„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“ - Ákæran í heild sinni

Sindri Snær Birg­is­son hafði í hyggju að dul­búa sig sem lög­reglu­mann þegar hann fremdi hryðju­verk, eins og fram kemur í ákæru, líkt og fjöldamorð­ing­inn Breivik gerði fyrir hryðju­verkin í Útey. Sindri fór ásamt Ísidóri Nathans­syni að skoða Tetra tal­stöðvar til að full­komna lög­reglu­bún­ing­inn. Við fyr­ir­töku máls hér­aðs­sak­sókn­ara gegn þeim neit­uðu þeir báðir að hafa verið að skipu­leggja hryðju­verk. Ný ákæra er mun ítar­legri en sú fyrri.

„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“ - Ákæran í heild sinni
Sindri Snær Birg­is­son og Ísidór Nathans­son hafa verið ákærðir að nýju. Mynd: Samsett / Heimildin

Sindri Snær Birg­is­son lofar hryðju­verka­mann­inn og fjöldamorð­ingj­ann Omar Mateen í einka­skila­boðum til Ísidórs Nathans­sonar fimmtu­dag­inn 11. ágúst 2022 með orð­unum. „Omar Mateen er hetjan mín - Hann náði 40 manns á 5 mín með 200 skotum - Nokkuð gott - Hann drap rest með glock inni á bað­her­bergi [...] Ef hann hefði bara verið með nikótín.“ Þessu svarar Ísidór og segir: „Getum ekki öll verið full­komin ): “

Þetta kemur fram í nýrri ákæru gegn Sindra og Ísidóri sem var þing­fest í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á mánu­dag. Nýja ákæran er mun ítar­legri en sú fyrri sem var vísað frá, bæði í hér­aði og Lands­rétti. Þeir neit­uðu báðir sök fyrir dómi en aðal­með­ferð fer fram í sept­em­ber.

Ætlaði að dulbúa sig sem lögreglumann

Sindri er ákærður „fyrir til­raun til hryðju­verka, með því að hafa ákveðið að valda, með skot- og/eða sprengju­árás, hér á landi, ótil­greindum hópi fólks, á ótil­greindum stað og tíma, bana eða stór­felldu lík­ams­tjóni eða stefna lífi þeirra í hættu með stór­felldum eigna­spjöllum, í þeim til­gangi að valda almenn­ingi veru­legum ótta og veikja eða skaða stjór­skipun og þjóð­fé­lags­legar und­ir­stöður rík­is­ins. Ásetning sinn til hryðju­verka sýndi ákærði ótví­rætt í verki á tíma­bil­inu maí til sept­em­ber 2022“ og síðan er rakið nánar á tíu blað­síðum hvernig hann hafi gert það. 

Hryðju­verkin hafi hann ætlað að fremja dul­bú­inn sem lög­reglu­maður. Í tölvu­sam­skiptum er þeim Sindra og Ísidóri tíð­rætt um ýmsa þekkta hryðju­verka­menn og fjöldamorð­ingja, til að mynda Anders Behring Breivik sem drap 77 manns í hryðju­verka­árásum í Osló og Útey árið 2011. Fjöldamorðin framdi Breivik dul­bú­inn sem lög­reglu­maður til að fólk teldi sér ekki standa ógn af honum.

Ísidór er ákærður „fyrir hlut­deild í ofan­greindu broti Sindra, með lið­sinni í orði og verki“ til að mynda með því að aðstoða hann við kaup á skot­færum í árás­ar­riffl­ana AR-15 og AK47 „vit­andi að með­á­kærði Sindri hafði í hyggju að fremja hryðju­verk“, með því að „senda til Sindra, á dulkóð­aða sam­skipta­for­rit­inu Signal, hvatn­ingu og und­ir­róður um að fremja hryðju­verk“, aðstoða hann við öflun lög­reglu­bún­aðar og lög­reglu­fatn­aðar og „miðla til hans efni og upp­lýs­ingum um þekkta hryðju­verka­menn, hug­mynda­fræði, und­ir­bún­ing og verkn­að­ar­að­ferðir þeirra“ auk upp­lýs­inga um sprengju- og dróna­gerð. Alls er ákæran gegn þeim tólf blað­síður.

AR-15 riff­ill

Rifflarnir algengir í hryðjuverkum og stríðsrekstri

Sunnu­dag­inn 31. júlí í fyrra sendi Sindri skila­boð til Ísidórs og segir: „Fokk hvað ég er reiður út í fólk núna.“ Hann bætir við: „Shit hvað það var komið illa fram við mig í gær.“ og segir síðan: „Ég er á grens­unni að fremja fjöldamorð bara núna.“

„Fokk hvað ég er reiður út í fólk núna“
Sindri Snær Birg­is­son

Samkvæmt ákæru útveg­aði Sindri sér árás­ar­rifl­anna í júní 2022, keypti í þá skot­færi og breytti AR-15 riffl­inum úr hand­hlöðnum riffli í hálf­sjálf­virkan riffil. Þá hafi hann þrí­vídd­ar­prentað íhlut með það fyrir augum að breyta vopn­inu úr hálf­sjálf­virku vopni í sjálf­virkt skot­vopn. Þegar riffill­inn er hálf­sjálf­virkur þarf að ýta á  gikk­inn fyrir hvert skot en skot­geymir­inn inni­heldur yfir­leitt 30 skot. Ef riffill­inn er sjálf­virkur þarf hins vegar aðeins að ýta einu sinni á gikk­inn og halda honum inni til að skjóta öllum skot­unum úr skot­geym­inum. 

Samtök banda­rískra byssu­eig­enda hafa kallað AR-15 „vin­sælasta riffil Banda­ríkj­anna.“ Fyrr á þessu ári greindi The Washington Post frá því að AR-15 rifflar hefðu verið not­aðir í 10 af 17 mann­skæð­ustu skotárás­unum í Banda­ríkj­unum. Rifill­inn var til að mynda not­aður í hryðju­verk­unum í Uvalde í Texas þar sem 19 börn og tveir kenn­arar voru myrt, og 17 særð­ust. 

NY Post birti árið 2016 grein­ina „How the AK-47 and AR-15 Evolved Into Rifles of Choice for Mass Shooting“ eða Hvernig AK-47 og AR-15 urðu fyrsta val fyrir fjölda­skotárásir. 

AK-47 getur skotið 600 skotum á mín­útu.

AK-47 rifflar voru not­aðir í Víet­man­stríð­inu, þeir voru not­aðir af Rússum og Kín­verjum í Kalda stríð­inu, og eru not­aðir bæði af Rússum og Úkra­ínu­mönnum í stríð­inu sem nú geisar. AK-47 getur skotið 600 skotum á mín­útu. 

AK-47

Ítarleg leit að lögregluútbúnaði

Mánu­dag­inn 1. ágúst 2022 ræða Sindri og Ísidór um lög­reglu­búnað og lög­reglu­fatnað, og senda milli sín vef­slóðir á síður þar sem hægt er að kaupa slíkan búnað og fatnað, að því er fram kemur í ákæru. Sindri Snær segir: „þetta með tetra tal­stöð væri svo spot on [...] 99% myndi trúa því að þú værir lögga ef þú segðir það upp­hátt í þessum galla [...] þau þurfa bara að trúa því í max 10 sek [...] það er eng­inn að fara að getað stoppað mig.“ Ísidór svarar: „jájá we get it Breivik.“

Seinna í ágúst­mán­uði sendir Sindri skila­boð til Ísidórs og biður hann að óska eftir lög­reglu­fatn­aði á sam­skipta­for­rit­inu Telegram: „Þá helst buxur, treyju, bolur og jakki.“ Þegar Ísidór spyr hvort þetta eigi bara að vera fyrir Sindra svarar hann: „Neinei eins mikið af fötum og við komumst í - Ég bara verð að eign­ast.“

Sindri virð­ist hafa varið þónokkrum tíma í að finna upp­lýs­ingar um og verða sér úti um lög­reglu­fatnað og annan lög­reglu­búnað sem geri honum kleift að dul­bú­ast sem lög­reglu­maður. Í ákærunni kemur fram að hann hafi tekið ljós­mynd af ein­kenn­is­klæddum lög­reglu­manni og nær­mynd af skó­bún­aði hans og end­ur­skini á neð­an­verðum buxna­skálm­unum, og sendi Ísidóri slíka mynd. Þá leit­aði hann á net­inu að efni tengdu end­ur­skins­efni fyrir lög­reglu­menn, sams­konar því sem er á íslenska lög­reglu­bún­ingnum. Einnig hafi hann leitað að upp­lýs­ingum um skot­held vesti, aðgerða­búnað lög­reglu og Tetra hand­tal­stöðvar, og að Sindri og Ísidór hafi farið saman í verslun að skoða slíkar stöðvar. 

Í ákærunni segir einnig að Sindri hafi vistað skjá­skot úr stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni sem Breivik sendi frá sér fyrir fjöldamorðin, svoköll­uðu man­i­festo, þar sem fjallað er um ein­kenn­is­fatnað fyrir Breivik og þá sem aðhyll­ast hug­mynda­fræði hans. 

Vildu senda sprengjudróna á opinberar stofnanir

Sunnu­dag­inn 28. ágúst sendi Sindri skila­boð þar sem hann, sam­kvæmt ákæru, leggur á ráðin að nota dróna til sprengju­árása: „Ég var að fá svaaaa­aka hug­mynd.“ Ísidór segir: „bring it.“ Og Sindri segir frá hug­mynd­inni: „Nú hættum við að prenta byssur og byrjum að prenda dro­nea - kaupum kína­sull í þá og sprengi­efni.“ Hann bætir síðan við: „úfff - það yrði sko frétta­efni.“ Ísidór bendir á að þeir gætu þá sent slíkan dróna á Alþingi, á lög­reglu­stöð­ina og heim til Gunnars Smára Egils­sonar, stjórn­ar­for­manns Sós­í­alista­flokks­ins. 

Sindri bætir við að hann myndi líka vilja senda dróna í dóms­mála­ráðu­neytið. Þeir deila síðan upp­lýs­ingum um hvernig eigi að smíða dróna, og tala um að fá á Google Earth GPS-hnit stað­anna sem þeir vilji senda sprengju­drón­ana á. 

„Það væri frétta­efni að senda 5 stk út í einu alla á mis­mun­andi staði - heims­frétta­efni“
Sindri Snær Birg­is­son

„Ætlarðu að reikna flight time deilt með hvenær í and­skot­anum gulli utan­rík­is­ráð­herra labbar inní alþingi?“ spyr Ísidór, og á þar vænt­an­lega við Guðlaug Þór Þórð­ar­son sem þarna var raunar orð­inn umhverfis- og auð­linda­ráð­herra,  en Sindri segir: „Þetta þarf ekki að vera svo útpælt - mað­ur­inn labbar utandyra líka.“

Stuttu síðar í sam­tal­inu segir Sindri: „það væri frétta­efni að senda 5 stk út í einu alla á mis­mun­andi staði - heims­frétta­efni.“ Sem kunn­ugt er skildi Breivik eftir bíl hlað­inn sprengi­efni við inn­gang bygg­ingar í Osló þar sem skrif­stofa Jens Stol­ten­berg, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, var til húsa í því skyni að spreng­ingin þar myndi fá alla athygli við­bragðs­að­ila á meðan hann sjálfur væri að fremja fjöldamorðin í Útey og gæti hann þannig valdið meiri skaða með því að dreifa athygli lög­regl­unnar. 

Í eitt skiptið sem þeir ræða saman hvetur Ísidór Sindra til að vera ekki hvat­vísan og bendir á að Breivik og Brenton Harrison Tarrant sem myrti 51 í hryðju­verka­árásum í moskum í Christchurch, Nýja Sjálandi, hafi verið í mörg ár að plana sín hryðju­verk. Tarrant not­aði AK-15 riffil í annarri skotárásinni, mögu­lega báðum. Sindri svarar: „ég þarf ekki nema 3 mán­uði - ég veit alveg hvar ég um stri­kea.“ Ísidór bendir þá á að það séu fjórir mán­uðir í jólin og Sindri svarar: „ég fer nú ekki að kála fólki á jól­unum.“

Fyrstu menn grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk

Nýr veru­leiki blasti við Íslend­ingum þegar lög­reglan hélt blaða­manna­fund þann 22. sept­em­ber í fyrra og greindi frá því að tveir menn hefðu verið úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald vegna gruns um að þeir væru að und­ir­búa hryðju­verk sem áttu að bein­ast gegn borg­urum og stofn­unum rík­is­ins. Aldrei áður hafði neinn verið í varð­haldi hér á landi grun­aður um að und­ir­búa hryðju­verk og sagði BBC til að mynda frá þessum tíð­indum í sjón­varps­fréttum. 

Sindri og Ísidór voru brátt nafn­greindir en ýmsir létu að því liggja, til að mynda lög­menn þeirra, að engin alvara væri þarna að baki og að of mikið væri gert úr mál­inu af hálfu lög­reglu. Þetta var síðar sagt meðal ann­ars eiga sér stoð í því að ákærum gegn þeim var vísað frá. Nú hefur þeim verið birt mun ítar­legri ákæra þar sem nánar er farið í það sem þeir eru sak­aðir um og virð­ist málið því mun alvar­legra en áður hafði komið fram í fréttum. 

Hér að neðan má sjá ákæruna í heild sinni. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár