Ætluðu að skoða að aflétta rýmingu í Grindavík og fólk hefur gist í bænum

Íbúum Grinda­víkur var gert að rýma bæinn föstu­dags­kvöldið 10. nóv­em­ber. Frá þeim tíma hafa flestir þeirra fundið sér hús­næði ann­ars­staðar, en sumir gist í bænum. Vonir stóðu til þess að íbúum yrði hleypt alveg heim fyrir jól. Svo kom eld­gos.

Ætluðu að skoða að aflétta rýmingu í Grindavík og fólk hefur gist í bænum
Rýming Grinda­vík var rýmd í snatri föstu­dags­kvöldið 10. nóv­em­ber. Síðan þá hafa íbúar beðið í óvissu um hvort og þá hvenær þeir geti snúið aftur heim til sín. Mynd: Golli

Und­an­farið hafa sumir íbúar í Grinda­vík virt bann við því að gista heima hjá sér að vettugi og haft næt­ur­dvöl í bænum. Í Kast­ljósi í kvöld var meðal ann­ars rætt við veit­inga­mann í bænum sem hafði dvalið þar síð­ustu nætur ásamt eig­in­konu sinni og vildi fá að opna veit­inga­stað sinn fyrir gestum. Lög­reglan hafði afskipti af fólk­inu í gær og fékk það til að yfir­gefa Grinda­vík. 

Til stóð að Veð­ur­stofan myndi gefa út upp­fært hættu­mat næsta mið­viku­dag vegna land­riss við Grinda­vík. Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, sagði við RÚV í dag að ef það yrði lítil breyt­ing frá stöð­unni eins og hún var í morgun þá yrði „skoðað að aflétta rým­ingu.“ Af því verður ekki úr þessu, enda hófst eld­gos í námunda við bæinn í kvöld.

Í Grinda­vík bjuggu 3.720 manns í lok sept­em­ber og í sveit­ar­fé­lag­inu eru yfir eitt þús­und heim­ili. Bærinn var rýmdur 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn eftir miklar jarð­hrær­ingar sem opn­uðu kviku­gang undir Grinda­vík. 

Síðan þá hafa íbúar Grinda­víkur þurft að finna sér nýjan sama­stað. Fannar Jónsson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, sagði í við­tali á Bylgj­unni í dag að margir íbúar væru í erf­iðri stöðu, þar sem þeir væru að borga af tveimur hús­næðum. „Og það má ekki gleyma því að margir hafa misst vinn­una sína og þó það sé verið að bæta upp tekju­tap með launa­við­bótum þá eiga ýmsir mjög erfitt. Hús­næð­is­málin eru alls ekki á góðum stað. Það er það sem við höfum mestar áhyggjur af. Allt of margar fjöl­skyldur eru í bráða­birgðar- eða óhent­ugu hús­næði.“

Skiptar skoðanir á meðal íbúa

Í Facebook-hópnum „Íbúar í Grinda­vík“ hafa átt sér stað miklar umræður um hvort og hvenær það ætti að hleypa íbúum heim til sín. Í inn­leggi sem birt var fyrr í dag sagði íbúi að hann væri algjör­lega orð­laus yfir stöð­unni, og vís­aði þar í að mögu­lega stæði til að aflétta rým­ingu í vik­unni. „Hugs­an­lega er hættan lítil sem engin og við getum haldið jólin heima í Grinda­vík. Við erum að fá afhenta lykla af íbúð á eftir en það er algjör­lega til­gangs­laust ef við megum svo snúa aftur heim á mið­viku­dag­inn. Þessi hringl­anda­háttur er að kosta mikla pen­inga svo ég tali ekki um hnút­inn sem er búinn að vera í mag­anum síð­ustu vik­urnar. Við viljum fara aftur heim og halda jólin í fal­lega hús­inu okkar en erum núna búin að skuld­binda okkur fyrir hús­næði sem við hugs­an­lega höfum enga þörf fyrir.“

Annar íbúi skrif­aði: „Við vorum að fá íbúð afhenta rétt áður ég sé þessa “frétt”. Ég veit varla í hvorn fót­inn á að stíga í og þetta hel­vítis til­finn­inga rúnk í boði yfir­valda er gjör­sam­lega bilað.“

Enn annar íbúi skrif­aði: „Ég held að þeir sem eru á ver­gangi eða þeir sem hýr­ast enn í hjól­hýsum verði mjög glaðir með að kom­ast heim í hýbýlin sín.“

Bláa lónið opnaði á ný í gær

Í námunda við Grinda­vík, í Svarts­engi skammt frá þar sem gosið stendur nú yfir, er Bláa lónið, vin­sæl­asti ferða­manna­staður lands­ins. Því var lokað degi áður en Grinda­vík var rýmd en ætl­aði þá ein­ungis að loka í eina viku. 

Lokunin stóð yfir í mun lengri tíma. Í stað þess að opna 16. nóv­em­ber opn­aði Bláa lónið að nýju í gær, þann 17. des­em­ber, en þó með tak­mörk­unum. Lónið var opið gest­um á milli ell­efu að morgni til átta að kvöldi og því ætti eng­inn gestur að hafa verið í því þegar eld­gosið hófst í kvöld. Auk bað­lóns­ins voru Blue Café, Lava Restaur­ant, Retreat Spa, Spa Restaur­ant og verslun Bláa lóns­ins á svæð­inu opnuð í gær. 

Í Facebook-færslu Bláa lóns­ins sagði að fyr­ir­tækið gæti ekki „beðið eftir að bjóða ykkur vel­komin aftur og að búa til fleiri dásam­legar minn­ingar saman!“ 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár