Dýr innilokuð í Grindavík

Sauðfé er lokað inni í fjár­húsum í Grinda­vík. Dýra­vernd­ar­sam­tök Íslands biðla til almanna­varna að dýr­unum sé hleypt út svo þau geti bjargað sér úr hættu­legum aðstæðum.

Dýr innilokuð í Grindavík
Sauðfé inni­lokað Myndin er frá björg­un­ar­að­gerðum í nóv­em­ber. Dýrin sem nú eru lokuð inni eru í fjár­húsum í bænum. Mynd: Golli

Glóandi hraun rennur að Grinda­vík, þar sem kindur eru inni­lok­aðar í fjár­húsum. Ekki er talið óhætt að sækja dýrin að svo stöddu, enda neyð­ar­á­stand og hættu­legt að vera á vett­vangi. Fyrr í dag var fjöl­miðla­fólki var hleypt inn í bæinn en nú hefur verið lokað á allt aðgengi að bænum. Hættan liggur meðal ann­ars í óviss­unni, hraun­flæð­inu og gaseitrun.

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands biðlar til almanna­varna og ann­arra ábyrgra aðila í aðgerð­unum, að koma skepn­unum til bjargar, ef þess ger­ist nokkur kostur. 

Um er að ræða 30 kindur sem eru inni­lok­aðar í fjár­húsi nærri göt­unni Bakklág, auk þess sem sauðfé er lokað inni í fjár­húsum við bæði Sjáv­ar­braut og Þór­kötlu­staða­hverfi. Ítrekar Dýra­vernd­ar­sam­bandið mik­il­vægi þess að „dýr­unum sé hleypt út strax svo þau geti forðað sér úr þeim hættu­legu aðstæðum sem nú eru á svæð­inu.“

Bærinn var rýmdur í nótt og var mann­laus þegar gosið hófst. Þegar líða tók á morgun var stórum og dýrum vinnu­vélum bjargað, en þær eru meðal ann­ars not­aðar til þess að reisa varn­ar­garða. Við þær aðgerðir brotn­aði rúða á einu vinnu­tæk­inu vegna hit­ans sem liggur frá hraun­inu.

Dýrin urðu hins vegar eftir í bænum.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár