörðuð 22 millj­ónir króna en til við­bótar féll til þóknun verj­anda Sindra á rann­sókn­ar­stigi, Ómars Arnar Bjarn­þórs­sonar, sem var tvær millj­ónir króna. 

Ekki liggur fyrir hver heild­ar­kostn­aður vegna hér­aðs­sak­sókn­ara eða lög­reglu í mál­inu var. 

Sindri hlaut 24 mán­aða fang­els­is­dóm fyrir vopna­laga­brot í mál­inu en var sýkn­aður af ákæru um skipu­lagn­ingu hryðju­verka. hann sat í gæslu­varð­haldi frá 13. til 20. sept­em­ber og 22. sept­em­ber til 13. des­em­ber 2022. Verður gæslu­varð­haldið yfir Sindra dregið frá refs­ingu hans.

Ísidór hlaut 18 mán­aða fang­els­is­dóm, líka fyrir vopna­laga­brot en var sýkn­aður af ákæru um hlut­deild í skipu­lagn­ingu á hryðju­verkum. Gæslu­varð­haldið yfir honum verður einnig dregið frá en hann sat í gæslu­varð­haldi 22. sept­em­ber til 13. des­em­ber 2022. 

Reiðufé upp á 1.620.000 krónur, þrír þrí­vídda­prent­arar, skot­færi, íhlutir í skot­vopnum, verk­færi til vopna­gerðar, ýmis tölvu­bún­aður, riffl­arnir AK-47, AR-15 og CZ557 í eigu Sindra voru látin sæta upp­töku. 

Af eignum Ísidórs sem lagt var hald á við rann­sókn málsin sæta upp­töku þrí­vídd­ar­prent­ari, skot­færi, íhlutir í skot­vopn, verk­færi til vopna­gerðar, ýmis tölvu­bún­aður, 7,45 grömm af marí­húana, 0,48 grömm af amfetamíni og 22 stykki af ana­ból­ískum sterum. 

„Þetta er áfell­is­dómur fyrir ákæru­valdið,“ sagði Sveinn Andri, lög­maður Sindra, við blaða­menn fyrir utan dóms­sal eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp í gær. Einar Oddur Sig­urðs­son, lög­maður Ísidórs, tók undir það. 

Sýndu enga iðrun

Í dómnum stendur að „við ákvörðun refs­ingar ákærðu verður litið til þess að um stór­felld vopna­lag­brot“ sé að ræða. Kemur einnig fram að þeir hafi „að miklu leyti neitað sök og ekki sýnt neina iðrun. Við matið vegur þungt að ákærðu ráku skipu­lagða starf­semi og fram­leiddu órekj­an­leg og stór­hættu­leg vopn sem þeir seldu í ágóða­skyni hverjum sem kaupa vildi.“

„Þá hafði ákærði Sindri komið sér upp afar hættu­legum vopnum og aukið hættu­eig­in­leika fyrr­greinds AR15 riff­ils veru­lega með því að gera hann hálf­sjálf­virkan, auk þess sem ákærðu reyndu að gera vopnið alsjálf­virkt með svoköll­uðum swift link bún­aði. Vopna­laga­brot ákærðu eru stór­felld og for­dæma­laus að alvar­leika. Til mild­unar refs­ingar horfir hins vegar að þeir hafa játað brot sín að hluta og hafa engan eða tak­mark­aðan saka­feril.“

Sindri neit­aði því stað­fast­lega að fyrir honum hafi vakað að fremja hryðju­verk og kvaðst ekk­ert hafa aðhafst sem gæti leitt til þeirrar álykt­unar að hann hafi verið í þann mund í fremja slíka árás eða verið að und­ir­búa slíkt. Í dómnum segir að hann hafi þó illa getað útskýrt ýmsar athafnir sínar sem raktar eru í síð­ari ákærunni. „Fyrir liggur að ákærði Sindri hafði komið sér upp hættu­legum vopnum og breytt einu þeirra í hálf­sjálf­virkt skot­vopn. Hann hafði einnig undir höndum 100 skota skot­geymi og mikið magn skot­færa. Þá liggur fyrir að ákærðu útbjuggu svo­kall­aðan swift link, sem getur breytt vopn­inu úr því að vera hálf­sjálf­virkt í að vera alsjálf­virkt, sem reynd­ist að vísu ónot­hæfur. Ekki er ástæða til að draga í efa skýrslur lög­reglu um að vopnið af gerð­inni AR-15 hafi verið hálf­sjálf­virkt er hald var lagt á það við hús­leit á heim­ili ákærða Sindra. Flestar fram­an­greindar athafnir ákærða áttu sér stað yfir sum­arið 2022 og virð­ist af gögnum máls­ins sem þær hafi náð ákveðnu hámarki í ágúst­mán­uði. Síðustu tvær vikur fyrir hand­töku ákærða virð­ist þó sem dregið hafi úr sam­ræðum ákærðu sem tengj­ast sak­ar­efn­inu.“

Þegar allar for­sendur máls­ins væru skoð­aðar leit dóm­ur­inn svo á að það hafi verið „ákveðnar líkur að ákærði hafi haft ein­hvers konar ill­virki í huga, þótt ekki liggi nákvæm­lega fyrir hvert skot­mark hans hefði orðið, hvar eða hvenær.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    https://www.youtube.com/watch?v=C8V66bxvM2Q
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Hemmi með sólheimaglottið 3x27 kemur hvergi fram hverjir það eru sem eru að leigja úgandabörnin og með hvaða þýfi þeir borga fyrir herlegheitin og leigja úgandabörnin í svona grafalvarlegan kjánagang og fyrir hvaða þýfi úr hruninu né heldur hvað þessir einu sönnu glæpatrúðar Íslands eru búnir að kaupa mörg sakamál frá hruni svo ekki sé nú minnst á fyrir hrun ógn og skelfing. Svo lendir þetta á skattborgurum og tvö úgandabörn á leið í fangelsi og fíflin sem skipuleggja með fullt rassgat að þýfi í landrover úr mosó.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár