„Líkur á eldgosi eru því enn miklar“

Frá mið­nætti hafa mælst 700 skjálftar yfir kviku­gang­inum við Grinda­vík. Vöktun hefur verið aukin.

„Líkur á eldgosi eru því enn miklar“
Bærinn Skemmdir hafa orðið á vegum og mann­virkjum í Grinda­vík vegna jarð­hrær­inga. Mynd: Golli

Vöktun hefur verið aukin í nágrenni Grinda­víkur og eru lík­urnar á eld­gosi óbreyttar. 700 skjálftar hafa mælst við kviku­gang­inn, sá stærsti var um 3 að stærð og varð við Hagafell. Flestir skjálft­anna hafa verið litlir og á þriggja til fimm kíló­metra dýpi. 

Þetta kemur fram í upp­færðum upp­lýs­ingum á vef Veð­ur­stofu Íslands.

Gikk­skjálftar mæld­ust við Kleif­ar­vatn í gær­kvöldi, sá stærsti 3,8 að stærð. 

„Aflög­un­ar­mæl­ingar sýna áfram­hald­andi aflögun á svæð­inu,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar. „Þær eru í sam­ræmi við að kvika flæði enn inn í gang­inn.“

Kvikuflæði frá 12. til 13. nóv­em­ber var metið 75 rúmmetrar á sek­úndu en dýpið niður á kviku­gang­inn er í kringum 800 metra, miðað við tölur út frá lík­an­reikn­ingum sem eru háðar óvissu.

„Megin áhersla á vöktun skjálfta­virkni og aflög­unar er á svæði gangs­ins og Grinda­víkur. Nýjar GPS stöðvar hafa verið settar upp í Grinda­vík og nágrenni. Þær sýna að sigdal­ur­inn sem mynd­ast hefur er ennþá virkur,“ segir á vef Veð­ur­stof­unnar.

„Líkur á eld­gosi eru því enn miklar. Komi til goss er lík­leg­ust stað­setn­ing við kviku­gang­inn. Ekki er að sjá vís­bend­ingar í gögnum um annað.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár