Hefur „gríðarlegar áhyggjur“ af 300 þúsund íbúum Gazaborgar

Ísra­els­her hefur í kvöld ráð­ist af miklu afli inn í Gaza með loft­árásum og land­hern­aði. Síma- og net­sam­band á svæð­inu hefur legið niðri í nokkrar klukku­stundir. Fram­kvæmda­stjóri palest­ínska Rauða hálf­mán­ans seg­ist hafa gríð­ar­legar áhyggjur af þeim 300 þús­und íbúum Gazaborgar sem séu fastir í borg­inni. Sam­ein­uðu þjóð­irnar sam­þykktu ályktun um vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs í kvöld. Ísland og öll hin Norð­ur­löndin, utan Noreg sátu hjá í atkvæða­greiðsl­unni.

Hefur „gríðarlegar áhyggjur“ af 300 þúsund íbúum Gazaborgar

Loft­árásir Ísra­els­hers á Gaza hófust eftir að myrkur skall á í kvöld. Ekkert hefur heyrst frá íbúum Gaza frá því að árás­irnar hófust því að síma- og net­sam­band liggur niðri. Fram­kvæmda­stjóri palest­ínska Rauða hálf­mán­ans segir að ástæða sé til að hafa gríð­ar­legar áhyggjur af íbúum Gazaborgar í kvöld. Þar séu nú um 300 þús­und manns enn inn­lyksa og kom­ist hvergi í skjól. Um 2,3 millj­ónir búa á Gazaströndinni.   

„Síma- og net­sam­band liggur niðri. Fólkið á Gaza er algjör­lega ein­angrað frá heim­inum,“ sagði frétta­maður Al Jazeera í kvöld og bætti við að íbú­arnir væru „skelf­ingu lostnir.“

Ekkert skjól á Gaza

Tals­maður ísra­elska hers­ins hafði sagt að loft­árásir á Gazaborg í kvöld yrðu efldar veru­lega frá því sem verið hefur síð­ustu daga, sömu sögu væri að segja um land­hernað. Hann sagði að íbúar Gazaborgar ættu að koma sér til suð­ur­hluta Gaza áður en árás­irnar hæfust.

…
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Ekki beint skynsamlegasta leiðin til að taka á hryðjuverkamönnum með hryðjuverkum á almennum borgurum og fá alla heimsbyggðina upp á móti sér
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár