Tilfinningatjón í úthverfinu

Leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir rýnir í verk sem kannski má kalla glymskratta­söng­leik og er nú á fjölum Borg­ar­leik­húss­ins. Það er verkið: Eitruð lítil pilla.

Tilfinningatjón í úthverfinu
Eitruð lítil pilla Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir fær þakið til að rifna af Borg­ar­leik­hús­inu. Mynd: Borgarleikhúsið
Leikhús

Eitruð lítil pilla

Niðurstaða:

Eitruð lítil pilla

Borgarleikhúsið

Höfundur: Diablo Cody

Tónlist: Alanis Morissette og Glen Ballard

Söngtextar: Alanis Morissette

Þýðendur: Ingólfur Eiríksson og Matthías Tryggvi Haraldsson

Leikstjórn: Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Leikarar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Aldís Amah Hamilton, Sigurður Ingvarsson, Valur Freyr Einarsson, Íris Tanja Flygenring, Rán Ragnarsdóttir / Elín Hall, Haraldur Ari Stefánsson, Sölvi Dýrfjörð, Birna Pétursdóttir, Esther Talía Casey, Hannes Þór Egilsson, Hákon Jóhannesson, Marínó Máni Mabazza, Rakel Ýr Stefánsdóttir og Védís Kjartansdóttir

Tónlistarstjórn: Karl Olgeirsson

Danshöfundur: Saga Kjerúlf Sigurðardóttir

Leikmynd, myndbandahönnun og teikningar: Eva Signý Berger

Búningar: Karen Briem

Lýsing: Pálmi Jónsson

Aðstoð við myndbandahönnun og grafík: Elmar Þórarinsson

Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson

Leikgervi: Andrea Ruth Andrésdóttir og Hildur Emilsdóttir

Viðbótartónlist: Michael Farrell og Guy Sigsworth

Hljómsveit: Karl Olgerisson, Tómas Jónsson, Stefán Már Magnússon, Þorbjörn Sigurðsson, Ingibjörg Elsa Turchi, Þorvaldur Þór Þorvaldsson og Sam Pegg

Gefðu umsögn

Árið 1995 kom út hljóm­plata sem átti eftir að umbreyta tíunda ára­tugnum. Alanis Moris­sette fang­aði til­finn­inga­óreiðu heillar kyn­slóðar ungra kvenna með Jagged Little Pill, kyn­slóðar sem barð­ist á móti íhalds­semi níunda ára­tug­ar­ins og í leit að frelsi til að vera þær sjálfar.

Höf­und­inum, Diablo Cody, var falið að koma plötu Moris­sette fyrir í ein­hvers konar sögu­þráð og ein­hvers konar glymskratta­söng­leikur varð nið­ur­staðan. Flest lögin eru af sam­nefndri plötu en sam­tín­ingur af seinni lögum hennar rata líka inn. Tvö lög voru skrifuð sér­stak­lega af Moris­sette fyrir söng­leik­inn; Brosi og Gerandi.

Eitruð lítil pilla fjallar um vísi­tölu­fjöl­skyldu í úthverfi sem virð­ist vera með allt á hreinu. Hjónin Mary Jane og Steve Healy eiga tvo ung­linga sem standa á þrös­k­uldi full­orð­ins­ár­anna. Nick, sá eldri, var að kom­ast inn í Harvard og er sjá­aldur auga móður sinnar. Frankie, sú yngri, er að reyna að fóta sig í til­ver­unni með bar­átt­una að vopni. En ekki er allt sem sýn­ist. Eftir bílslys ánetj­að­ist Mary Jane verkja­lyfjum, Steve flýr í vinn­una sem hann for­gangs­raðar á undan fjöl­skyld­unni, Frankie er í stöðugri upp­reisn og eftir situr Nick sem vill öllum geðj­ast en kann ekki að standa með sjálfum sér.

Kynþáttafordómar, kynhneigð og kynferðisofbeldi

Eins og áður sagði var tón­list Moris­sette sem heróp fyrir ungar konur. Aug­ljós­asti far­veg­ur­inn fyrir söng­leik­inn væri að fylgja þessum áherslum og miða sviðs­ljós­inu á Frankie, ungri konu í leit að sam­fé­lags­legum sama­stað. Aftur á móti virð­ist Cody upp­tekn­ari af og hafa meiri áhuga á sögu Mary Jane, mið­aldra konu sem er þannig aðþrengd að hún er að kafna án þess að taka eftir því. Þannig þvælist sögu­þráð­ur­inn milli heima hinna full­orðnu og unga fólks­ins án þess að ná fót­festu. Mikilvæg mál­efni á borð við kyn­þátta­for­dóma, kyn­hneigð og kyn­ferð­is­of­beldi koma öll við sögu, sum á áhrifa­rík­ari hátt en önnur.

Eitruð lítil pilla er stærsta sýn­ing Borg­ar­leik­húss­ins á þessu leik­ári. Til þess að svið­setja erlendan söng­leik af slíkri stærð­argráðu verður þýð­ingin að vera í lagi.  Að þýða erlenda popp­laga­texta yfir á íslensku er meiri háttar verk­efni, text­inn verður að smella við tón­list­ina og ekki síður vera leik- og söng­bær. Þórarinn Eldjárn setti markið hátt með frá­bærri þýð­ingu sinni á lögum ABBA á sínum tíma. Ingólfur Eiríks­son og Matthías Tryggvi Har­alds­son stand­ast því miður ekki kröf­urnar. Söng­textar og tal­mál sýn­ing­ar­innar eru óþjál, gera leik­urum erfitt fyrir í túlkun, til dæmis í lag­inu Svo ósexí, og setja stein í veg áhorf­enda til að upp­lifa sýn­ing­una.

Jóhanna Vigdís á heimsmælikvarða

Eftir alltof langa fjar­veru snýr Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir aftur í leik­húsið, á stóra sviðið þar sem hún á heima. Þvílík end­ur­koma! Hún hefur engu gleymt og stað­festir stöðu sína sem söng­leikja­drottn­ing Íslands, jafn­vel þótt víðar væri leitað. Slíkur er kraft­ur­inn, nær­veran og söng­ur­inn, á heims­mæli­kvarða. Hún syngur ekki feil­nótu, hvert stór­kost­lega söng­at­riðið rekur annað og þegar mikið liggur við til­finn­inga­lega þá finnur hún stöðugt nýjar túlk­un­ar­leiðir. Í hennar höndum er þrauta­ganga Mary Jane á epískum skala þar sem harm­leikur og húmor mæt­ast í söng.

Aldís Amah Hamilton hefur sömu­leiðis verið fjar­ver­andi leik­svið­inu sem er synd enda hæfi­leik­a­rík leik­kona. Hún gerir ágæt­lega í tak­mörk­uðu hlut­verki. Frankie er skil­greind sem aðal­per­sóna en hennar átök virð­ast minni háttar í sam­an­burði við aðra. Gæta mátti óör­yggis í frammi­stöðu Aldísar á frum­sýn­ingu sem birt­ist aðal­lega í radd­styrk, kannski ekki að undra enda er þetta hennar fyrsta söng­hlut­verk.

„Eitruð lítil pilla er stærsta sýn­ing Borg­ar­leik­húss­ins á þessu leik­ári“

Upp­götvun kvölds­ins var hinn til­tölu­lega nýút­skrif­aði Sigurður Ingv­ars­son í hlut­verki hins vand­ræða­lausa Nick, drauma­drengs­ins sem gerir allt rétt. Frá fyrsta lagi, Bestur, sýnir Sigurður stað­festu og þroska sem birt­ist bæði í leik og söng. Valur Freyr Ein­ars­son fyllir fal­lega upp í fjöl­skyldu­kvar­tett­inn sem hinn umkomu­lausi og and­lega fjar­ver­andi Steve, þar stendur upp úr fyrsta senan eftir hlé þegar hjónin leita til hjóna­bands­ráð­gjafa.  

Óstýrilátur söngleikur

Íris Tanja Flygenring leikur Jo, kynsegin ein­stak­ling með munn­inn fyrir neðan nefið og hefur upp raust sína á eft­ir­minni­legan hátt. Einnig á nýlið­inn Rán Ragn­ars­dóttir mjög góða spretti í hlut­verki Bellu sem verður fyrir hrotta­legu ofbeldi en finnur styrk til að láta í sér heyra. Í minni hlut­verkum eru Birna Pét­urs­dóttir og Esther Talía Casey eft­ir­minni­leg­astar, hvor á sína vegu, en báðar með rödd­ina og kímni­gáf­una alveg á hreinu. Stór hluti leik­hóps­ins er sam­an­settur af ungu fólki sem orkar vel á sýn­ing­una, hlut­verkin eru kannski ekki beint áhuga­verð en þau finna styrk í hópsen­unum.

Gaman er að sjá list­rænt teymi í sýn­ingu af þess­ari stærð­argráðu þar sem flestir stóru póst­arnir eru skip­aðir konum. Leik­stjór­inn Álfrún Helga Örn­ólfs­dóttir heldur um stjórn­ar­taumana sem renna henni stundum úr greipum enda söng­leik­ur­inn óstýri­látur. Skyn­sam­lega ákveður hún að flysja í burt mikið af amer­íska raun­veru­leik­anum, skapa óræð­ari heim og setur þannig fókus á per­sónu­legar sögur. Heild­ar­myndin er burðug en ein­staka atriði virka ekki sem skyldi, þar á meðal flótti Frankie til New York og svið­setn­ingin á stóra núm­eri Jo þar sem Frankie er bók­staf­lega komið fyrir úti í sal.

„Jóhanna Vigdís er bjarg­vættur sýn­ing­ar­innar með frammi­stöðu sem fer í sögu­bæk­urnar“

Rífur þakið af Borgarleikhúsinu

Leikmynd Evu Signýjar Berger er hrátt neon­lista­verk, sam­an­sett af fær­an­legum vinnupöllum og risa­stórum skjáum sem ýta sög­unni áfram og glæða lífi í stundum þung­lama­legan text­ann. Meiri ringul­reið er að gæta í bún­inga­hönnun Karenar Briem sem er mik­il­feng­leg og æpandi frum­leg í allri sinni lita­dýrð en stundum svo áber­andi að erfitt er að ná ein­beit­ingu. Álíka ringul­reið ein­kennir hreyf­ingar Sögu Kjerúlf Sig­urð­ar­dóttur. Dans­hönn­unin er svo sann­ar­lega kraft­mikil en kao­tísk á köflum. Þeirra sam­vinna nær list­rænum hápunkti í Fyr­ir­gefið, en þá er það fít­ons­kraftur Jóhönnu Vigdísar sem setur list­rænu frum­efnin á réttan spor­baug.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft er Eitruð lítil pilla ekki endi­lega góður söng­leikja­pappír en inni­heldur mik­il­væg skila­boð um umburð­ar­lyndi, fjöl­breyti­leika og felu­leiki hvers­dags­leik­ans. Listræna teymið gerir margt vel til að lyfta verk­inu upp á hærra plan, fyrir utan mis­heppn­aða þýð­ingu, og hljóm­sveitin styður þétt við sýn­ing­una. En Jóhanna Vigdís er bjarg­vættur sýn­ing­ar­innar með frammi­stöðu sem fer í sögu­bæk­urnar. Hún þenur til­finn­inga­taug­arnar, syngur eins og fall­inn eng­ill og rífur þakið af Borg­ar­leik­hús­inu.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár