900 jarðskjálftar mælst frá miðnætti

Um 900 skjálftar hafa mælst á umbrota­svæð­inu á Reykja­nesskaga frá mið­nætti í dag en skjálfta­virknin er að mati Veð­ur­stofu Íslands nán­ast óbreytt frá því í gær. Hún hefur verið stöðug síðan á föstu­dag.

Kvika
Kvika Kort frá Veð­ur­stofu Íslands af áætl­aðri legu kviku­gangs. Mynd: Veðurstofa Íslands

Skjálfta­virknin á Reykja­nesskag­anum er að mati Veð­ur­stofu Íslands nán­ast óbreytt frá því í gær. Hún hefur verið stöðug síðan á föstu­dag. 900 skjálftar hafa mælst frá mið­nætti í dag.

Skjálfta­virknin á Reykja­nesskag­anum er dreifð um suð­ur­hluta gangs­ins á milli Sund­hnúks og Grinda­víkur á um tveggja til fimm kíló­metra dýpi.

„Enn mælist hæg minnk­andi aflögun við Grinda­vík. ​Gliðnun er mest við miðju gangs­ins við Sundhnúk þar sem megin upp­streym­is­svæði kviku er talið vera,“ segir í upp­færðu mati á vef Veð­ur­stofu Íslands.

Þar kemur fram að starfs­fólk hennar muni áfram fylgj­ast gaum­gæfi­lega með mæla­kerf­inum í raun­tíma, sér í lagi við Grinda­vík. 

„Vakt Veð­ur­stof­unnar ein­beitir sér sér­stak­lega að svæð­inu í og við Grinda­vík og sinnir sér­stakri vöktun við­bragðs­að­ila á staðnum sem sinna aðgerðum á staðnum.“ 

 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár