Aðgerðir til að sækja nauðsynjar til Grindavíkur þurfi að hefjast strax

Mat vís­inda­manna er að svig­rúm sé nú til að sækja nauð­synjar fyrir íbúa og sinna brýnum erindum í Grinda­vík og nágrenni. Aðgerðir þurfi að hefj­ast strax þar sem óvissa er um fram­vindu jarð­hrær­ing­anna. Hvort varið verður að þessu mati og aðgerðin hafin er í höndum lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum.

Aðgerðir til að sækja nauðsynjar til Grindavíkur þurfi að hefjast strax
Gluggi Bil hefur mynd­ast, að mati vís­inda­manna, til að hefja aðgerð sem felst í því að sækja nauð­synjar og sinna brýnum erindum í Grinda­vík. Mynd: Golli

Það er sam­eig­in­legt mat vís­inda­manna sem sóttu stöðu­fund Veð­ur­stof­unnar, almanna­varna og sér­fræð­inga Háskóla Íslands í morgun að út frá nýj­ustu gögnum sé svig­rúm til tíma­bund­inna aðgerða á vegum almanna­varna til að sækja nauð­synjar fyrir íbúa og sinna brýnum erindum í Grinda­vík og nágrenni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni. Enn er ekki búið að taka ákvörðun um hvort farið verði í aðgerð­irnar en það vald liggur hjá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum. 

Á meðan aðgerðum almanna­varna stæði í Grinda­vík yrði vakt svæð­is­ins aukin og fylgst náið með merkjum um hvort að kvika komi upp. „Það var mat vís­inda­manna eða ráð­legt væri að hefja þessar aðgerðir strax þar sem óvissa um fram­vindu atburð­ar­ins vex eftir því sem líður á dag­inn.“

Frá því í gær­morgun hefur skjálfta­virknin við kviku­gang­inn hald­ist nokkuð stöðug. Frá mið­nætti hafa um 1000 skjálftar mælst og hafa þeir allir verið undir 3,0 að stærð. Mesta skjálfta­virknin hefur verið frá miðju gangs­ins norðan við og suður undir Grinda­vík. Flestir skjálft­anna eru á 3-5 kíló­metra dýpi við neðri hluta kviku­gangs­ins. Gang­ur­inn er tal­inn vera um 15 kíló­metra langur.

GPS mæl­ingar sem ná yfir síð­asta sól­ar­hring sýna að hægt hefur á aflögun tengt kviku­gang­inum sem mynd­að­ist á föstu­dag. „Það bendir til þess að kvika sé að færa sig nær yfir­borði,“ segir í til­kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar. Engin líkön hafa þó verið keyrð til að ákvarða dýpi hennar að svo stöddu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár