Segja að ríkisstjórnin verði að „falla frá öllum áætlunum um frekari sölu Íslandsbanka“

Íslands­deild Transparency International segir að rík­is­stjórnin hafi aldrei haft traust né stuðn­ing almenn­ings til að selja Íslands­banka. Ann­markar á fyrra sölu­ferli hafi verið afleið­inga af „alvar­legri spill­ingu“.

Segja að ríkisstjórnin verði að „falla frá öllum áætlunum um frekari sölu Íslandsbanka“
Höf­uð­stöðvar Íslenska ríkið áformar að selja eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka á næstu tveimur árum. Mynd: Íslandsbanki

„Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur verður að falla frá öllum áætl­unum um frek­ari sölu Íslands­banka. Rík­is­stjórnin hafði aldrei traust né stuðn­ing almenn­ings til þess. Þeir stór­kost­legu ann­markar, sem verið hafa á sölu banka í eigu almenn­ings á Íslandi, hafa aug­ljós­lega verið afleið­ing af alvar­legri spill­ingu, þ.m.t. póli­tískri spill­ingu.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Íslands­deildar Transparency International um drög að frum­varpi um ráð­stöfun eign­ar­hlutar rík­is­ins í Íslands­banka. Frum­varp­inu er ætlað að koma á nýju fyr­ir­komu­lagi við sölu á eft­ir­stand­andi 42,5 pró­sent hlut rík­is­ins í bank­anum þar sem Banka­sýsla rík­is­ins er ekki lengur með hlut­verk við söl­una og sér­stak­lega tekið fram að Íslands­banki megi ekki koma að sölu í sjálfum sér. Þess í stað verður það Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sem fær heim­ild til að …

Kjósa
53
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Látum ekki ræna okkur. Misvitrir stjórnmálamenn hafa enga heimild til að ræna okkur. Nýju stjórnarskrána í gildi, núna eða strax!
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það er feikna mikilvægt að almenningur sem á stærstan hlut í Íslandsbanka í gegnum ríkissjóð og eftirlaunasjóði, sem fá ARÐGREIÐSLURNAR nánast óskiptar nú þegar, það er nákvæmlega engin ÁHÆTTA fyrir almenning/ríkissjóð/eftirlaunasjóði að eiga banka í einokunar og fákeppnis umhverfi áhættan er 0, það er hinsvegar OFSA áhætta fyrir almenning ef t.d. Samherji kaupir stóran hlut í banka, það fengum við í andlitið 2008.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár