Mættu með blóðrauða lófa: „Gangi ykkur vel með mannréttindin“

„Þú berð ábyrgð á því að ata hendur okkar blóði,“ kall­aði mót­mæl­andi á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra þegar hún steig úr pontu eftir opn­un­ar­ræðu á mál­þingi um mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar í gær. Á meðan hún tal­aði héldu þrír almennir borg­arar uppi rauðum lófum.

Mættu með blóðrauða lófa: „Gangi ykkur vel með mannréttindin“
Mótmæli Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, heldur uppi rauðum lófa, sem er þó ekki úta­t­aður blóði heldur máln­ingu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafði nýlokið opn­un­ar­ræðu sinni fyrir mál­þing um mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar í Háskól­anum í Reykja­vík í gær þegar mót­mæl­endur með rauð­mál­aða lófa á lofti ávörp­uðu hana. 

„Katrín Jak­obs­dóttir,“ byrj­aði einn mót­mæl­enda – Salka Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir. „Ef þú lætur þér annt um mann­rétt­indi þá skaltu tala fyrir hönd palest­ínsku þjóð­ar­innar fyrir friði.“

Með Sölku voru Margrét Kristín Blöndal og Ólafur Ólafsson en þau voru mætt til þess að láta í sér heyra vegna við­bragða íslenskra stjórn­valda við árásum Ísra­els­hers á Gasa­svæðið. 10.000 manns hafa látið lífið í árás­unum sem skollið hafa á Gasa­svæð­inu und­an­far­inn mánuð, þar af 4.000 börn. 

Fund­ar­stjóri greip inn í ávarp mót­mæl­end­anna: „Mig langar til að biðja alla gesti um að setj­ast niður og hafa ró. Umræður er hægt að taka síðar.“ 

„Hvenær er hægt að taka þær umræður?“ spurði Margrét þá. 

„Þessi fundur er um annað. Hann heldur áfram núna,“ svarði fund­ar­stjór­inn. 

„Við erum að fara að ræða um mann­rétt­indi,“ sagði maður í salnum.

„Þið eruð að fara að ræða um mann­rétt­indi? Þannig að við þurfum að fara,“ sagði Margrét. 

„Gangi ykkur vel með mann­rétt­indin,“ skaut Salka inn í.

Rauðir lófarHér sést Katrín Jak­obs­dóttir flytja sitt ávarp og Magga Stína og Ólafur með rauða lófa á lofti.

Dómarinn og lög­fræð­ing­ur­inn Róbert R. Spanó, einn af frum­mæl­endum á mál­þing­inu, þakk­aði mót­mæl­end­unum fyrir: „Takk fyrir kær­lega að iðka tján­ing­ar­frelsi ykkar. Það er mjög mik­il­vægt.“

Mótmæla vikulega og leyfa ekki vinnufrið

Mótmæli þre­menn­ing­anna eru ekki þau einu sem sprottið hafa upp að und­an­förnu vegna átak­anna á Gasa­svæð­inu og þess sem mót­mæl­endur telja skort á ákalli íslenskra stjórn­valda eftir vopna­hléi. Hópur mót­mæl­enda hefur mót­mælt viku­lega fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn á meðan rík­is­stjórnin fundar þar og gerði hóp­ur­inn það síð­ast í morgun. Þá mættu mót­mæl­endur á mál­stofu í Háskóla Íslands um gervi­greind og mann­rétt­indi í hádeg­inu í dag og hróp­uðu aftur og aftur: „Vopnahlé strax,“ á meðan for­sæt­is­ráð­herra tal­aði. Mót­mæl­end­unum var vísað út að því loknu.

„Þau fá ekki vinnu­frið á meðan þau taka ekki skýra afstöðu í þessu máli,“ segir Salka í sam­tali við Heim­ild­ina. Mótmælin í gær voru, að hennar sögn, örþrifa­ráð vegna „þjóð­ar­morðs í beinni“ sem íslensk stjórn­völd hafa ekki for­dæmt. 

Lætur í sér heyra„Mér finnst ekki rétt að rík­is­stjórn Íslands fái að taka svona á máli eins og hún hefur gert án þess að almenn­ingur hafi eitt­hvað um það að segja,“ segir Salka sem hefur lengi látið mál­efni Palest­ínu sig varða.

„Við erum bara almennir borg­arar sem geta eig­in­lega ekki setið auðum höndum í þessum hörm­ungum og finnst rík­is­stjórnin verða að for­dæma þessar við­bjóðs­legu hörm­ungar,“ segir Salka. „Þetta er örþrifa­ráð almenn­ings – þegar það er ekki nóg að skrifa undir und­ir­skrifta­lista eða mæta á boðuð mót­mæli.“ 

Ís­land sat hjá þeg­ar álykt­un um taf­ar­laust vopna­hlé fyr­ir botni Mið­jarð­ar­hafs var sam­þykkt á neyð­ar­fundi alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna í lok októ­ber. Sú ákvörðun, sem Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og núver­andi utan­rík­is­ráð­herra tók, hefur verið gagn­rýnd harð­lega. Katrín hefur gefið það út að hún og hennar þing­flokkur – Vinstri Græn – hefðu talið rétt að styðja til­lög­una. 

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    íslenska valdstjórnin styður þjóðarmorð/stræipsglæpi á gaza og ætti því að segja af sér strax . . . ísland þarf að segja upp öllu stórnmálasambandi við zæónistan strax . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár