Sundurskornir vegir í Grindavík

Eins og sjá má á mynd­skeiði frá ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar liggur sprunga yfir veg­inn til móts við lög­reglu­stöð­ina í Grinda­vík. Fyrr í dag barst til­kynn­ing frá Vega­gerð­inni um að björg­un­ar­sveitir og aðrir við­brags­að­ilar munu ekki geta notað Nesveg fyrr en gert verður við veg­inn. Miklar skemmdir eru á veg­inum til móts við golf­völl­inn í Grinda­vík.

Nesvegur

Ástand vega í Grinda­vík er víða ansi slæmt eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd­skeiði frá ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar, sem tekið var í vett­vangs­ferð þar í bæ rétt í þessu, beint á móti lög­reglu­stöð­inni í Grinda­vík. Sprungan liggur undir nýja íþrótta­húsið. 

Fyrr í dag birti Vega­gerðin myndir og mynd­skeið af gríð­ar­legum skemmdum sem hafa orðið á Nesvegi, til móts við golf­völl­inn í Grinda­vík.

Nes­veg­ur­inn, sem liggur út á tá Reykja­ness­ins frá Grinda­vík og tengir bæinn við Reykja­nesbæ, hefur verið not­aður af við­bragðs­að­ilum síð­ustu daga þrátt fyrir skemmdir.

Nú segir Vega­gerðin að skemmd­irnar á veg­inum séu svo miklar að ekki gangi lengur að veita björg­un­ar­sveitum og við­bragðs­að­ilum und­an­þágu til þess að nota veg­inn. 

„Hann er mjög illa far­inn og ljóst að við­gerð yrði nokkuð umfangs­mikil. Farið verður í hana ef heim­ild fæst frá almanna­vörnum. Ástand veg­ar­ins hefur farið síversn­andi dag frá degi,“ segir Vega­gerðin í færslu á Facebook.

Miklar skemmdirMiklar skemmdir eru á og við Nesveg. Jörðin hefur hrein­lega rifnað í sundur.
NesvegurVegurinn er afar illa far­inn til móts við golf­völl­inn í Grinda­vík.
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár