Bjarni: Miður að ekki náðist samstaða um að fordæma Hamas

Ísland sat hjá þegar ályktun um taf­ar­laust vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs var sam­þykkt á neyð­ar­fundi alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu þjóð­anna í gær. Utan­rík­is­ráð­herra segir það ekki breyta skýrri afstöðu Íslands um taf­ar­laust mann­úð­ar­hlé, að komið verði á friði og að byggt verði á tveggja ríkja lausn­inni. „Ísland gerir skýra kröfu til Ísraels um að farið sé að mann­úð­ar­lögum.“

Bjarni: Miður að ekki náðist samstaða um að fordæma Hamas
Utan­rík­is­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son tók við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra fyrr í þessum mán­uði. Mynd: Golli

Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­þykkti í gær­kvöldi á neyð­ar­fundi ályktun um taf­ar­laust vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Álykt­unin fól einnig í sér að hjálp­ar­gögn kom­ist til þeirra sem eru í neyð og að almennum ísra­elskum borg­urum sem Hamas hafi tekið í gísl­ingu verði sleppt, en her­mála­yf­ir­völd í Ísrael segja að Hamas hafi nú að minnsta kosti 224 Ísraela í haldi. Þeirra á meðal séu 20 börn. 

120 lönd sam­þykktu álykt­un­ina, sem er ekki bind­andi, á alls­herj­ar­þing­inu, og 14 greiddu atkvæði gegn henni. 45 sátu hjá. Þeirra á meðal Ísland og öll hin Norð­ur­löndin nema Noregur sem sam­þykkti álykt­un­ina. 

Sú ákvörðun Íslands að sitja hjá hefur verið harð­lega gagn­rýnd víða á sam­fé­lags­miðlum. Á meðal þeirra sem það gerðu er fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, sem gegndi því emb­ætti á árunum 2007 til 2009. Í færslu á Facebook sagði hún: „Ísland greiddi því miður ekki atkvæði í dag með til­lögu um taf­ar­laust vopna­hlé í Gaza af mann­úð­ar­á­stæðum. Það gerðu heldur ekki hin Norð­ur­löndin - nema Noregur. Hvernig geta frið­elsk­andi lýð­ræð­is­þjóðir fylgst álengdar og hlut­lausar með þessum hræði­lega Hild­ar­leik?“

Sátu hjá vegna þess að ályktunin fordæmdi ekki Hamas

Utan­rík­is­ráðu­neytið brást við í gær­kvöldið með því að birta til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins þar sem því var haldið fram að ómögu­legt hefði verið „að ná sam­stöðu um texta álykt­un­ar­innar sem tók ekki til grimmd­ar­verka Hamas og tók ekki með beinum hætti á gísla­töku Hamas, en yfir 200 manns eru enn í haldi, þar af 30 börn.“  Ísland hefði lagt áherslu á mann­úð­ar­hlé „til að tryggja taf­ar­lausa mann­úð­ar­að­stoð, harm­aði gríð­ar­legt mann­fall óbreyttra borg­ara og ítrek­aði að þá yrði að vernda.“ 

Bjarni Bene­dikts­son, sem tók við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra fyrr í þessum mán­uði, tjáði sig svo um málið í færslu á Facebook í morgun. Þar ítrekar hann að sendi­nefnd Íslands á alls­herj­ar­þing­inu hafi kallað skýrt eftir mann­úð­ar­hléi til að tryggja taf­ar­lausa mann­úð­ar­að­stoð til óbreyttra borg­ara á Gaza. Á fund­inum hafi Jórdanía lagt fram ályktun um ástandið á svæð­inu fyrir hönd ríkja Araba­hóps­ins, en álykt­unin hafi ekki verið bind­andi. „Ísland studdi álykt­un­ina að því gefnu að breyt­ing­ar­til­laga Kanada yrði sam­þykkt, þar sem hryðju­verk Hamas yrðu jafn­framt for­dæmd. Samstaða náð­ist ekki um það á þing­inu og sat Ísland því hjá ásamt á fimmta tug ríkja, þar á meðal Bret­landi, Þýska­landi, Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Finn­landi og Eystra­salts­ríkj­unum. Það er miður að ekki hafi náðst sam­staða á þing­inu um að for­dæma hryðju­verk.“

Bjarni segir það þó ekki breyta „skýrri afstöðu Íslands um taf­ar­laust mann­úð­ar­hlé, að komið verði á friði og byggt á tveggja ríkja lausn­inni. Ísland gerir skýra kröfu til Ísraels um að farið sé að mann­úð­ar­lögum.“

Fyrir þessu verður áfram talað af fullum þunga. Hvert dauðs­fall meðal almennra borg­ara er einu dauðs­falli of mikið.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Samkvæmt þessu þá þarf ekki að fordæma ÍSRAEL fyrir þeirra glæpi!
    Þvílík hræsni!
    0
  • Mummi Týr skrifaði
    Sorgleg þessi handónýta ríkisstjórn sem jú rúmlega helmingur þjóðarinnar kaus... þá!
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Eru engin takmörk fyrir því hvað Bjarnabandið fær að gera?
    Fyrst rústa efnahag samfélagsins í skjóli pabba svo,
    rústa áliti heimsbyggðarinnar á Íslandi með einu pennastriki.
    Talar einhver um að kjósa Sjálfgræðisflokkinn?
    Hverjir???
    1
  • Björn Ólafsson skrifaði
    Ömurleg niðurstaða hjá B Ben. Washington stjórnar utanríkismálum okkar þegar stríðsbrölt er annarsvegar. Ömurlegt.
    -1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    „Ísland studdi ályktunina að því gefnu að breytingartillaga Kanada yrði samþykkt, þar sem hryðjuverk Hamas yrðu jafnframt fordæmd."
    - Það var hægt að fordæma hryðjuverkin með annari sjálfstæðri tillögu. En ályktarnir SÞ hafa aldrei haft neitt gildi svo það hefði ekki breytt neinu.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Skömm ! Noregur á heiður skilinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár