Skilaboð frá forsetanum: „Grindavík verður áfram sælureitur“

„Mér þótti vænt um að við hjónin gátum sótt sam­veru­stund með Grind­vík­ingum í Hall­gríms­kirkju í gær,“ skrifar for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Hann ávarp­aði Grind­vík­inga í Hall­gríms­kirkju í gær.

Skilaboð frá forsetanum: „Grindavík verður áfram sælureitur“

„Mér þótti vænt um að við hjónin gátum sótt sam­veru­stund með Grind­vík­ingum í Hall­gríms­kirkju í gær,“ segir for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Í færslu sem hann birti á Facebook rétt í þessu segir hann að Grind­vík­ingar láti engan bil­bug á sér finna, með öfl­ugt fólk í fram­varð­ar­sveit. 

Guðni og Eliza Reid, eig­in­kona hann, litu einnig við í fjölda­hjálp­ar­stöð­inni í Kópavogi á laug­ar­dag­inn, þar sem þau ræddu við fólk sem hefur þurft að yfir­gefa heim­ili sín. „Mikið er á Grind­vík­inga lagt en finna má styrk í sam­ver­unni og þeirri miklu sam­kennd sem íslenska þjóðin sýnir þegar á reynir. Við skulum áfram vona það besta en búa okkur undir allan þann miska sem hin römmu nátt­úru­öfl geta gert okkur.“

Þá seg­ist hann hafa þakkað þeim fjöl­mörgu sem hafa boðið húsa­skjól eða aðra aðstoð, í ávarpi sínu í Hall­gríms­kirkju í gær. Um leið þakk­aði hann öllum sem sinna hjálp í við­lögum, starfs­liði almanna­varna og á öðrum vett­vangi þess­ara vályndu við­burða. „Ég er stoltur og þakk­látur yfir því að búa í sam­fé­lagi sem bregst svo vel við óvæntri ógn.“

Úr ávarpi forseta Íslands

Í ávarpi Guðna í Hall­gríms­kirkju sagði meðal ann­ars: „Mér þykir vænt um að eiga þessa stund með ykkur – þessa sam­veru­stund þegar við leitum styrks hvert hjá öðru, þegar við bíðum þess sem verða vill, vonum það besta en búum okkur undir allan þann miska sem hin römmu nátt­úru­öfl geta gert okkur. Þetta segi ég fyrir mína hönd og konu minnar og ég veit að ég mæli fyrir munn allrar þjóð­ar­innar þegar ég segi að við hugsum hlýtt til allra þeirra sem þurftu að flýja heim­ili sín og vinnu­staði í skyndi.“ 

„Í Grinda­vík verður áfram blóm­leg byggð“

Sagði hann margt hægt að gera, þrátt fyrir allt. „Við getum vonað og trúað og við getum gert það sem í okkar valdi stendur – við getum brugð­ist við, nýtt okkur þekk­ingu og reynslu, vits­muni og útbúnað.“

Ekki væri enn vitað hvort gjósa muni í eða við Grinda­vík. „Ef það ger­ist þá tök­umst við á við þann mikla vanda og lífið mun svo halda áfram. Í Grinda­vík munu börn ganga í leik­skóla og skóla, við munum sinna þeim eldri og þeim sjúku. Heima­fólk mun áfram skora og skora á vett­vangi íþrótta. Við munum mæta á tón­leika í Grinda­vík og aðrar skemmt­anir, á sjó­manna­dags­messu og Sjóarann síkáta, þá góðu hátíð. Það verður áfram róið frá Grinda­vík. Íbúar þar munu áfram afla þjóð­ar­bú­inu drjúgra tekna. Já, Grinda­vík verður áfram sælu­reitur ykkar íbú­anna og við hin munum áfram njóta gest­risni ykkar og góð­vildar. Í Grinda­vík verður áfram blóm­leg byggð.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár