Áhrif alþjóðavæðingar á hönnun – Hönnunarverðlaun Íslands 2023

Fram­úr­skar­andi hönnun á Íslandi var fagnað í Grósku þann 9. nóv­em­ber með afhend­ingu Hönn­un­ar­verð­launa Íslands 2023 á vegum Mið­stöðvar hönn­unar og arki­tekt­úrs.

Áhrif alþjóðavæðingar á hönnun – Hönnunarverðlaun Íslands 2023
Sigrún Guð­jóns­dóttir Rúna er heið­ursverð­launa­hafi Hönn­un­ar­verð­launa Íslands 2023. Mynd: Hönnunarmiðstöðin

Atburð­ur­inn var meira en verð­launa­af­hend­ing því sjónum var beint að öllum þeim fjöl­breyttu verkum sem til­nefnd voru með fyr­ir­lestrum hvers hönn­uðar – auk sam­tals um hönn­un­ina. Þetta er í tíunda sinn sem verð­launin eru veitt og í ár var verð­launa­flokkum fjölgað í þrjá, fyrir vöru, stað og verk. Einnig voru veitt verð­laun fyrir fjár­fest­ingu í hönnun og heið­ursverð­laun.

Heiðursverðlaun

Sigrún Guð­jóns­dóttir – Rúna – er heið­ursverð­launa­hafi Hönn­un­ar­verð­launa Íslands 2023 fyrir fram­lag sitt til leir­listar og braut­ryðj­enda­starf á því sviði hér­lendis, bæði er varðar hönnun, mynd­list, hand­verk og kennslu. Starf hennar var einnig frum­kvöðla­starf varð­andi blöndur úr íslenskum leir. Rúna er fædd 1926 í Hafn­ar­firði og fór árið 1946 til Kaup­manna­hafnar til náms við Lista­aka­dem­í­una. Eftir heim­komu stofn­uðu hún og eign­maður hennar, Gestur Þor­gríms­son, Laug­ar­nesleir þar sem hann mót­aði og hún mál­aði leir­inn. Þekkt­ustu verkin eru vegg­diskar í til­efni þjóð­há­tíðar á Þing­völlum árið 1974 með prófílum and­lita, fiska og …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár