Þjóðarréttur fyrir Hæstarétt

Indversk mat­ar­gerð er þekkt víða um heim og heiti margra rétta frá fjöl­menn­asta ríki heims lætur kunn­ug­lega í eyrum. Ef hægt er að tala um ind­verskan þjóð­ar­rétt verður rauð­gulur og bragð­mildur réttur oft fyrir val­inu. Nú er deilt um hver eigi heið­ur­inn af þessum rétti.

Eftir lok heims­styrj­ald­ar­innar síð­ari stóð efna­hagur Breta ótraustum fótum. Meðal þess sem bresk stjórn­völd gripu til í sparn­að­ar­skyni var að sleppa taki  á ýmsum nýlendum sínum og veita þeim sjálf­stæði. Árið 1947 var ákveðið að kljúfa upp land­svæði sem nefnt var British India og til yrðu ann­ars vegar Pakistan og hins vegar Indland. Pakistan yrði land múslima og Indland land hindúa.

Til að ann­ast skipt­ingu og ákveða landa­mæri ríkj­anna fengu bresk stjórn­völd lög­fræð­ing, Cyril Radcliffe að nafni. Radcliffe hafði aldrei til Indlands komið og að eigin sögn aldrei austar en til Parísar. Honum var vandi á höndum og sagði sjálfur að hvernig svo sem skipt­ingin yrði myndi hún valda mis­klíð. Radcliffe kom til Indlands 8. júlí 1947 og fékk ein­ungis fimm vikur til að ákveða landa­mærin, sem síðar voru kölluð Radcliffe línan. Ástæða þess að tím­inn var svo knappur var að ákveðið hafði verið að 15. ágúst þetta sama ár færu Bretar með allt sitt frá Indlandi og þá yrði skipt­ingin að liggja fyrir og jafn­framt að þann dag yrði lýst yfir sjálf­stæði land­anna tveggja, Indlands og Pakistan.

Ótti Radcliffes við mis­klíð reynd­ist ekki ástæðu­laus og talið er að um það bil tvær millj­ónir hafi lát­ist í átökum um land­svæði og nauð­ung­ar­flutn­inga.

Flýðu til Delí

Í umrót­inu árið 1947 ákváðu tveir kunn­ingjar, sem báðir hétu Kundan að for­nafni, og bjuggu í Peshawar í norð­ur­hluta Pakistan, að flýja til Indlands. Þeir fóru 800 kíló­metra leið til Delí. Þeir voru báðir hindúar og höfðu feng­ist við veit­inga­rekstur í Peshawar. Eftir flutn­ing­inn til Delí opn­uðu þeir veit­inga­stað, sem þeir skírðu Moti Mahal.

Þeir félagar lögðu áherslu á rétti sem þekktir voru á Peshawar-svæð­inu en lítt þekktir í Delí og nágrenni. Þar á meðal hina svo­nefndu tandoori rétti, kjúkling sem steiktur var í leirofni. Rekst­ur­inn gekk frá upp­hafi vel og meðal fasta­gesta  var Jawaharlal Nehru, fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Indlands. Hann hafði sér­stakt dálæti á einum rétti sem í boði var á veit­inga­staðnum.

Þessi réttur, sem varð brátt eins konar ein­kenn­is­réttur stað­ar­ins, hét Murgh Maghani, betur þekktur undir nafn­inu Butter Chicken.

Allir vildu Lilju kveðið hafa

Setn­ingin hér að ofan vísar til Lilju Eysteins Ásgríms­sonar, eins merkasta helgi­kvæðis sem ort hefur verið á íslensku. Merk­ingin er auð­skilin, ef eitt­hvað lukk­ast vel vilja fleiri en einn gjarnan eigna sér heið­ur­inn. Þannig er það með hinn þekkta og vin­sæla rétt Murgh Maghani, Butter Chicken.

Þótt þeim félögum, Kundan Lal Gujral (1902–1997) og Kundan Lal Jaggi (1924–2018), hafi samið vel gekk afkom­end­unum ekki jafn vel að finna takt­inn og leiðir skildu að lokum. Og þá gerð­ist það að báðir vildu eigna sér heið­ur­inn af kjúklinga­rétt­inum vin­sæla.

Lal Gujral-útgáfan

Fjöl­skylda Kundan Lal Gujral hélt upp­haf­legu nafni veit­inga­stað­ar­ins, Moti Mahal. Eftir erf­ið­leika í lok síð­ustu aldar neydd­ist Lal Gujral-fjöl­skyldan til að selja fyr­ir­tækið en stofn­aði síðan annað fyr­ir­tæki undir sama nafni, nema nú hafði orðið delux bæst við.

Nú rekur fjöl­skyldan vel á þriðja tug veit­inga­staða á Indlandi og auk þess útibú í Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Monish Gujral, barna­barn stofn­and­ans, útskýrði til­urð Murgh Maghani fyrir blaða­manni: afa hug­kvæmd­ist, löngu áður en hann flutti til Delí, að steikja kjúkling í tandoori leirofni, sem áður var ein­göngu not­aður til að baka naan­brauð og parat­hi­brauð. Það að steikja kjúkling­inn í tandoori leirofn­inum gaf honum milt kola­bragð. Afi átti ekki kæli­skáp svo að kjúklingur sem ekki seld­ist þorn­aði og tap­aði bragð­inu. Afi fékk þá hug­mynd að „end­ur­lífga“ kjúkling­inn í sósu sem sam­an­stóð af tómatsósu og smjöri. „Þannig varð Murgh Maghani, Butter Chicken, til,“ sagði Monish Gujral.

Dæmigerð sósa á þessum tíma var brún, steiktur laukur, nellika, engi­fer, hvít­laukur og kar­demomma. „Afa fannst þessi sósa of sterk og þess vegna end­aði hann með þessa mildu krem­kenndu tómatsósu. Það er þessi sam­setn­ing sem hefur gert Murgh Maghani að þekktasta rétti Indlands.“

Lal Jaggi-útgáfan

Barna­börn Kundan Lal Jaggi reka í dag 6 veit­inga­staði undir nafn­inu Dar­yaganj. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2018. Á Dar­yaganj er boðið upp á leyni­upp­skriftir afa frá 1947, einkum og sér í lagi Murgh Mahani. Að sögn Raghav Jaggi, eins barna­barn­anna, í við­tali við dag­blaðið New York Times varð kjúklinga­rétt­ur­inn vin­sæli til í algjörri neyð. „Ein­hverju sinni var ekk­ert til heima hjá afa og ömmu í Peshawar annað en smá afgangur af tandoori kjúklingi. Afa datt þá í hug að setja afgang­inn af kjúklingnum í heima­lag­aða tómatsósu, sem hann bætti svo smjöri út í. Þar með var til orð­inn þessi sósa sem síðar varð svo fræg,“ sagði Raghav Jaggi.

Málið í höndum Hæstaréttar Indlands

Þegar eig­endur Dar­yaganj aug­lýstu að þar væri boðið upp á kjúkling sem eld­aður væri eftir hinni upp­runa­legu Murgh Maghani-upp­skrift var eig­endum Moti Mahal nóg boðið. Þeir ákváðu að stefna Dar­yaganj og krefj­ast þess að eig­endum yrði bannað að aug­lýsa að þeirra upp­skrift væri hin upp­runa­lega. Auk þess krefj­ast eig­endur Moti Mahal bóta sem jafn­gilda um það 32 millj­ónum íslenskra króna.

Málið hefur vakið athygli fjöl­miðla víða um heim og Monish Gujral, full­trúi stefn­enda, sagð­ist í við­tali við danska dag­blaðið Politi­ken að und­an­förnu hafa farið í um það bil þús­und við­töl vegna máls­ins. „þetta er spurn­ing um heiður, við­ur­kenn­ingu, pláss í sagn­fræði­ritum og auð­vitað pen­inga,“ sagði  Monish Gujral.
Ekki liggur fyrir hvenær málið verður tekið til með­ferðar í Hæsta­rétti Indlands en dóm­skjölin fylla 2.752 blað­síður.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár