Ráðherra Ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar birtir árlega tölur um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga. Slíkar tölur voru birtar í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjármagnstekjur jukust milli ára og voru 227 milljarðar króna í fyrra

Þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur í fyrra greiddu alls 83 pró­sent þess fjár­magnstekju­skatts sem inntur var af hendi vegna síð­asta árs. Það þýðir að sá hópur þén­aði þorra slíkra tekna á árinu 2022. Barna- og vaxta­bætur fóru á sama tíma lækk­andi.

Ein­stak­lingar greiddu alls 42,8 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt í fyrra af alls 227 millj­arða króna fjár­magnstekj­um. Það er 4,2 millj­örðum krónum meira en þeir greiddu í slíkan skatt á árinu 2021 og 20,3 millj­örðum krónum meira en þeir greiddu í hann árið 2020. 

Fjár­magnstekjur hækk­uðu um 32,5 millj­arða króna milli ára og hafa auk­ist um 97,5 millj­arða króna á tveimur árum. 

Þeim sem fengu fjár­magnstekjur fjölg­aði umtals­vert milli ára. Sá hópur taldi alls 41.507 manns á síð­asta ári, sem er 45 pró­sent aukn­ing frá árinu áður. Alls voru 12,4 pró­sent allra fram­telj­enda með slíkar tekjur á árinu 2022. Það hlut­fall var níu pró­sent á árinu 2021. Þau tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur greiddu þó 83 pró­sent af öllum fjár­magnstekju­skatti. Það hlut­fall hækk­aði um tvö pró­sentu­stig milli ára sem bendir til þess að hlut­deild hóps­ins í öllum fjár­magnstekjum fari hækk­andi, og að flestir þeirra sem bæst hafa við sem greið­endur séu með lágar fjár­magnstekjur. Ef hlut­fall tekju­hæstu tíund­ar­innar í þeim fjár­magnstekjum sem var aflað er sama hlut­fall og hún greiðir af fjár­magnstekju­skatti má ætla að hún hafi haft 188,4 millj­arða króna í slíkar tekjur. 

Þetta kemur fram í tölum um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem Bjarni Bene­dikts­son stýrir, birti í gær. 

Fjár­­­­­­­­­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­­­eign­­­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­­­­­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­­­eign­­­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­­­um. Stærsti ein­staki liður fjár­magnstekna árið 2022 var arður hluta­bréfa, sem skil­aði 93,1 millj­arði króna, eða 38 pró­sent allra fjár­magnstekna. Sá liður hækk­aði um 23,6 millj­arða króna milli ára. 

Mikil aukning á síðustu árum

Síðustu ár hafa verið blóm­leg fyrir þá sem hagn­ast á því að nota pen­ing­ana sína í fjár­­­fest­ingar, og greiða af því fjár­magnstekju­skatt. Stjórn­völd gripu til marg­hátt­aðra efna­hags­að­gerða á árunum 2020 og 2021 sem leiddu til þess að hluta­bréfa- og fast­eigna­mark­aðir hækk­uðu mik­ið. Aðgerð­irnar fólu meðal ann­ars í sér marg­hátt­aðar styrkt­­ar­greiðslur til fyr­ir­tækja og veit­ingu á vaxta­­lausum lánum í formi frestaðra skatt­greiðslna. Þá afnam Seðla­­banki Íslands hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka sem jók útlána­­getu banka lands­ins um mörg hund­ruð millj­­arða króna og stýri­vextir voru lækk­­aðir niður í 0,75 pró­­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri. Áhrif af þessum aðgerðum teygðu sig inn á síð­asta ár.

Þeir sem hafa slíkar tekjur  borga fjár­­­magnstekju­skatt. Sá skattur er 22 pró­­sent, sem er mun lægra hlut­­fall en greitt er af t.d. launa­­tekj­um, þar sem skatt­hlut­­fallið er frá 31,45 til 46,25 pró­­sent eftir því hversu háar tekj­­urnar eru. 

Nokkrar breyt­ingar voru gerðar í álagn­ingu fjár­­­magnstekju­skatts í upp­hafi árs 2021. Eftir þær þarf til að mynda ekki að greiða skatt af vöxt­um, arði og sölu­hagn­aði hluta­bréfa á skipu­­legum verð­bréfa­­mark­aði sem var undir 300 þús­und krónum og frí­­tekju­­mark hjóna var hækkað upp í 600 þús­und krón­­ur. Auk þess er ein­ungis helm­ingur af útleigu íbúð­­ar­hús­næðis til búsetu leigj­anda og sem fellur undir húsa­­leig­u­lög skatt­­skyldur ef ein íbúð er leigð út. 

Áratugum saman hefur það fyr­ir­komu­lag verið við lýði á Íslandi að tekju­háir ein­stak­lingar geti talið launa­tekjur fram sem fjár­magnstekjur í gegnum einka­hluta­fé­lög og þannig komið sér undan því að greiða sömu skatta og annað launa­fólk. Alþýðu­sam­band Íslands hefur áætlað að hið opin­bera verði af um átta millj­örðum króna vegna þessa. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur voru úrbætur á þessu boð­aðar og frum­varp þess efnis var bætt á þing­mála­skrá í des­em­ber í fyrra. Það var hins vegar fellt út af henni skömmu síðar. 

Íslendingar eiga næstum ellefu þúsund milljarða

Í töl­unum sem voru birtar í morgun er líka gerð grein fyrir eigna­stöðu lands­manna, en þeir áttu alls eignir upp á 10.880 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Verðmæti eigna jókst um 1.900 millj­arða króna á árinu 2022, eða um 21 pró­sent, sem er miklu meiri aukn­ing en varð á árinu 2021. Þá juk­ust eignir lands­manna um 813 millj­arða króna á milli ára, eða 10,6 pró­sent.

Mestu munar um hækkun á mats­verði fast­eigna, sem hækk­aði um 26 pró­sent milli ára og fast­eignir voru rúm­lega 76 pró­sent allra eigna lands­manna um síð­ustu ára­mót. Það hlut­fall hækk­aði milli ára, en fast­eignir voru tæp­lega 74 pró­sent heild­ar­eigna í lok árs 2021. 

Barna- og vaxtabætur hafa farið lækkandi

Útgreiddar barna­bætur hafa farið lækk­andi á síð­ustu árum. Árið 2021 voru greiddar sam­tals 15,5 millj­arðar króna í barna­bætur og sér­stakar barna­bætur, ári síðar var sú upp­hæð 14,8 millj­arðar króna og þær barna­bætur sem greiddar verða út í ár, og ákvarð­ast af tekjum sem fólk hafði á síð­asta ári, nema um 14,3 millj­örðum króna. 

Sömu sögu er að segja um vaxta­bætur, en þeim sem fá slíkar fækkar um 340 milli ára. Árið 2019 voru greiddar út rúm­lega 2,7 millj­arðar króna í vaxta­bætur en sú upp­hæð sam­kvæmt álagn­ingu 2023 verður um tveir millj­arðar króna. Í til­kynn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem birt var í gær segir að mark­mið stjórn­valda síð­ustu ár hafi verið að „beina hús­næð­is­stuðn­ingi í annan far­veg en í gegnum vaxta­bóta­kerfið t.d. með skatt­frjálsri úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar þar sem gert er ráð fyrir 3,5 ma.kr. eft­ir­gjöf rík­is­ins af tekju­skatti á árinu 2023.“ Alls hefur úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar kostað rík­is­sjóð 16 millj­arða króna frá árinu 2018.

Húsnæðisstuðningur við tekjuhæstu hópana

Heim­ildin greindi frá því í byrjun maí að þorri þess hús­næð­is­stuðn­ings sem miðlað er í gegnum skatt­frjálsa úttekt sér­eign­ar­sparn­aðar hefur lent hjá tekju­hærri hópum lands­ins. Alls fór um 77 pró­sent hans til efstu þriggja tekju­tí­unda en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur reiknað sig niður á að umfang þess skatta­af­sláttar sem veittur hefur verið sé um 50 millj­arðar króna, miðað við þann skatt sem ann­ars hefði verið greiddur af útgreiðsl­unum við úttekt. 

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem fer með hús­næð­is­mál í rík­is­stjórn­inni, gekkst við því í við­tali við Heim­ild­ina að þeir hópar sem væru að njóta þessa hús­næð­is­stuðn­ings sem ríkið er að uppi­stöðu að veita, væru ekki þeir sem þyrftu helst á honum að halda. Upp­haf­lega stóð til að úrræðið stæði til boða milli 2014 og 2017 en það hefur síðan verið fram­lengt fjórum sinnum, nú síð­ast með frum­varpi sem var sam­þykkt í síð­ustu viku. Úrræðið gildir nú út árið 2024.

Í við­tal­inu við Heim­ild­ina sagði Sigurður Ingi að það væri erfitt að hætta með skatt­frjálsu sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina, en að þetta yrði þó í síð­asta sinn sem úrræðið yrði fram­lengt. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár