Flytja út rusl fyrir þrjá milljarða á ári

Kostn­aður Sorpu við að flytja út blandað rusl til brennslu í Svíþjóð mun nema um þremur millj­örðum króna árlega. Hingað til hefur þetta rusl verið urðað í Álfsnesi sem ekki stendur lengur til boða.

Flytja út rusl fyrir þrjá milljarða á ári
Urðun Sorpa tekur á móti rúm­lega 500 tonnum af rusli á dag. Tæplega helm­ingur þess er bland­aður úrgangur. Mynd: Sorpa

Í des­em­ber síð­ast­liðnum hóf Sorpa að flytja til útlanda bland­aðan úrgang til brennslu. Eftir útboð var samið við sænska fyr­ir­tækið Stena Recycling AB um að taka við og brenna 42 þús­und tonnum af blönd­uðum úrgangi á ári, úrgangi sem ann­ars hefði verið urð­aður í Álfsnesi. Kostn­aður Sorpu vegna þessa útflutn­ings mun nema rúmum 2,3 millj­örðum króna á árs­grund­velli, auk virð­is­auka­skatts eða tæpum þremur millj­örðum með virð­is­auka­skatti. 

Sorpa er í eigu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sam­kvæmt við­auka við sam­komu­lag eig­enda var urðun á blönd­uðum úrgangi hætt í Álfsnesi nú um ára­mótin. Lagst var í vinnu til að finna þessum málum betri far­veg, finna nýjan urð­un­ar­stað eða koma á lagg­irnar sorp­brennslu.

Nið­ur­staðan var þó að end­ingu sú, að minnsta kosti til næstu miss­era eða ára, að senda bland­aðan úrgang til brennslu í Svíþjóð. Slíkt er vissu­lega kostn­að­ar­samt en þó, út frá umhverf­is­sjón­ar­miðum, talið skömminni skárra en að urða þessa teg­und úrgangs áfram í Álfsnesi. Í sænsku sorp­brennsl­unni verður því íslenskt rusl að orku.

En af hverju ekki að reisa sorp­brennslu­stöð á Íslandi?

Þessu svar­aði sam­skipta- og þró­un­ar­stjóri Sorpu í aðsendri grein á Vísi.is nýlega. Vísaði hann til tveggja skýrslna sem skrif­aðar hafa verið um málið. „Í stuttu máli má segja að ákveðin atriði flæki og hægi á upp­bygg­ingu á sorp­brennslu á Íslandi. Það fyrsta er kostn­aður. Áætlaður kostn­aður við upp­bygg­ingu á sorp­brennslu sem gæti unnið orku úr öllu rusli á Íslandi sem á sér ekki skárri far­veg er á bil­inu 135-236 milljón evrur, sem jafn­gilti um 20-35 millj­örðum króna þegar fyrri skýrslan var gefin út.“

Þá hafi stjórn­endur og eig­endur Sorpu viljað koma blönd­uðu rusli úr urðun sem fyrst. „Það tekur hins vegar nokkuð mörg ár að reisa eitt stykki sorp­brennslu, með til­heyr­andi und­ir­bún­ingi vegna stað­ar­vals, deiliskipu­lags og ann­ars sem teng­ist fram­kvæmdum. Útflutn­ingur varð því fyrir val­inu, í það minnsta í bili.“

40 þúsund smábílar

Sorpa kallar brennslu á rusli til orku­fram­leiðslu end­ur­nýt­ingu í skil­grein­ingum sínum. Til brennslu fer sá úrgangur sem hvorki er hægt að end­ur­nota eða end­ur­vinna, s.s. bland­aður úrgangur sem fólk setur í svörtu tunn­una. Þetta getur verið allt frá bleium til ryksugu­poka auk alls þess sem fólk ein­fald­lega flokkar ekki rétt. Þrátt fyrir að fólk flokki flest og það í allar þessar tunnur sem því stendur nú til boða fara um 39 pró­sent – 93 tonn – af þeim 240 tonnum sem koma til Sorpu á hverjum degi í end­ur­nýt­ingu.

Gunnar Dofri skrif­aði í grein sinni að brennsla á 40 þús­und tonnum af rusli væri „skárri far­vegur“ en urðun. Hann minnti enn­fremur á umfangið. „Við gerum ráð fyrir að forða um 40.000 tonnum af rusli – sem er álíka þungt og 40.000 smá­bílar – frá urðun á hverju ári,“ skrif­aði hann. „Við þetta lyft­ist bland­aða ruslið upp úr flokki förg­unar yfir í flokk end­ur­nýt­ingar, því brennsla á rusli til orku­vinnslu er skárri kostur en urðun.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Væri nu ekki nær að reisa hátækni sorpbrennslustöð eins og aðrar þjóðir gera heldur en að eyða stórfé í þetta flokkunarrugl?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár