„Engum verður hleypt inn á svæðið fyrr en það hefur verið metið öruggt“

Út frá mæl­ingum og gervi­tungla­myndum virð­ist stærð kviku­gangs­ins og kvikuflæðið við Grinda­vík vera marg­falt á við það sem áður hefur mælst á svæð­inu. „Búið ykkur undir að þetta muni standa yfir í tals­verðan tíma, en við erum að horfa til nokk­urra daga í einu,“ segir Víðir Reyn­is­son.

„Engum verður hleypt inn á svæðið fyrr en það hefur verið metið öruggt“
Almanna­varnir Farið var yfir stöðu mála við Grinda­vík á upp­lýs­inga­fundi í hádeg­inu í dag. Mynd: Golli

„Staðan er sú að svæðið er enn lokað öllum og ekki heim­ilt að fara til að bjarga verð­mætum eða huga að húsum. Við vitum ekki hversu lengi þetta ástand um standa yfir en munum láta vita um leið og það breyt­ist. Búið ykkur undir að þetta muni standa yfir í tals­verðan tíma, en við erum að horfa til nokk­urra daga í einu. Engum verður hleypt inn á svæðið fyrr en það hefur verið metið öruggt. Bæði er um að ræða hættu vegna jarð­hrær­inga, en einnig vegna skemmda á götum og öðrum mann­virkjum.“ 

Þetta sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, á upp­lýs­inga­fundi sem fram fór í hádeg­inu í dag. 

Búið er að opna fjölda­hjálpa­stöðvar í Reykja­nesbæ, Árborg og í Kópavogi sem eru opnar öllum Grind­vík­ingum. 

Fjölda­hjálp­ar­stöðÚr fjölda­hjálp­ar­stöð Rauða kross­ins í Kórnum í Kópavogi.

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri Grinda­víkur, sagði að íbúar í Grinda­víkur hafi sýnt mikið æðru­leysi og fum­leysi við rým­ingu á bænum í gær. Það hafi hjálpað til að það hafi gerst á föstu­degi þannig að margir hafi verið þegar lagðir af stað út úr bænum þegar ákveðið var að rýma. „Þegar kom að því að ákveðið var að allir íbúar skyldu yfir­gefa svæðið þá gekk það líka mjög vel.“

Þakka skuli fyrir að eng­inn skuli hafa meiðst í þessum miklu atburðum en atvinnu­lífið í Grinda­vík sé mjög laskað, og liggur í raun niðri. Fannar sagði að borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík, Dagur B. Egg­erts­son, hafi sett sig í sam­band og að höf­uð­borgin sé að und­ir­búa hvernig hægt verði að koma börnum úr Grinda­vík í skóla. Það hafi gengið ótrú­lega vel að koma íbúum í skjól hjá vinum og ætt­ingjum. Fáir hafi þurft að gista í fjölda­hjálpa­stöðvum. 

Silja Bára Ómars­dóttir frá Rauða kross­inum sagði að ein­ungis 160 manns af rúm­lega þrjú þús­und íbúum Grinda­vikur hafi þurft að leita í fjölda­hjálpa­stöðv­arnar. Fólk sem vill bjóða fram hús­næði fyrir íbúa Grinda­víkur án end­ur­gjalds getur skráð það á Facebook-síðu Rauða kross­ins.

Mjög alvarlegir atburðir

Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­fræð­ingur sagði á fund­inum að þetta væru mjög alvar­legir atburðir og mjög stórir á þeim skala sem Íslend­ingar eru vanir. „Þá er spurn­ingin við hverju má búast, hvernig atburðir geta orðið? Það er erfitt um að segja. Þetta var mjög hröð kviku­söfnun inn í gang­inn og opnun sem varð þarna í gær hægði mjög á því. Ný gögn sem munu koma núna seinni­part­inn munu varpa ljósi á hraða atburða­rás­ar­innar núna.“

Hann sagði einn mögu­leik­ann vera þann að það gæti verið að virknin deyi út. „Það er bara ein sviðs­myndin. Það er stundum með svona atburði. Það geta verið stór og mikil inn­skot neð­an­jarðar en lítið kemur upp eða nokkuð kemur upp á yfir­borðið.“

RýmtBjörg­un­ar­sveit­ar­fólk hjálpar íbúum í Víðihlíð í Grinda­vík að kom­ast burt í gær­kvöldi.

Hin sviðs­myndin sé hins vegar að það verði gos. „Og það verður að telj­ast lík­legt. Hversu stórt yrði það gos. Það er erfitt að um segja en það eru líkur á að það gæti orðið veru­lega stærra heldur en þau sem við höfum séð á Reykja­nesskag­anum síð­ustu árin. Það yrði að öllum lík­indum, ef það kemur inni á landi í stíl við þau sem verið hafa, en mögu­leiki að það verði tölu­vert stærra en alls ekki víst.“

Magnús Tumi segir að mestar líkur séu á því að gos komi upp þar sem opn­unin er mest sem er um mið­bik kviku­gangs­ins, svo­lítið norðan við Grinda­vík. Ef það yrði raunin myndi hraun ekki fara beint í þá átt­ina. „Ekkert af þessu er víst. Þess eru bara sviðs­myndir. Það er nátt­úr­lega þess vegna sem það er ekki öruggt að fólk sé í Grinda­vík vegna þess að við getum ekki úti­lokað neitt.“

Þriðji mögu­leik­inn sé að gos komi upp í sjó við Grinda­vík. „Við viljum ekki úti­loka þann mögu­leika en teljum hann ekki lík­legan. Það er vegna þess að gossagan að það hafa engin slík gos orðið á þessu svæði. Það voru mjög mörg gos þarna síð­ustu tíu til fimmtán þús­und árin en ekk­ert þeirra á þessu svæði hefur náð út í sjó. Það er skýr­ing á því, að þegar kvikan kemur á norð­austri þá er hún komin inn í Evrópu-flek­ann, Evrasíu-flek­ann, og þar verður lítil gliðnun. En við getum ekki úti­lokað það. Þá fengum við sprengigos, í stíl við Surtsey eða slíkt, sem gerð­ist út á Reykja­nestá á þrett­ándu öld. Allt eru þetta mögu­leikar sem við getum ekki úti­lokað. Ef það kemur mikið kvikuflæði til yfir­borðs. Þá getum við helst horft til sög­unnar, þá eigum við nokkur dæmi af skag­anum, til dæmis Ögmund­ar­hraun sem rennur um 1150, 1180 þá fer það, virð­ist það renna, það myndar apal­hraun sem hefur senni­lega runnið með tölu­verðum krafti, en í heild­ina er það ekki mjög stórt. Það er kannski einn fjórði af Holu­hrauni. Það er einn mögu­leiki sem ekki er hægt að úti­loka.“

Nú sé lítið annað að gera en að bíða og sjá. „Það er búið að rýma. Það er búið að koma fólki undan.“

Benedikt Hall­dórs­son, vís­inda­maður hjá Veð­ur­stof­unni, sagði á fund­inum að gögnin sem verið er að skoða núna bendi til þess að kviku­gang­ur­inn nái frá stóra Skóg­felli í norður og suður fyrir Grinda­vík­urbæ og út í sjó. Samkvæmt allra fyrstu lík­an­reikn­ingum, byggt á gervi­tungl­gögnum sem bár­ust í gær­kvöldi, var dýpi niður á topp kviku­gangs­ins norður af Grinda­vík áætl­aður einn og hálfur kíló­metri. Út frá nýj­ustu aflög­un­ar­gögnum eða gps-gögnum er hraði aflög­un­ar­innar sem mæld­ist marg­faldur á við það sem mælst hefur í umbrot­unum á Reykja­nesskaga á síð­ustu árum. „Út frá þeim mæl­ingum og gervi­tungla­myndum virð­ist stærð kviku­gangs­ins og kvikuflæðið í honum vera marg­falt á við það sem áður hefur mælst. Búist er við nýjum aflög­un­ar­gögnum eftir hádegi í dag og mun það gefa skýr­ari mynd á þróun atburða­rás­ar­innar. Áfram verður fylgst grannt með þróun skjálfta­virkn­innar. Líkur á eld­gosi á næst­unni verða að telj­ast veru­legar.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár