Miðflokkurinn tekur stökk en Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst minni

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist nú undir þriðj­ungi. Enginn flokkur hefur tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bili en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem nýtur nú stuðn­ings 16,6 pró­sent kjós­enda. Sam­fylk­ingin mælist áfram sem áður langstærsti flokkur lands­ins.

Miðflokkurinn tekur stökk en Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst minni
Sig­mundur nálg­ast Mið­flokk­ur­inn mælist nú þriðji stærsti flokkur lands­ins. Minni munur er á fylgi hans og Sjálf­stæð­is­flokks­ins en því sem munar á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­flokk­ur­inn mælist með 11,8 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Maskínu. Flokk­ur­inn bætir við sig 2,4 pró­sentu­stigum milli mán­aða. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist á sama tíma með 16,6 pró­sent fylgi og hefur aldrei áður mælst með jafn lít­inn stuðn­ing í könn­unum Maskínu. 

Könnunin var gerð dag­anna 10. til 15. jan­úar og var því fram­kvæmd í kringum eld­gosið í Grinda­vík en áður en Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og utan­rík­is­ráð­herra, birti umdeilda færslu á sam­fé­lags­miðlum um útlend­inga­mál sem var víða túlkuð sem til­raun til að sækja fylgi með því að slá nýjan tón í mála­flokknum. Í Silfrinu í gær neit­aði Bjarni því stað­fast­lega að það hefði verið til­gangur færsl­unnar.

Hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir mæl­ast á mjög svip­uðum slóðum og þeir mæld­ust í des­em­ber. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 5,7 pró­sent fylgi og minnstur allra flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag. Ef nið­ur­staða kosn­inga yrði í neðri mörkum vik­marka, sem eru eitt pró­sentu­stig, þá gæti sú staða komið upp að flokkur for­sæt­is­ráð­herra myndi þurrkast út af þingi. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,3 pró­sent sem er tölu­vert frá þeim mikla kosn­inga­sigri sem flokk­ur­inn vann haustið 2021. Alls hefur hann tapað sjö pró­sentu­stigum á rúmum tveimur árum. Eini flokk­ur­inn sem hefur tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bili er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem hefur tapað 7,8 pró­sentu­stigum. Vinstri græn eru þó skammt undan og eru eini flokk­ur­inn sem hefur tapað meiri­hluta fylgis síns, eða 6,9 pró­sentu­stigum. Hlut­falls­lega hefur stuðn­ingur við Vinstri græn því minnkað lang­mest. 

Sam­an­lagt þýðir þetta að stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað 21,7 pró­sentu­stigi af fylgi frá því í sept­em­ber 2021, þegar síð­ast var talið upp úr kjör­köss­unum. Fylgi þeirra, sem var 54,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú 32,6 pró­sent. Innan við þriðj­ungur þjóð­ar­innar gæti hugsað sér að kjósa flokk­anna sem stýra land­inu.

Samfylkingin áfram langstærst

Sá flokkur sem mælist langstærstur í íslenskum stjórn­málum í dag er Sam­fylk­ingin. Alls segj­ast 25,7 pró­sent aðspurðra að þeir ætli að kjósa flokk Kristrúnar Frosta­dóttur. Flokk­ur­inn hefur nú mælst sá stærsti í meira en ár í öllum gerðum könn­unum og mun­ur­inn milli hans og Sjálf­stæð­is­flokks hefur hald­ist áfram að aukast. Hann er nú 9,1 pró­sentu­stig. Alls hefur fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar auk­ist um 15,8 pró­sentu­stig frá því að kosið var síð­ast.  

Mið­flokk­ur­inn hefur bætt næst mestu við sig það sem af er kjör­tíma­bili. Það hefur farið úr 5,4 í áður­nefnd 11,8 pró­sent. 

Viðreisn hefur líka bætt ágæt­lega við sig og mælist nú með 11,7 pró­sent, sem er 3,4 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk haustið 2021. Flokkur fólks­ins og Píratar eru þeir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa  tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar mæl­ast nú með 7,6 pró­sent, sem er pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi, og Flokkur fólks­ins með 6,5 pró­sent, sem er 2,3 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár