Sýndarmennskufallbyssur

Það er ekki nóg að hafa stórar fall­byssur á dekk­inu, það þarf líka að vera hægt að nota þær ef til kast­anna kemur. Sú hefur ekki verið raunin árum saman með tvö her­skip danska flot­ans. Búnaður til að stjórna byss­unum var ekki settur í skipin.

Sýndarmennskufallbyssur

Fréttir af sífelldum nið­ur­skurði fjár­veit­inga til danska hers­ins eru ekki nýjar af nál­inni. Eftir að kalda stríð­inu lauk um 1990 töldu Danir, eins og margar aðrar þjóðir, að framundan væri breyttur og frið­væn­legri heimur og fjár­munum betur varið til ann­arra verk­efna en her­mála.

Danski her­inn mátti sæta miklum árvissum nið­ur­skurði sem hélt áfram árum saman. For­svars­menn hers­ins töl­uðu árum saman fyrir daufum eyrum stjórn­mála­manna. Afleið­ingar nið­ur­skurð­ar­ins komu fljót­lega í ljós, bygg­ingar hers­ins grotn­uðu niður og urðu með árunum ónot­hæfar, tækja­kostur var ekki end­ur­nýj­aður, mann­afli var skor­inn niður.

Innrásin í Úkraínu 2014 og tveggja prósenta markmiðið

Leið­togar Nato ríkj­anna hitt­ust í Newport í Wales í byrjun sept­em­ber árið 2014. Nokkrum mán­uðum fyrr höfðu Rússar ráð­ist inn í Úkraínu og lagt undir sig Krím­skag­ann. Á fund­inum í Newport lýstu leið­togar Nato ríkj­anna  áhyggjum sínum vegna hern­aðar Rússa og að þeir myndu ekki láta sér nægja Krím­skag­ann. Anders Fogh Rasmus­sen var um þetta leyti að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Nato, hann hafði margoft sagt að fram­lög ríkj­anna til her­mála væru alltof lítil og ítrek­aði það í ræðu sinni á leið­toga­fund­inum. Leið­tog­arnir urðu sam­mála um að stefna að auknum fjár­veit­ingum til her­mála og miða árlega við tvö pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu hvers lands. Þetta var ekki skuld­bind­ing og tveggja pró­senta við­miðið hafði oft áður verið nefnt. Það var Helle Thorning-Schmidt sem skrif­aði undir þessa „vilja­yf­ir­lýs­ingu“ í Newport fyrir hönd Dana.  Nið­ur­skurð­ar­hníf­ur­inn var enn á lofti í Danmörku árið 2015, fram­lögin til hers­ins námu þá 1,2 pró­sentum af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu, sem­sagt langt frá tveggja pró­senta við­mið­inu.   

Í júní 2015 urðu stjórn­ar­skipti í Danmörku, Lars Løkke Rasmus­sen varð for­sæt­is­ráð­herra í minni­hluta­stjórn Venstre. Danir hafa haft þann hátt á varð­andi fjár­veit­ingar til varnar- og örygg­is­mála að gera sam­komu­lag í þing­inu, oft­ast til fjög­urra ára í senn. Árið 2018 var komið að því að gera nýtt sam­komu­lag og eftir mik­inn þrýst­ing frá Banda­ríkj­unum sam­þykkti danska þingið að auka fram­lögin þannig að á árinu 2023 yrði upp­hæðin sem rynni til varnar- og örygg­is­mála 1,5 pró­sent af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu. Skref í átt að mark­mið­inu frá 2014. Nú, í árs­byrjun er unnið að nýju sam­komu­lagi um fjár­veit­ingar til danska hers­ins og það er yfir­lýst stefna stjórn­valda að bæta veru­lega í, eins og það hefur verið orðað. Innrás Rússa í Úkraínu í febr­úar fyrir tæpum tveimur árum hefur þar lík­lega sitt að segja.

Að ákveða kaup á her­skipi er ekki eins og að fara út í búð og kaupa þvotta­vél. Skips­kaup­and­inn þarf að ákveða ýmis­legt, stærð, hvaða kröfur á skipið að upp­fylla varð­andi t.d sigl­ingar í ís og fleira og fleira. Svo þarf að teikna skipið, semja um smíð­ina og allt sem henni við­kemur, oft­ast eftir útboði, afhend­ing­ar­tíma o.s.frv. Oftast líða all­mörg ár frá því að ákveðið er að láta smíða her­skip þangað til verk­inu lýkur.

Knud Rasmussen skipin

Á árunum kringum síð­ustu alda­mót samdi danski flot­inn um smíði tveggja her­skipa. Skipin voru bæði gerð eftir sömu teikn­ingum, skrokk­arnir smíð­aðir í Gdansk í Póllandi þar sem vélum og skrúfu­bún­aði var komið fyrir. Skipin voru síðan dregin til Skagen á Jótlandi þar sem þau voru full­kláruð. Fyrra skipið var tekið í notkun árið 2008 og fékk nafn hins þekkta dansk græn­lenska heim­skautafara og vís­inda­manns Knud Rasmus­sen. Ári síðar, 2009, var seinna skipið tekið í notkun, það fékk nafnið Ejnar Mikk­el­sen, hann var þekktur danskur heim­skautafari.

Síðar var smíðað eitt skip til við­bótar, sömu gerðar, það fékk nafn Lauge Koch og var tekið í notkun árið 2016. Lauge Koch var þekktur græn­lands­fari og vís­inda­maður. Innan danska flot­ans kall­ast þessi þrjú skip Knud Rasmus­sen skipin. Þau eru einkum ætluð til notk­unar á norð­ur­slóðum, á þeim er þyrlu­pallur en ekki þyrlu­skýli. Skipin eru 72 metra löng og 15 metra breið, á fram­þil­fari er fall­byssa.

Herinn skortir fólk

Eins og áður var nefnt mátti danski her­inn búa við mik­inn nið­ur­skurð árum saman. Ein afleið­ing þess var mikil fækkun her­manna. Þótt nú sé vilji, og fjár­magn til að fjölga her­mönnum gengur það hægt, her­mennskan freistar ekki nægi­lega margra og það kemur niður á mögu­leikum hers­ins til að sinna þeim verk­efnum sem honum eru ætluð.

Í des­em­ber á síð­asta ári greindi danska útvarpið DR, og síðar fleiri danskir miðlar, frá því að iðu­lega láti her­skip danska flot­ans úr höfn án þess að vera full­mönnuð. Einkum hafi, að sögn, verið skortur á tækni­mennt­uðum her­mönnum, þar á meðal fall­byssu­skyttum. Starf þeirra er að sjá um að byss­urnar, og það sem þeim til­heyrir, séu ætíð í full­komnu lagi ef grípa þarf til þeirra. Fall­byssur nútím­ans eru með, eða eiga að vera með, full­kom­inn og flók­inn mið­un­ar­búnað og umsjón og stjórn hans í höndum fall­byssu­skytt­anna. „Bún­að­ur­inn er augu og heili fall­byssunnar“ sagði hern­að­ar­sér­fræð­ingur í sam­tali við danska útvarpið. „Án þessa bún­aðar verða skytt­urnar að miða í rétta átt, eftir aug­anu, og vona það besta.“

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 10. jan­úar birti danska útvarpið frétt sem vakti mikla athygli. Þar var greint frá því að her­skipin Knud Rasmus­sen og Ejnar Mikk­el­sen hefðu aldrei á þeim 15 árum sem þau hafa verið í notkun, getað notað fall­byss­urnar. Ástæðan væri sú að hinn flókni mið­un­ar­bún­aður, sem er for­senda þess að nota byss­urnar, hafi aldrei verið settur í skipin. Dönsku miðl­arnir sögðu, í hæðn­is­tón, að það væri þó alt­ént hægt að dúndra úr þeim púð­ur­skotum, þar þyrfti ekk­ert að miða.

Alltaf „á leiðinni“

Árið 2013, þegar tekin var ákvörðun um að smíða Lauge Koch, þriðja skipið af Knud Rasmus­sen gerð­inni, var ákveðið að mið­un­ar­bún­að­ur­inn skyldi settur í skipið áður en það yrði tekið í notkun. Fjár­laga­nefnd þings­ins fékk jafn­framt að vita að hluti fjár­veit­ing­ar­innar yrði not­aður til kaupa á mið­un­ar­bún­aði í tvö eldri skipin.

Árið 2015, fékk fjár­laga­nefndin svo að vita að varn­ar­mála­ráðu­neytið hefði ákveðið að kaupa mið­un­ar­bún­að­inn í Knud Rasmus­sen og Ejnar Mikk­el­sen frá sænska fyr­ir­tæk­inu Saab, verðið væri 42 millj­ónir danskra króna (845 millj­ónir íslenskar).  Ári síðar birti varn­ar­mála­ráðu­neytið skýrslu um verk­efni á norð­ur­slóðum. Í skýrsl­unni mátti lesa að unnið væri að því að setja mið­un­ar­bún­að­inn í skipin tvö (under ind­fasning). Þetta var árið 2016.  Það var þó ekki fyrr en í fyrra­sumar að bún­að­ur­inn var settur í Ejnar Mikk­el­sen en hefur ekki enn verið settur í elsta skipið, Knud Rasmus­sen. Til stendur að það verði gert á þessu ári.

Varnarmálaráðherrann kom af fjöllum

Þegar frétta­menn danska útvarps­ins ræddu við Troels Lund Poulsen varn­ar­mála­ráð­herra 10. jan­úar sagð­ist hann ekki hafa vitað betur en að mið­un­ar­bún­að­ur­inn væri löngu kom­inn í skipin tvö. Hann sagði það í hæsta máta óeðli­legt að ráð­herrar, í þessu til­viki varn­ar­mála­ráð­herr­ann, fréttu fyrst af málum sem þessu frá fjöl­miðlum.

Hann sagð­ist jafn­framt hafa þegar í stað kraf­ist grein­ar­gerðar frá hernum vegna máls­ins. Hann sagð­ist ekki hafa neinar skýr­ingar á því að ákvarð­anir sem ákveðnar hefðu verið árið 2015 hefði ekki verið fram­kvæmdar. „Grein­ar­gerðin sem ég hef óskað eftir á að ber­ast mér fyrir lok mán­að­ar­ins“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Heitir þetta ekki eitthvað í þeim dúr, að sigla sofandi að feigar ósi ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár