Voru komin til Tenerife þegar bærinn var rýmdur

Fimm manna fjöl­skylda frá Grinda­vík flaug til Tenerife dag­inn áður en bær­inn var rýmdur. Þegar þau koma heim úr sól­inni verður allt breytt. „Við vorum bara búin að pakka sum­ar­fötum í tvær ferða­töskur. Hitt varð eftir.“

Voru komin til Tenerife þegar bærinn var rýmdur
Fjöl­skyldan Katla, Matthías Már eig­in­maður hennar og drengirnir þeirra þrír leita sér nú að sama­stað á Íslandi. Þau koma heim í næstu viku.

Aðfara­nótt fimmtu­dags, nótt­ina áður en Katla Stein­þórs­dóttir og fjöl­skylda flugu til Tenerife, lágu þau and­vaka á heim­ili sínu í Grinda­vík vegna jarð­hrær­inga. Þau áttu bók­aða ferð í sól­ina vegna brúð­kaups sem þeim var boðið í og fer fram um helg­ina. Til­viljun réði því sem sagt að þau voru ekki á heim­ili sínu þegar Grinda­vík var rýmd vegna jarð­hrær­inga á föstu­dag.

„Við vorum bara búin að pakka sum­ar­fötum í tvær ferða­töskur. Hitt varð eftir,“ segir Katla Stein­þórs­dóttir sem hefur búið ásamt eig­in­manni sínum Matth­í­asi Má og þremur sonum – fjög­urra, sjö og tólf ára – í Grinda­vík í sjö ár. 

„Okkur var strax tekið opnum örmum. Strák­arnir okkar eru Grind­vík­ingar. Þeir þekkja ekk­ert annað,“ segir Katla. 

„Maður syrgir meira sam­fé­lagið en steypuna“

Það er hjón­unum erfitt að vera fjarri Grind­vík­ingum þegar svo illa stendur á, svo ekki sé minnst á hugs­an­irnar um eig­urnar sem enn eru á heim­ili fjöl­skyld­unnar og eng­inn hefur enn kom­ist í að sækja.

„Okkur full­orðna fólk­inu hefur langað til þess að panta okkur flug heim til þess að geta bjargað dót­inu okkar og heim­il­inu okkar,“ segir Katla. Móðir hennar ætlar að reyna að ná í helstu verð­mæti þangað í dag.

„Við erum með ein­hver úti­föt í bílnum sem er í Keflavík. Annars erum við bara með sund­föt, sum­ar­kjóla og stutt­buxur.“ 

BærinnSkemmdir hafa orðið á vegum og mann­virkjum í Grinda­vík vegna jarð­hrær­inga.

„Hérna höfum við allavega samastað“

Katla starfar sem deild­ar­stjóri á leik­skól­anum Laut í Grinda­vík og sér því fram á að þegar fjöl­skyldan komi heim vanti þau ekki ein­ungis heim­ili heldur þurfi Katla einnig að leita sér að nýrri vinnu. Nú leitar fjöl­skyldan að sama­stað í þétt­býli, helst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

„Við vorum aðal­lega að hugsa um að vera í ein­hverju þétt­býli svo strák­arnir geti stundað íþróttir og svona. Reyna að hafa þetta sem eðli­leg­ast,“ segir Katla. 

Þó að sólin á Tenerife sé hlý og yngstu strák­arnir hafi skemmt sér vel í útland­inu þá er það erfitt fyrir for­eld­rana að njóta ferð­ar­innar.

„En við ætlum að klára þessa ferð og ætlum að leyfa börn­unum okkar að upp­lifa skemmti­lega utan­lands­ferð og gera okkar besta í þessum aðstæðum því það er engin hjálp í okkur heima hvort eð er. Þetta er það besta í stöð­unni. Hérna höfum við alla­vega sama­stað,“ segir Katla. 

Fjöl­skyldan snýr aftur heim í næstu viku en Katla óskar þess að allt fari á besta veg og Grind­vík­ingar geti sam­ein­ast að nýju. 

„Þetta er bara heim­ilið okkar,“ segir Katla. „Maður syrgir meira sam­fé­lagið en steypuna.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár