Reglur um sérstakt hæfi munu ekki gilda um næstu Íslandsbankasölu
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir tók ekki ein­ungis við blómum og lyklunum að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu 14. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hún tók líka við því verk­efni að reyna að selja eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka og leysa ÍL-sjóðs vand­ann. Fyr­ir­liggj­andi frum­varps­drög eiga að gera bæði. Mynd: Stjórnarráðið

Reglur um sérstakt hæfi munu ekki gilda um næstu Íslandsbankasölu

Líf­eyr­is­sjóðir munu geta greitt fyrir hluti í Íslands­banka með ÍL-sjóðs­bréfum. Degi eftir að frum­varps­drög um sölu á hlutum í Íslands­banka voru birt ákváðu 18 líf­eyr­is­sjóðir að ganga til samn­inga við ríkið um upp­gjör á ÍL-bréf­unum. Íslands­banki fær ekki að taka þátt í sölu­ferl­inu á sjálfum sér.

Ákvæði þess kafla stjórn­sýslu­laga sem fjallar um sér­stakt hæfi til með­ferðar mála mun ekki gilda þegar næstu skref í sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka verða stigin, svo lengi sem selt verði með svoköll­uðu mark­aðs­settu útboði. Í því felst að allir fjár­festar, bæði almennir og fag­fjár­festar, hafi tæki­færi til að kaupa hlut í bank­anum í opnu sölu­ferli. 

Í grein­ar­gerð draga að frum­varpi um ráð­stöfun eign­ar­hlutar íslenska rík­is­ins í Íslands­banka, sem nú er til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, kemur fram að mark­aðs­sett útboð sé þess eðlis að ekki verði talin hætta á að „ómál­efna­leg sjón­ar­mið ráði för við ákvarð­ana­töku“ við sölu á hlut í bank­anum. „Til að taka af allan vafa þar um þykir rétt að kveða með beinum hætti á um að hæf­is­regl­urnar komi ekki til skoð­unar ef um mark­aðs­sett útboð í skiln­ingi frum­varps­ins er að ræða, sbr. ábend­ingar í áliti umboðs­manns Alþingis frá 5. októ­ber 2023 í máli …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár