Dæmdir fyrir vopnalagabrot en sýknaðir af tilraun til hryðjuverka

Dómur féll í hryðju­verka­mál­inu í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem Sindri Snær Birg­is­son og Ísidór Nathans­son hlutu dóma fyrir vopna­laga­brot. Þeir voru hins vegar sýkn­aðir af til­raun til hryðju­verka.

Dæmdir fyrir vopnalagabrot en sýknaðir af tilraun til hryðjuverka

Dómur féll í hryðju­verka­mál­inu svo­kall­aða klukkan eitt í dag. Hlaut Sindri Snær Birg­is­son 24 mán­aða fang­els­is­dóm og Ísidór Nathans­son hlaut 18 mán­aða fang­els­is­dóm. „Gæslu­varð­hald sem þeir hafa sætt verður dregið frá refs­ing­unni,“ kemur fram á Vísi. Þeir eru sýkn­aðir af til­raun til hryðju­verka en sakfeldir fyrir vopna­laga­brot. 

Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður Sindra, sagði að dóm­ur­inn verði afplán­aður í gegnum Sam­fé­lags­þjón­ustu.

Sindri var ákærður „fyrir til­raun til hryðju­verka, með því að hafa ákveðið að valda, með skot- og/eða sprengju­árás, hér á landi, ótil­greindum hópi fólks, á ótil­greindum stað og tíma, bana eða stór­felldu lík­ams­tjóni eða stefna lífi þeirra í hættu með stór­felldum eigna­spjöllum, í þeim til­gangi að valda almenn­ingi veru­legum ótta og veikja eða skaða stjór­skipun og þjóð­fé­lags­legar und­ir­stöður rík­is­ins. Ásetning sinn til hryðju­verka sýndi ákærði ótví­rætt í verki á tíma­bil­inu maí til sept­em­ber 2022.“ Er það rakið nánar á tíu blað­síðum hvernig hann hafi gert það. 

Hryðju­verkin hafi hann ætlað að fremja dul­bú­inn sem lög­reglu­maður. Í tölvu­sam­skiptum er þeim Sindra og Ísidóri tíð­rætt um ýmsa þekkta hryðju­verka­menn og fjöldamorð­ingja, til að mynda Anders Behring Breivik sem drap 77 manns í hryðju­verka­árásum í Osló og Útey árið 2011. Fjöldamorðin framdi Breivik dul­bú­inn sem lög­reglu­maður til að fólk teldi sér ekki standa ógn af honum.

„Ég er búinn að missa allan áhuga á skot­vopnum,“ sagði Sindri fyrir dómi í febr­úar. Ísidór sagði að það hefði ekki hvarflað að honum á neinum tíma­punkti að það yrðu ein­hver voða­verk framin. 

Sveinn Andri Sveins­sonLögmaður Sindra.

Mála­rekstur ákæru­valds­ins byggði meðal ann­ars á sam­skiptum sem Sindri og Ísidór áttu á sam­skipta­for­rit­inu Signal þar sem rætt var um að drepa ýmist þekkt og hátt­sett fólk í íslensku sam­fé­lagi og ásetn­ing Sindra um að fremja ýmis konar hryðju­verk. 

Við aðal­með­ferð­ina sögð­ust þeir báðir sjá eftir þeim óvið­eig­andi skila­boðum sem fóru þeirra á milli. Hvorugur hafi meint það sem þeir skrif­uðu og þeir hafi sann­ar­lega ekki ætlað sér að drepa neinn. Þótt skoð­anir þeirra væru ólíkar skoð­unum þess fólks sem um var rætt þá stafi því fólki engin ógn af þeim. Um fífla­skap hafi verið að ræða, í ein­hverjum til­vikum eftir að umrætt fólk hafði verið í fréttum, hót­an­irnar því inn­an­tómar.

Sindri ját­aði sök að hluta og við­ur­kenndi að hafa fram­leitt 40 þrí­vídd­ar­prent­aða parta í byssur. 

„Ég held að það sé gríð­ar­legur léttir að þeir hafi verið hreins­aðir af þessum ásökum til hryðju­verka,“ sagði Sveinn Andri við blaða­menn fyrir utan dóms­sal. Sagði hann þetta vera óvenju alvar­leg vopna­laga­brot, „nátt­úru­lega fram­leiðsla á vopnum og fleira, breyt­ingar. En að öllu jöfnu á það ekki að þýða að okkar umbjóð­endur þurfa að afplána sína dóma í fang­elsi. Þeir eiga að geta tekið sína dóma út í sam­fé­lags­þjón­ustu.“

„Þetta er áfell­is­dómur fyrir ákæru­valdið,“ sagði Sveinn Andri. Einar Oddur Sig­urðs­son, lög­maður Ísidórs, tók undir það. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    3x27=helvíti væri nú gaman að afhjúpa þessa glæpatrúða sem bera ábyrgð á mörgum af þessum sönnu íslensku sakamálum algjörir sérfræðingar í leiksýningum engu öðru viss um að glæpum myndi fækka á íslandi um 70% ef þessir fávitar yrðu dregnir fram í dagsbirtuna. Þetta er hluti af valdakerfinu sem gömlu fíflin byggðu upp að koma reglulega með svona sýningar ógn og skelfing skrítið að engin blaðamaður hafi fattað það ennþá
    0
  • GHG
    Gunnar Hjalti Guðmundssson skrifaði
    Í greininni eru ekki reyfuð dómsorð varðandi ógnvekjandi orðræðu þeirra félaga. Svo virðist að þurft hefði að minnsta kosti tímasetta áætlun með skilgreindu skotmarki. Sakborningar virðast efniviður í hryðjuverkamenn samkvæmt dómsorðunum. Einungis er fjallað um háðslega framkomu verjanda. Saklausu drengirnir ættu að vera undir eftirliti fyrir lífstíð eftir ummælin sem féllu. Þeir eru hryðjuverkaógn.
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Er ekki hægt að marka það sem fólk segir - þangað til það framfylgir því?
    Ég skora á heimildina að fylgja þessu máli eftir með viðtölum við fróða menn á þessu sviði. Það hlaðast upp urmull af spurningum: Er hryðjuverkalöggjöfin ófullkomin? Var málið illa unnið af hálfu ákæruvaldsins? Er íslenska dómskerfið of lint?
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Nei það er ekki alltaf að marka það sem fólk segir. Prófaðu að hlusta á stjórnmálamenn og fylgjast svo með því hvað þeir gera og gera ekki.

      Ef maður segir við mann í tveggja manna tali að hann vilji gera eitthvað á einhverjum stað á einhverjum tíma. Getur það þá verið refisvert ef hann framkvæmir það aldrei? Eru "hugsanaglæpir" refsiverðir samkvæmt íslenskum lögum?
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár