Má ekki vera auðveldara að komast upp með þennan glæp en aðra

Þjóð­leik­húsið er nú að hefja sýn­ingar á verk­inu Orð gegn orði. Í því er tek­ist á við spurn­ingar um feðra­veldið, rétt­ar­kerfið, kyn­ferð­is­brota­mál, sið­gæði, sekt og sönn­un­ar­byrði. Blaða­maður fékk nokkra reynda lög­menn til að horfa á verkið með sér og ræða um sýn sína á það – og hvernig staðið er að kyn­ferð­is­brota­málum hér á landi.

Má ekki vera auðveldara að komast upp með þennan glæp en aðra
Lög & regla Ragnar, Sigurður Örn, Sigrún Ingi­björg og Védís Eva ræða um Orð gegn orði, bæði á leik­sviði og í veru­leik­anum. Mynd: Anton Brink

Leik­verkið Orð gegn orði eftir Suzie Miller fjallar um verj­and­ann Tessu, ungan og metn­að­ar­fullan lög­mann sem vinnur flest mál og ver skjól­stæð­inga sína fim­lega í kyn­ferð­is­brota­málum. En þegar Tessa upp­lifir sjálf hrika­legan atburð byrjar hún að sjá hlut­ina öðrum augum og þarf að end­ur­skoða bæði hug­myndir sínar og við­horf.

Í kynn­ing­ar­texta Þjóð­leik­húss­ins fyrir verkið er spurt: Hvaða vægi hafa til­finn­ingar og rétt­læt­is­kennd í flóknum málum, og hvenær er sekt nægi­lega sönnuð? Þar segir einnig að í Orði gegn orði sé tek­ist á við ágengar spurn­ingar um feðra­veldið, rétt­ar­kerfið, kyn­ferð­is­brota­mál, sið­gæði, sekt og sönn­un­ar­byrði.

Þess má geta að leik­skáldið er fyrr­ver­andi lög­fræð­ingur og hún nýtti sér eigin reynslu til að skrifa verkið. Eða, eins og segir jafn­framt í kynn­ing­ar­text­anum: ... rann­saka veik­leika rétt­ar­kerf­is­ins í kyn­ferð­is­brota­málum. Verkið hefur hlotið fjölda verð­launa og haft mikil áhrif. Meðal ann­ars er farið fram á að hæsta­rétt­ar­dóm­arar á Norður-Írlandi sjái upp­töku af sýn­ing­unni áður …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár