Vilja fimmfalda bankaskatt og hirða rúmlega 30 milljarða af bönkunum

Flokkur fólks­ins vill stór­auka skatt­lagn­ingu á íslensku við­skipta­bank­anna. Verði frum­varpið sam­þykkt myndi banka­skatt­ur­inn sem flokk­ur­inn leggur til nema helm­ingi hagn­aðar stóru bank­anna þriggja á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Vilja fimmfalda bankaskatt og hirða rúmlega 30 milljarða af bönkunum
Formaður Inga Sæland er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þing​flokkur Flokks fólks­ins mun á morgun flytja frum­varp um að hækka banka­skatt­inn svo­kall­aða úr 0,145 pró­sent og upp í 0,838 pró­sent. Ef frum­varpið yrði sam­þykkt myndi það þýða fimm­földun á skatt­inum, sem leggst á skuldir fjár­mála­fyr­ir­tækja yfir 50 millj­örðum króna. Það myndi skila rík­is­sjóði rúm­lega 30 millj­örðum króna í tekjur vegna skatts­ins, en tekjur hans vegna banka­skatts­ins, sem var lækk­aður á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir, í fyrra voru 5,3 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu sem Flokkur fólks­ins sendi frá sér í kvöld kemur fram að sam­kvæmt frum­varp­inu eigi að end­ur­skoða gjald­hlut­fallið þegar vextir hús­næð­is­lána fara aftur undir fimm pró­sent. Þar segir enn fremur að Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hafi ekki séð sér ekki fært um að vera áfram með­flutn­ings­menn á frum­varp­inu eftir að hlut­fall­inu var breytt úr 0,376 pró­sent  í 0,838 pró­sent.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, en hinir fimm þing­menn hans eru með­flutn­ings­menn.

Högnuðust um 61 milljarð á níu mánuðum

Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki högn­uð­ust sam­tals um 60,9 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er 10,9 millj­örðum krónum meira en bank­arnir græddu á sama tíma­bili í fyrra og hagn­að­ur­inn hefur því auk­ist um 22 pró­sent. 

Lands­bank­inn tvö­fald­aði hagnað sinn á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins milli ára. Það verður þó að taka ýmis­legt inn í jöfn­una. Hann fór úr 11,3 millj­örðum króna í 22,4 millj­arða króna. Alls 14,2 pró­sent eign­ar­hlutur Lands­bank­ans, í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel með 24,7 pró­sent hlut, hefur til að mynda rýrnað veru­lega í virði á tæpum tveimur árum. Hann myndar uppi­stöð­una í hluta­bréfa­eign bank­ans sem voru metin á 20,6 millj­arða króna í byrjun árs í fyrra en var bók­færð á níu millj­arða króna og hefur þar með lækkað í virði um 11,6 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Þorri þeirrar lækk­unar, tæpir tíu millj­arðar króna, átti sér stað í fyrra en hluta­bréf í Marel hafa haldið áfram að lækka á þessu ári.

Íslands­banki, sem hefur hagn­ast um 18,4 millj­arða króna það sem af er ári, þurfti að greiða 860 millj­ónir króna af stjórn­valds­sekt­inni sem lögð var á bank­ann fyrir marg­háttuð og alvar­leg brot sem framin voru þegar hann tók þátt í söl­unni á sjálfum sér. Alls nam sektin 1.160 millj­ónum króna en Íslands­banki tók til hliða 300 millj­ónir króna til að mæta yfir­vof­andi sekt á fjórða árs­fjórð­ungi 2022. 

Arion banki hagn­að­ist um 19,5 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sem er um 600 millj­ónum krónum minna en á sama tíma­bili árið áður. Þá var Arion hins vegar með ein­skipt­is­hagnað upp á 6,9 millj­arða króna, að uppi­stöðu vegna söl­unnar á Valitor. Því eiga allir bank­arnir það sam­eig­in­legt að svo­kall­aður und­ir­liggj­andi rekstur, sem felur í sér að lána pen­inga og selja þjón­ustu, hefur heilt yfir verið að styrkj­ast veru­lega. 

Vaxtatekjur í miklu vexti

Mestur er vöxt­ur­inn í vaxta­tekjum bank­anna, þeim tekjum sem þeir hafa af því að lána heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins pen­inga og rukka vexti fyrir. 

Hreinar vaxta­tekjur þeirra voru sam­an­lagt rúm­lega 113 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sem er tæp­lega 19 millj­örðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Vaxta­tekjur bank­anna þriggja hafa því vaxið um fimmt­ung milli ára. Þeir segja að þetta sé til­komið vegna vaxta­hækk­ana og stærra útlána­safns. 

Til að átta sig á því hvað hreinar vaxta­tekjur eru stór partur af starf­semi fjár­mála­kerf­is­ins má benda á að hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans, stærsta banka lands­ins, voru 82 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum hans það sem af er ári. 

Vaxtamunur hærri en á Norðurlöndunum

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,7 til 3,1 pró­sent á árinu 2022, sem er meiri munur en var árið áður, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent. Um mitt þetta ár var hann kom­inn í 2,9 til 3,2 pró­sent.

Vaxta­mun­ur­inn dróst saman hjá bæði Íslands­banka, þar sem hann fór úr 3,2 í 2,9 pró­sent, og Arion banka, þar sem hann fór úr 3,2 í 3,0 pró­sent, á þriðja árs­fjórð­ungi. Hann jókst hins vegar hjá rík­is­bank­anum, úr 2,9 í 3,1 pró­sent, sem þýðir að hann er nú mestur þar. 

Þessi vaxta­munur er mjög mik­ill í nor­rænum sam­an­burði. Í skýrslu starfs­hóps Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um grein­ingu á gjald­töku og arð­semi við­skipta­bank­anna sem birt var í sumar sagði að hjá öðrum nor­rænum bönkum af svip­aðri stærð og þeir íslensku sé hann 1,6 pró­sent og hjá stórum nor­rænum bönkum sé hann enn minni, eða 0,9 pró­sent. Þetta er staðan þrátt fyrir að íslensku bank­arnir hafi fengið ríf­lega skatta­lækkun þegar banka­skatt­ur­inn var lækk­aður um marga millj­arða króna á ári og að þeir hafi verið að hag­ræða veru­lega. Sá ávinn­ingur sem orðið hefur af þeim aðgerðum virð­ist ekki skila sér til við­skipta­vina.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Heyr heyr Flokkur fólksins!
    0
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Hvað með að hækka fjármagnstekjuskatt um að minsta kosti 5% úr 22 í 27% og láta þá ríku greiða aðeins meira ?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár