Heimilin borguðu 22,5 milljörðum krónum meira í vexti á fyrstu sex mánuðum ársins

Miklar vaxta­hækk­anir á síð­ast­liðnu ári hafa gert það að verkum að vaxta­greiðslur íslenskra heim­ila hafa auk­ist um 62 pró­sent. Þau borg­uðu sam­tals 59 millj­arða króna í vexti á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hefur nú dreg­ist saman fjóra árs­fjórð­unga í röð. Við fáum ein­fald­lega mun minna fyrir pen­ing­anna okkar.

Heimilin borguðu 22,5 milljörðum krónum meira í vexti á fyrstu sex mánuðum ársins

Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs hafa heim­ili lands­ins greitt um 58,8 millj­arða króna í vaxta­gjöld. Á sama tíma­bili í fyrra greiddu þau 36,3 millj­arða króna. Þar skeikar 22,5 millj­örðum króna sem heim­ili lands­ins hafa þurft að reiða fram í vexti af lánum sem þau hafa tekið sem þau þurftu ekki að greiða á fyrri hluta árs í fyrra. 

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands um tekju­skipt­inga­upp­gjör heim­il­is­geirans sem birtar voru í dag. 

Þar kemur líka fram að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna heim­ila á mann hafi dreg­ist saman um 5,2 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2023, þrátt fyrir að tekjur þeirra hafi hækkað umtals­vert. Það þýðir að hann hefur lækkað fjóra árs­fjórð­unga í röð sam­kvæmt end­ur­skoðum tölum Hag­stof­unnar. Kaup­mátt­ur­inn hefur ekki lækkað svona mikið innan árs­fjórð­ungs síðan undir lok árs 2010, þegar hann lækk­aði um sjö pró­sent.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur í krónum talið juk­ust um 3,8 pró­sent frá lokum júní í fyrra og fram á mitt ár 2023. Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði hins vegar um 9,4 pró­sent á sama tíma­bili. 

Vaxtagjöld upp um 61 prósent á einu ári

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekj­ur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uð­i. 

Ástæða þess að íslensk heim­ili fá minna fyrir krón­urnar sínar er sú að útgjöld þeirra hækka mun hraðar en tekj­urnar um þessar mundir, enda verð­bólga búin að vera mjög há og þrá­lát frá því snemma á síð­asta ári. Það hefur leitt til þess að heild­ar­út­gjöld juk­ust um 17,2 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi 2023 sé miðað við sama fjórð­ungi á meðan að heild­ar­tekjur heim­ila juk­ust um tæp­lega 11,6 pró­sent.

Langstærsti hluti útg­alda­aukn­ing­ar­innar er vegna þess að heim­ilin eru að greiða miklu meira í vexti en áður. Um mitt ár í fyrra voru vegnir óverð­tryggðir með­al­vextir á íbúða­lánum um 5,8 pró­sent. Í dag eru þeir um ell­efu pró­sent, enda stýri­vextir búnir að fara úr því að vera 4,75 í 9,25 pró­sent. 

Hlut­falls­lega aukn­ingin sem varð á vaxta­gjöldum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra er sú mesta á árs­grund­velli að minnsta kosti frá byrjun árs 2003, en tölur Hag­stof­unnar ná ekki lengra aftur en það.

Fyrra metið var sett í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá varð mesta hækkun vaxta­gjalda á árs­grund­velli milli þriðja árs­fjórð­ungs 2008 og sama tíma­bils ári síðar þegar vaxta­gjöld heim­il­anna juk­ust um tæp 56 pró­sent á einu ári. Hækkunin sem varð á vaxta­gjöldum heim­ila milli ann­ars árs­fjórð­ungs í fyrra og sama tíma­bils í ár var 61,3 pró­sent, en þau fóru úr 18,8 í 30,3 millj­arða króna á tíma­bil­inu. 

Bankarnir græða

Þessi þróun hefur haft veru­lega jákvæð áhrif á upp­gjör stóru við­skipta­bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka. Rekstr­ar­af­koma þeirra hefur verið góð þrátt fyrir erfitt árferði. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 40,3 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum yfir­stand­andi árs. 

Á fyrri hluta árs­ins námu hreinar vaxta­tekjur stóru bank­anna þriggja sam­tals 74,9 millj­örðum króna. Það tæp­lega 15 millj­örðum krónum meira en þeir þén­uðu vegna slíkra á fyrri hluta árs­ins 2022. Um er að ræða næstum 25 pró­sent sam­eig­in­legan vöxt. 

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,7 til 3,1 pró­sent á árinu 2022, sem er meiri munur en var árið áður, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent. 

Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs hélt hann áfram að aukast. Hann var kom­inn upp í 3,2 pró­sent hjá bæði Íslands­banka og Arion banka en var 2,9 pró­sent hjá Lands­bank­anum. 

Vaxta­munur íslensku bank­anna er miklu hærri en hjá bönkum af sam­bæri­legri stærð á hinum Norð­ur­lönd­unum þar sem hann er um 1,6 pró­sent. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann enn minni, eða um 0,9 pró­sent. 

Fleiri að lenda í vanda

Það má gera ráð fyrir því að vaxta­kostn­aður heim­ila muni halda áfram að aukast. Verð­bólga hefur reynst þrá­lát, stendur nú í átta pró­sentum og fer hækk­andi. Frá miðju ári hafa stýri­vextir hækkað um 0,5 pró­sentu­stig og flestir grein­ing­ar­að­ilar búast við því að þeir muni halda áfram að hækka, að minnsta kosti út þetta ár. 

Í nýju fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands kom auk þess fram að fjöl­mörg heim­ili sjá fram á stór­aukin kostnað vegna vaxta eða verð­bóta. Alls munu óverð­tryggð íbúða­lán upp á 53 millj­arða króna ljúka fast­vaxta­tíma­bili sínu á síð­ustu fimm mán­uðum árs­ins 2023, lán upp á 128 millj­arða króna bæt­ast við á næsta ári og upp á 281 millj­arð króna á árinu 2025. Við það munu vextir margra fara úr því að vera undir fimm pró­sent í að vera um ell­efu pró­sent, og greiðslu­byrði þeirra tvö­fald­ast. Ráði fólk ekki við þá auknu greiðslu­byrði getur það fært sig yfir í verð­tryggð lán og tekið aðlög­un­ina út í gegnum verð­bætur sem leggj­ast á höf­uð­stól lána á sama tíma og raun­verð hús­næðis hefur lækkað um 5,3 pró­sent á einu ári. 

Þeir sem eiga sparifé hagnast

Þeir sem eiga inn­stæður græða líka á ástandi sem þessu. Vaxta­tekjur hafa auk­ist gríð­ar­lega. Þær voru 32,5 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins 2022 en 52,1 millj­arður króna á sama tíma­bili í ár. Það er aukn­ing upp á 60,3 pró­sent. Það þarf að leita aftur til tím­ans fyrir banka­hrun til að finna álíka hækkun á vaxta­tekjum á einu ári. 

Í lok árs í fyrra voru inn­lán heim­ila lands­ins alls 1.101 millj­arður króna. Þar af áttu tekju­hæstu tíu pró­sent lands­manna 507,5 millj­arða króna á bók, eða 46 pró­sent allra inn­lána í eigu ein­stak­linga. Þau 30 pró­sent lands­manna sem þén­uðu mest áttu alls inn­lán upp á 816,1 millj­arð króna um síð­ustu ára­mót, eða 74 pró­sent allra inn­lána. Því má ljóst vera að þorri vaxta­tekna heim­ila lendir hjá tekju­hæstu hópum sam­fé­lags­ins sem geta lagt mest fyrir.


Grein­ingin var upp­færð 3. októ­ber eftir að Hagstofa Íslands leið­rétti áður birtar tölur sínar. Upp­haf­lega kom fram að sam­dráttur í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna hefði verið 6,1 pró­sent en hann reynd­ist 5,2 pró­sent. Hægt er að lesa upp­færða til­kynn­ingu Hag­stof­unnar og ástæðu þess að hún birti rangar tölur hér. 
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er makalaust hvað áróðursmaskínan getur alið endalaust á hræðslu og tortryggni, við erum látin trúa því að Ísland sé efnahagslega sjálfstætt svo lengi sem krónunni er haldið gangandi þó svo að þau okkar sem geta lagt saman 2 & 2 viti að það hafi ekkert með sjálfstæði að gera, hómó sapíens kom sér nefnilega upp kerfi sem heitir peningur og í því eru engin landamæri nema ef vera skildi íslenska krónan.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár