Formaður BHM: „Ég er ekki farin að spá verkföllum“

Kjaramál voru rædd í nýjasta þætti Pressu. Þar mætt­ust Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB, Kolbrún Hall­dórs­dóttir, for­maður BHM, og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Sólveig Anna sagði að það myndi skýr­ast á þriðju­dag hvort breið­fylk­ing innan ASÍ fari saman í kjara­við­ræð­urnar.

Formaður BHM: „Ég er ekki farin að spá verkföllum“

Efling vinnur nú að því að reyna að tryggja að öll aðild­ar­fé­lög Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) fari saman í kjara­við­ræð­urnar á kom­andi ári. Þetta sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í nýjasta þætti af Pressu á Heim­ild­inni.

Þar ræddi hún kom­andi kjara­við­ræður og þær áskor­anir sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins standa frammi fyrir vegna þeirra ásamt Sonju Ýr Þor­bergs­dóttur, for­manni BSRB, og Kolbrúnu Hall­dórs­dóttur, for­manni BHM. Sólveig Anna sagði sam­starf breið­fylk­ingar innan ASÍ þó ekki vera tryggt enn sem komið er. Nið­ur­staða um hvort að því verði mun liggja fyrir á þriðju­dag.

Að sögn Sól­veigar Önnu er ASÍ sam­an­safn af fjöl­breyttum og ólíkum hópum. Þar inn­an­borðs er verka- og lág­launa­fólk, hálauna­fólk og allt þar á milli. „Það sem við höfum verið að reyna að vinna að er hvort að við getum náð sam­komu­lagi innan Alþýðu­sam­bands­ins, hvaða leið skuli fara í launa­liðnum.“

Kaupmáttaraukning

Kolbrún, for­maður BHM, sagði það launa­fólk sem hafi lagt á sig lengst nám, og komi þar af leið­andi síð­ast út á vinnu­mark­að­inn með erfið námslám á bak­inu, þurfi að fá kaup­mátt­ar­aukn­ingu í kom­andi samn­ingum. 

Sólveig Anna telur hins vegar að það gangi ekki upp að háskóla­fólk eða hærri laun­aðir hópar á land­inu kenni kjara­bar­áttu verka- og lág­launa­fólks um sína kaup­mátt­arrýrnun „Sú kaup­mátt­arrýrnun sem er að eiga sér stað á Íslandi hefur nátt­úru­lega ekk­ert að gera með kjara­bar­áttu lág­launa­fólks heldur hefur að gera með vaxt­ar­stig og verð­bólgu.“

Sonja Ýr sagði í þætt­inum að það yrði að tryggja að fólk nái endum saman. Það sé eitt að búa við mann­sæm­andi lífs­skil­yrði og kaup­máttur sé svo annað. „Það er stór hluti mark­að­ar­ins sem er að störfum en býr við fátækt.“

Verkalýðsbarátta alltaf í eðli sínu átök 

„Ábyrgðin á verð­bólgu­bál­inu verður aldrei sett á herðar launa­fólks. Þegar ég segi launa­fólk þá meina ég allt launa­fólk,“ sagði Kolbrún. „Á Íslandi vill svo til að við höfum náð tals­vert miklum jöfn­uði og þegar við berum okkur saman við Norð­ur­löndin, þá stöndum við okkur bara mjög vel. Það er hvergi meiri jöfn­uður í ráð­stöf­un­ar­tekjum á Norð­ur­lönd­unum heldur en á Íslandi. Svo við höfum bara náð fínum árangri.“  

Sólveig Anna sagði að það yrði erf­ið­ara að fá stjórn­völd að borð­inu ef verka­lýðs­fé­lögin fari öll í sitt­hvoru lagi að samn­inga­borð­inu í kom­andi kjara­við­ræðum. Kolbrún benti á að verka­lýðs­bar­áttu væri í eðli sínu alltaf  átök og að það muni ekki breyt­ast. Hún sagði BHM vilja forð­ast að það verði ekki hægt að ná samn­ingum þar sem þau eru við samn­inga­borð til að ná samn­ingum milli samn­inga aðila, til að takast á við um ólík sjón­ar­mið. „Átök verða eflaust, en ég er ekki farin að spá verk­föllum,“ segir Kolbrún.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu