Löng röð við Grindavík

Bílaröð liggur frá söfn­un­ar­stað á bíla­stæði við Fagra­dals­fjall og út fyrir Grinda­vík. Almanna­varnir boð­uðu í morgun að íbúum yrði hleypt inn á skil­greind svæði til að sækja gælu­dýr og nauð­synjar.

Löng röð við Grindavík

Fjöldi fólk freistar þess nú að fá að fara inn á lokað svæði í Grinda­vík. Upp úr klukkan tíu í morgun var til­kynnt um að íbúar á skil­greindum svæðum fengi að fara inn til að sækja brýn­ustu verð­mæti. 

Íbúar og fyr­ir­tæki austan megin við Vík­ur­braut og norðan við Aust­ur­veg eru í fyrsta hópi. Þegar ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar bar að garði biðu um 50 bílar eftir því að kom­ast inn fyrir lok­un­ar­póst­inn. Þegar komið er inn fyrir fyrsta póst og að Ísólfs­skála­af­leggjar­anum hreyf­ist ekki bíla­röðin að bíla­stæð­inu við Fagra­dals­fjall, þar sem söfn­un­ar­stað­ur­inn er. 

Tveimur frá hverju heim­ili er leyft að fara inn á svæðið og almanna­varnir ítreka að fólk eigi ekki að fara inn ef það er ekki nauð­syn­legt. „Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgð­ar­hluti og ekki létt­væg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð.“ Það fylgi því áhætta að fara inn í bæinn. 

Samkvæmt síð­ustu mæl­ingum lá kvika um 800 metra undir yfir­borð­inu þar sem grynnst var. Í hópnum eld­fjalla- og nátt­úru­vá­r­hópur Suð­ur­lands var einnig greint frá því að mæl­ingar jarð­vís­inda­manna hefðu stað­fest að sigdalur mynd­að­ist þvert í gegnum bæinn, við gliðnun sem kvikuinn­skot olli um helg­ina. Innan sigdals­ins hefur land sigið um meter. Ný gögn munu liggja fyrir síðar í dag. 

Ljóst er að íbúar vilja kom­ast heim til sín, ýmist til að verða sér úti um nauð­synjar, bjarga gælu­dýrum eða verð­mætum. Margir voru farnir áður en rým­ingin átti sér stað og voru því alls­lausir. Aðrir yfir­gáfu heim­ili sín í miklu flýti seint á föstu­dags­kvöldi. 

Frá aðgerðum í gærHér má sjá mynd­skeið af því þegar verið var að sækja verð­mæti í Þór­kötlu­staða­hverfi í gær. Golli

Með­fylgj­andi eru leið­bein­ingar frá Almanna­vörnum: 

Til athug­unar fyrir íbú­ana

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauð­syn­lega að fara
  • Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heim­ili
  • Skráið niður lista yfir það sem þið hygg­ist sækja áður en lagt er af stað
  • Munið eftir hús­lykli
  • Búr fyrir gælu­dýr ef þörf er á
  • Poka eða annað undir muni
  • Íbúar hafa stuttan tíma inni á heim­il­inu.
  • Þau sem fara mega ekki vera með bráða­of­næmi fyrir dýrum því það verða gælu­dýr með í för í baka­leið­inni.
  • Þetta er ein­göngu til þess sækja mjög mik­il­væga hluti s.s. gælu­dýr, lífs­nauð­syn­leg lyf, hugs­an­lega vega­bréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heim­il­is­fólk
  • Heimilt verður að keyra öku­tæki sem skilin voru eftir við rým­ingu, út af svæð­inu frá Grinda­vík, en ein­göngu í fylgd við­bragðs­að­ila



Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár