Meiri þörf en nokkru sinni að tala um frið

Ástandið í heims­málum kallar á umfangs­meiri umræðu um frið, að mati Piu Hansson, for­stöðu­manns Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands. „Það er meiri þörf á því en nokkru sinni.“

Meiri þörf en nokkru sinni að tala um frið
Friður Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að það hafi verið svo­lítið erfitt að hefja ráð­stefnu um frið á sama tíma og hræði­legar fréttir um átök dynja á heims­byggð­inni. Mynd: Róbert Reynisson

„Það er svo­lítið skrýtið að standa fyrir frið­ar­ráð­stefnu þessa dag­ana þegar það er svona ófrið­sam­legt í heim­inum,“ segir Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands. Alþjóð­leg frið­ar­ráð­stefna Höfða frið­ar­set­urs fór fram í síð­ustu viku og er þetta í sjö­unda sinn sem ráð­stefnan er haldin. Þörfin hefur lík­lega aldrei verið meiri en nú að sögn Piu. „Eins og ein­hver sagði á ráð­stefn­unni, þá er þetta nátt­úr­lega tím­inn sem við eigum að vera að tala um frið.“

Pia við­ur­kennir að það hafi óneit­an­lega verið þungt yfir þegar ráð­stefnan hófst á þriðju­dag. „Það var svo­lítið erfitt að byrja ráð­stefn­una, ef ég á að segja alveg eins og er, með svona hræði­legar fréttir dynj­andi á okkur af ástand­inu úti um allan heim og síður en svo minnk­andi átök.“  

„Það er skrýtið að standa fyrir frið­ar­ráð­stefnu þegar það er svona ófrið­sam­legt í heim­inum“

Átök milli Ísraels og Palest­ínu stig­mögn­uð­ust 7. októ­ber þegar Hamas-sam­tökin í Palest­ínu gerðu eld­flauga­árás á Ísrael sem er sú mann­skæð­asta í ára­tugi. „Maður fann fyrir alvar­leik­anum og hvað við þurfum að reyna að standa saman. Ekki bara fólk sem er í póli­tík og ákvarð­ana­töku, heldur þurfum við sem sinnum rann­sókn­ar­vinnu og fræði­mennsku að hjálpa til við að finna lausnir og greina ástandið og hversu mik­il­vægt það er,“ segir Pia. 

Átökin bæt­ast í hóp ann­arra yfir­stand­andi stríða og átaka, svo sem stríðs­ins í Úkraínu, átaka í Súdan, bar­átt­unni um sjálf­stætt Nagorno-Karabakh hérað, mót­mæli í Íran og stríðið í Jemen. Og svo mætti lengi telja. Pia segir aukna skautun koma til með að hafa áhrif á umræð­una um ástandið í heim­inum. „Sá grunn­tónn og rauði þráð­ur­inn í þess­ari umræðu er að fólk geri sér grein fyrir því að við erum á þeim tímum núna og stefnum inn í, ábyggi­lega til nán­ustu fram­tíðar, mjög erf­iða tíma með auk­inni skautun og kannski mun minna umburð­ar­lyndi fyrir mis­mun­andi afstöðu fólks. Þetta allt saman hefur svo mikil áhrif.“  

Aðal­ræðu­mað­ur­inn á frið­ar­ráð­stefn­unni í ár var Amina J. Mohammed, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna. Meðal þess sem fram kom í hennar máli er að van­trú á stofn­anir og lítil þátt­taka í kosn­ingum muni ýta undir óstöð­ug­leika í heim­inum. 

Vantrú á stofn­anir líkt og Sam­ein­uðu þjóð­irnar mun ýta undir óstöð­ug­leika í heim­inum að mati Aminu J. Mohammed, vara­fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem var aðal­ræðu­maður á frið­ar­ráð­stefn­unni í ár.

„Hún er að benda á að við verðum að kom­ast til baka í þau gildi sem við vildum standa vörð um með því að stofna Sam­ein­uðu þjóð­irnar til að byrja með, sem eru auð­vitað stofn­aðar í kjöl­far stríðs til að reyna að hindra að það komi til stríða aftur. Það hefur, eins og við vitum, ekki tek­ist þó að það hafi ekki orðið stríð á sama skala og heims­styrj­öldin. En það verður samt ein­hvern veg­inn að hugsa þetta upp á nýtt,“ segir Pia. 

Frið­ar­ráð­stefnan í ár var haldin í sam­starfi við for­mennsku Íslands í Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Markmið ráð­stefn­unnar er að leiða saman öfl­ugan hóp skap­andi hug­suða til að taka þátt í sam­tali milli kyn­slóða um hvernig efla megi nor­rænt sam­starf í þágu friðar.

 „Við erum að stofna til frekara sam­starfs við nor­rænar frið­ar­rann­sókna­stofn­anir og erum að vona að í fram­hald­inu verði til góður sam­starfs­hópur. Mér finnst við hafa full­orðn­ast svo­lítið með þess­ari ráð­stefnu, við erum komin með sterkara bak­land og þetta sam­starf er eitt­hvað sem við teljum að muni vaxa og dafna. Það er þörf á þessu,“ segir Pia.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár