Lögreglustjórinn sér „ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þarna inn“

Þrátt fyrir að rólegt hafi að mestu verið yfir jarð­skjálfta­svæð­inu á Reykja­nesi frá því í gær er enn ekki víst að Grind­vík­ingar fái að fara örstutt heim til sín að sækja nauð­synjar og vitja um gælu­dýr sín.

Lögreglustjórinn sér „ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þarna inn“
Skemmdir Mikið hefur gengið á í Grinda­vík eftir að bær­inn var rýmdur. Miklar skemmdir hafa orðið á götum líkt og sér­fræð­ingar Vega­gerð­ar­innar komust að í leið­angri þar í gær. Mynd: Vegagerðin

Vonir standa til hægt verði að hleypa Grind­vík­ingum stutta stund heim til sín til að sækja nauð­synjar og huga að dýrum sínum, sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn í morgun. Slíkt yrði gert sam­kvæmt nákvæmu skipu­lagi sem verður kynnt betur þegar nýtt hættu­mat á svæð­inu liggur fyrir. Úlfar Lúð­víks­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, sagði hins vegar að ekk­ert hefði verið ákveðið í þessum efnum og að „það ágæta fólk sem býr í Grinda­vík“ þurfi að sýna þol­in­mæði. „Ef það er yfir­vof­andi hætta í Grinda­vík þá sé ég ekki alveg fyrir að við hleypum fólki þar inn,“ sagði hann við RÚV.

Rólegt hefur að mestu verið yfir skjálfta­svæð­inu síð­ustu klukku­stundir, það er að segja, fáir skjálftar yfir 3 að stærð. Rétt eftir klukkan 8 í morgun varð þó 3,7 stiga skjálfti um sex kíló­metrum suður af Reykja­nestá. Sá er tal­inn hafa verið svo­kall­aður gikk­skjálfti.

Sigríður Krist­jáns­dóttir, nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands, segir að enn sé þó stöðug skjálfta­virkni, lang­mest við kviku­gang­inn. „Við höfum séð það í fyrri gosum að skjálfta­virknin hefur minnkað jafn­vel tals­vert áður en kvikan kemur upp á yfir­borðið.“

Stjörnu­kortGrænu stjörn­u­rnar eru skjálftar sem eru 3 stig og yfir. Svona leit skjálfta­kort Veð­ur­stof­unnar út kl. 10.30 að morgni sunnu­dags­ins 12. nóv­em­ber. Kortið sýnir skjálfta síð­ustu 2 sól­ar­hring­ana.

Veð­ur­stofan hefur varað við því að vegna mik­illar spennu­los­unar á svæð­inu sé ekki hægt að gera ráð fyrir að gos­órói mælist áður en eld­gos hefst. Líkön sýna 15 kíló­metra kviku­gang sem liggur rétt norð­vestan Grinda­víkur. Hann liggur allt frá Kálf­fells­heiði í norðri og út í sjó suður af Grinda­vík.

Stöðu­fundur sér­fræð­inga fór fram í morgun og í kjöl­far hans stóð til að funda með með helstu við­bragðs­að­ilum. Í kjöl­far hans munu mál von­andi skýr­ast, hvort og hvenær íbúum verður leyft að fara örstutt heim til sín.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár