Stórauknar tekjur vegna vaxtahækkanna skiluðu bönkunum 61 milljarðs króna hagnaði

Stóru bank­arnir þrír högn­uð­ust um 22 pró­sent hærri upp­hæð sam­an­lagt á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2023 en á sama tíma­bili í fyrra. Vaxta­munur þeirra er mun hærri en hjá svip­uðum bönkum á Norð­ur­lönd­unum og er nú 2,9 til 3,1 pró­sent. Eigið fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka var 706 millj­arðar króna í lok sept­em­ber. Heim­ild­in tók sam­an helstu stað­reynd­ir um níu mán­aða upp­gjör stóru bank­anna þriggja.

Stórauknar tekjur vegna vaxtahækkanna skiluðu bönkunum 61 milljarðs króna hagnaði

Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki högn­uð­ust sam­tals um 60,9 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er 10,9 millj­örðum krónum meira en bank­arnir græddu á sama tíma­bili í fyrra og hagn­að­ur­inn hefur því auk­ist um 22 pró­sent. 

Lands­bank­inn tvö­fald­aði hagnað sinn á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins milli ára. Það verður þó að taka ýmis­legt inn í jöfn­una. Hann fór úr 11,3 millj­örðum króna í 22,4 millj­arða króna. Alls 14,2 pró­sent eign­ar­hlutur Lands­bank­ans, í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel með 24,7 pró­sent hlut, hefur til að mynda rýrnað veru­lega í virði á tæpum tveimur árum. Hann myndar uppi­stöð­una í hluta­bréfa­eign bank­ans sem voru metin á 20,6 millj­arða króna í byrjun árs í fyrra en var bók­færð á níu millj­arða króna og hefur þar með lækkað í virði um 11,6 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Þorri þeirrar lækk­unar, tæpir tíu millj­arðar króna, átti sér stað í fyrra en hluta­bréf í Marel hafa haldið áfram að lækka á þessu ári.

Íslands­banki, sem hefur hagn­ast um 18,4 millj­arða króna það sem af er ári, þurfti að greiða 860 millj­ónir króna af stjórn­valds­sekt­inni sem lögð var á bank­ann fyrir marg­háttuð og alvar­leg brot sem framin voru þegar hann tók þátt í söl­unni á sjálfum sér. Alls nam sektin 1.160 millj­ónum króna en Íslands­banki tók til hliða 300 millj­ónir króna til að mæta yfir­vof­andi sekt á fjórða árs­fjórð­ungi 2022. 

Arion banki hagn­að­ist um 19,5 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sem er um 600 millj­ónum krónum minna en á sama tíma­bili árið áður. Þá var Arion hins vegar með ein­skipt­is­hagnað upp á 6,9 millj­arða króna, að uppi­stöðu vegna söl­unnar á Valitor. Því eiga allir bank­arnir það sam­eig­in­legt að svo­kall­aður und­ir­liggj­andi rekstur, sem felur í sér að lána pen­inga og selja þjón­ustu, hefur heilt yfir verið að styrkj­ast veru­lega. 

Vaxtatekjur í miklu vexti

Mestur er vöxt­ur­inn í vaxta­tekjum bank­anna, þeim tekjum sem þeir hafa af því að lána heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins pen­inga og rukka vexti fyrir. 

Hreinar vaxta­tekjur þeirra voru sam­an­lagt rúm­lega 113 millj­arðar króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sem er tæp­lega 19 millj­örðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Vaxta­tekjur bank­anna þriggja hafa því vaxið um fimmt­ung milli ára. Þeir segja að þetta sé til­komið vegna vaxta­hækk­ana og stærra útlána­safns. 

Til að átta sig á því hvað hreinar vaxta­tekjur eru stór partur af starf­semi fjár­mála­kerf­is­ins má benda á að hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans, stærsta banka lands­ins, voru 82 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum hans það sem af er ári. 

Vaxtamunur hærri en á Norðurlöndunum

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,7 til 3,1 pró­sent á árinu 2022, sem er meiri munur en var árið áður, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent. Um mitt þetta ár var hann kom­inn í 2,9 til 3,2 pró­sent.

Vaxta­mun­ur­inn dróst saman hjá bæði Íslands­banka, þar sem hann fór úr 3,2 í 2,9 pró­sent, og Arion banka, þar sem hann fór úr 3,2 í 3,0 pró­sent, á þriðja árs­fjórð­ungi. Hann jókst hins vegar hjá rík­is­bank­anum, úr 2,9 í 3,1 pró­sent, sem þýðir að hann er nú mestur þar. 

Þessi vaxta­munur er mjög mik­ill í nor­rænum sam­an­burði. Í skýrslu starfs­hóps Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um grein­ingu á gjald­töku og arð­semi við­skipta­bank­anna sem birt var í sumar sagði að hjá öðrum nor­rænum bönkum af svip­aðri stærð og þeir íslensku sé hann 1,6 pró­sent og hjá stórum nor­rænum bönkum sé hann enn minni, eða 0,9 pró­sent. Þetta er staðan þrátt fyrir að íslensku bank­arnir hafi fengið ríf­lega skatta­lækkun þegar banka­skatt­ur­inn var lækk­aður um marga millj­arða króna á ári og að þeir hafi verið að hag­ræða veru­lega. Sá ávinn­ingur sem orðið hefur af þeim aðgerðum virð­ist ekki skila sér til við­skipta­vina.

Þóknanatekjur að dragast saman

Hinn stóri reglu­legi tekju­póst­ur­inn hjá bönk­unum eru þókn­ana- og þjón­ustu­gjöld sem þeir inn­heimta af heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins. Hreinar tekjur vegna þeirra voru sam­tals 31,1 millj­arðar króna frá byrjun mars og út sept­em­ber­mánuð sem er um millj­arði meira en þeir þén­uðu á þann hátt á sama tíma í fyrra. 

Athygli vekur að þókn­ana- og þjón­ustu­tekjur allra bank­anna þriggja dróg­ust saman á þriðja árs­fjórð­ungi sam­an­borið við sama fjórð­ung 2022. Arion banki hefur mest upp úr þess­ari teg­und við­skipta, alls 12,5 millj­arða króna það sem af er ári. Hreinar þókn­ana- og þjón­ustu­tekjur Íslands­banka voru 10,5 millj­arðar króna og hafa auk­ist meira á árinu en hjá hinum, en Lands­bank­inn rekur lest­ina með 8,1 millj­arð króna. 

Eigið fé komið yfir 700 milljarða

Bank­arnir eiga gríð­ar­lega mikið eigið fé, alls tæp­lega 706 millj­arða króna sam­an­lagt. Það er 20 millj­örðum krónum meira en það var um síð­ustu ára­mót, en nán­ast öll sú aukn­ing hefur orðið á eigin fé Lands­bank­ans, sem hefur aukið sitt eigið fé um 14 millj­arða króna það sem af er ári. Þá er búið að taka til­lit til allra arð­greiðslna og end­ur­kaupa á hluta­bréfum sem átt hafa sér stað á árinu, en slíkar greiðslur til hlut­hafa hlaupa á tugum millj­arða króna. 

Stjórn­endur þeirra hafa kvartað yfir því að eig­in­fjár­kröfur á íslenska banka séu miklu hærri en á aðra sam­bæri­lega banka í Evrópu. Grynnka þurfi á því með arð­greiðslum og upp­kaupum á hluta­bréfum – sem skila fjár­munum út úr bönkum til hlut­hafa – til að bæta getu þeirra til að sýna eft­ir­sókn­ar­verða arð­semi á eigin fé, en það er sá mæli­kvarði sem stjórn­end­urnir nota til að mæla árangur sinn. 

Ástæður þess að eig­in­fjár­kröf­urnar eru svona háar á Íslandi má rekja aftur til hruns­ins, þegar bank­arnir féllu hver á fætur öðrum og gátu ekki staðið við skuld­bind­ingar sínar. Til að koma í veg fyrir að það ger­ist aftur var nýju bönk­unum, sem stofn­aðir voru á rústum hinna föllnu, gert að vera með mikið svig­rúm til að takast á við áföll og virð­is­rýrnun lána.

Arðsemi eigin fjár umtalsverð

Þrátt fyrir háar eig­in­fjár­kröfur hafa bank­arnir ekki verið í vand­ræðum með að ná við­un­andi arð­semi á það eigið fé á síð­ustu miss­erum. Hjá Arion banka var hún 13,9 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, 11,3 pró­sent hjá Íslands­banka og 10,5 pró­sent hjá Lands­bank­anum.

Vert er að hafa í huga að þessi hlut­falls­lega arð­semi væri miklu hærri ef eig­in­fjár­kröfum bank­anna væru lægri, líkt og víða í lönd­unum í kringum okkur. Samt eru íslensku bank­arnir með betri arð­semi en bankar af svip­aðri stærð­argráðu á hinum Norð­ur­lönd­unum. Í fyrra var með­alarð­semin 10,7 pró­sent hér en 9,6 pró­sent hjá sam­an­burð­ar­bönk­unum. 

Rekstrarkostnaður farið hríðlækkandi

Rekstr­ar­kostn­aður bank­anna hefur farið hríð­lækk­andi sem hlut­fall af tekjum á síð­ustu árum. Hann var 59 pró­sent árið 2018 í 47 pró­sent í fyrra. Það hlut­fall var með því lægsta sem þekk­ist meðal nor­rænna banka af svip­aðri stærð­argráðu. 

Það sem af er árinu 2023 hefur kostn­að­ar­hlut­fallið haldið áfram að vera mjög skap­legt. 

Á þriðja árs­fjórð­ungi var það lægst hjá Lands­bank­anum, eða 34,6 pró­sent. Þar á eftir kom Arion banki með 38,2 pró­sent og Íslands­banki var skammt undan með 41,3 pró­sent. 

Ríkið og lífeyrissjóðir langstærstu eigendur

Íslenska ríkið á Lands­bank­ann nán­ast að öllu leyti. Heimild er til staðar í fjár­lögum til að selja 30 pró­sent hlut í honum en eng­inn vilji virð­ist vera til staðar til að hefja það sölu­ferli og eng­inn eig­in­legur und­ir­bún­ingur hefur farið fram til að ráð­ast í slíka fram­kvæmd. 

Rík­is­sjóður er líka stærsti eig­andi Íslands­banka með 42,7 pró­sent eign­ar­hlut. Nýr fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lýsti því nýlega yfir að það væri for­gangs­mál hjá henni að selja þann hlut á kjör­tíma­bil­inu, en fjár­lög og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gera ráð fyrir því að það verði gert í tveimur skrefum á árunum 2024 og 2025. Alls er 89,9 pró­sent alls hluta­fjár í Íslands­banka í eigu inn­lendra aðila en um tíu pró­sent í eigu erlendra fjár­festa. Fyrir utan ríkið eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög stærstu eig­end­urnir með 36,9 pró­sent sam­an­lagðan eign­ar­hlut. Því er tæp­lega 82 pró­sent hlutur í Íslands­banka í eigu þessa hóps og rík­is­ins. Heild­ar­fjöldi hlut­hafa var 11.866 í lok sept­em­ber. Þeir voru um 24 þús­und eftir að bank­inn var skráður á markað, og ríkið seldi 35 pró­sent hlut í honum, sum­arið 2021. Hlut­höfum í bank­anum hefur því fækkað um helm­ing á rúmum tveimur árum. 

Gildi líf­eyr­is­sjóður er stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Arion banka með 9,85 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 9,63 pró­sent hlut og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á 9,35 pró­sent. Stoðir er stærsti einka­fjár­festir­inn með 5,38 pró­sent hlut en allt í allt eru hlut­hafar Arion banka 11.180 tals­ins.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár