72 dvalarleyfishafar komnir frá Gaza og á leið til Íslands

Íslensk stjórn­völd náðu í gær 72 ein­stak­lingum sem hafa íslenskt dval­ar­leyfi út af Gaza. Fólkið er komið til Kaíró í Egypta­landi en er á leið til Íslands. Íslensk stjórn­völd hafa sætt mik­illi gagn­rýni fyrir þann langa tíma sem tók að koma fólk­inu út af stríðs­hrjáðri Gaza-strönd­inni.

72 dvalarleyfishafar komnir frá Gaza og á leið til Íslands

Seint í gær­kvöldi fóru 72 ein­stak­lingar yfir landa­mærin frá Gaza yfir til Egypta­lands, fyrir til­stilli íslenskra stjórn­valda. Þetta fólk hefur þegar fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi. Í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að fólkið muni ferð­ast til Íslands. 

Ísraelsk stjórn­völd sam­þykktu um helg­ina þann nafna­lista sem íslensk stjórn­völd höfðu lagt fram um þá ein­stak­linga sem ættu rétt á búsetu á Íslandi, að því er segir í til­kynn­ing­unni. 

Íslensk stjórn­völd hafa sætt tölu­verðri gagn­rýni und­an­farið vegna þess langa tíma sem það hefur tekið að fá dval­ar­leyf­is­haf­ana út af Gaza-strönd­inni. Ísra­elski her­inn hefur látið sprengjum rigna um alla strönd­ina und­an­farna mán­uði, eða allt frá árás Hamas inn í Ísrael 7. októ­ber. 

Íslenskir sjálf­boða­liðar hafa síð­ustu vikur komið nokkrum fjölda fólks út af svæð­inu án aðstoðar íslenskra stjórn­valda. Fyrst náðu þær Kristín Eiríks­dóttir, María Lilja Þrast­ar­dóttir og Bergþóra Snæ­björns­dóttir móður og þremur sonum …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár