Asil og Suleiman komin til landsins

Asil Al Masri og bróðir hennar Suleiman eru komin til lands­ins. Suleiman flaug til Belgíu fyrir rúmri viku til þess að sækja systur sína og flytja hana heim til Íslands. Asil fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt fyrir skömmu. Líf systk­in­anna umturn­að­ist eftir loft­árás Ísra­els­hers í októ­ber þar sem for­eldrar þeirra, systir, mágur og fimm ára frændi lét­ust. Asil slas­að­ist mjög alvar­lega í árásinni.

Systk­inin Asil og Suleiman Al Masri eru komin til lands­ins. Flugvél þeirra lenti um þrjúleytið á Kefla­vík­ur­flug­velli. Asil seg­ist þreytt eftir ferða­lagið í sam­tali við Heim­ild­ina. Spurð um við­brögð sín við öllum blaða­mönn­unum sem voru mættir til þess að taka á móti henni, seg­ist Asil vera glöð með að fólk hafi áhuga á og þekki sögu hennar. Komið sé fram við hana eins og mann­eskju en gjarnan séu íbúar Gasa afmennskaðir í erlendri fréttaum­fjöllun. 

Þá seg­ist Asil vilja þakka þeim sem vöktu athygli á hennar sögu hér á landi per­sónu­lega fyrir. Umfjöll­unin hafi gert það að verkum að hún fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. 

Að frá­töldum blaða­mönn­unum sem þarna voru mættir, tóku á móti systkin­unum þrír vinir þeirra. Þá voru sömu­leiðis tvær íslenskar konur sem mættu með vina­hópnum til að aðstoða systk­inin með flutn­inga á far­angri þeirra.

Komin heimNokkrir vinir þeirra tóku á móti þeim …
Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Íbúar Gasa afmennska gyðinga í allri umfjöllun innan sinna veggja. Í skólastofum barnanna og heima. Þeir fá brettin af evrum inn á svæðið frá ESB og trukka með árásarvopn frá Íran inn líka. . Það er Mein Kampf á náttborðinu og svo Kóraninn. Þetta er ljóst. Ekki ýkjur. Konur sem unnu í Ísrael nálægt landamærunum við kibbutz komu ekki til vinnu þennan morgun 7 okt. Fjöldi Gasa íbúa tók eigur myrtra gyðinga eftir slátrunar blóðbað Hamas liða. Afmennskun gyðinga er grundvallar hugmyndafræði íslam. Apar og Svín segir Kóraninn um gyðinga. Þessi stúlka vann liklega með Hamas upplýsinga og njósna deildinni fyrir öryggi og fé. Kallar stjórna stúlkum og senda þær yfir til Ísrael að safna upplýsingum um venjur hermanna og öryggis tækni. Þetta er vitað eftir árásir Hamas og upptökur myndavéla og talningu gsm síma Gaza íbúanna eftir árásina. Rakning rányrkju þeirra á heimila látinna gyðinga fjölskyldna er staðfest. Fjölskyldna sem réðu þau í vinnu inná heimili sín.
    -12
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      Vissulega eru hamas hryðjuverkasamtök og þeirra markmið eru frekar uppræting Ísrael en velferð Palestínu og palestínumanna. Og ætti að nefna það líka hvert skipti sem yfirgangur og grimmd israelsmanna er fordæmd.
      En að þessi stúlka hafi unnið fyrir hamas er mikil ásökun og afar persónuleg árás. Hún er hér fyrst og fremst sem fórnarlamb stríðsátakanna (sem vissulega voru kveikt af hamas en hafa langan aðdraganda í yfirgangi og óbilgirni Ísrael).
      Svo hef ég heyrt að kóranin viðurkenni Gyðinga og kristna menn fyrir það að trúa á einn guð þó þeir séu aðeins lægra settir því þeir fylgi ekki sömu kennisetningum.
      Hins vegar eru það trúleysingjar og heiðnir menn sem eru réttdræpir.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár