Steypurisinn fær nýja lóð undir verksmiðjuna og íbúar Ölfuss kjósa um hana

Bæj­ar­stjórn Ölfuss lætur þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg fá nýja lóð undir möl­un­ar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn. Íbúa­kosn­ing verður haldin meðal íbúa Ölfuss um nýtt deiliskipu­lag með verk­smiðj­unni. Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri sér um að und­ir­rita sam­komu­lagið við Heidel­berg fyrir sveit­ar­fé­lagið.

Steypurisinn fær nýja lóð undir verksmiðjuna og íbúar Ölfuss kjósa um hana

Bæj­ar­stjórnin í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi lætur þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg fá aðra lóð í Þor­láks­höfn fyrir fyr­ir­hug­aða sem­ents­verk­smiðju sína. Íbúar í Ölfusi munu fá að kjósa um hvort verk­smiðjan verður á end­anum byggð eða ekki. Þetta var ákveðið á fundi bæj­ar­stjórnar Ölfuss á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku. 

Verk­smiðjan hefur verið umdeild í sveit­ar­fé­lag­inu, meðal ann­ars vegna fyrri fyr­ir­hug­aðrar stað­setn­ingar hennar inni í miðjum bænum auk hæðar verk­smiðj­unnar. Búið er að taka til­lit til þessa í nýjum áætl­unum og verk­smiðjan hefur verið færð að jaðri byggð­ar­innar auk þess sem mann­virkin hafa verið lækkuð.

Um þetta segir meðal ann­ars í funda­gerð bæj­ar­stjórn­ar­innar: „Bæj­ar­stjórn hefur fjallað um áform félags­ins og á fundi hennar 24. nóv­em­ber 2022 var fjallað um nauð­syn­legar breyt­ingar á áformum og skil­yrði fyrir því að þau gætu gengið eftir. Þá hefur verið hald­inn fundur með íbúum og áformin rædd, en í fram­hald­inu hefur verk­efnið þró­ast og áformin breyst á þann veg að …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Elliði, sem er ráðinn bæjarstjóri og þar með ekki pólitískt kjörinn fulltrúi, aðstoðað félag í eigu Heidelberg við að finna verðug málefni sem þýska stórfyrirtækið hefur stutt fjárhagslega í sveitarfélaginu. "

    ,,Bæjarstjórinn hefur ekki viljað sýna Heimildinni gögn um viðskiptin með fasteignirnar og ber fyrir sig að hann sé ekki kjörinn fultrúi og þurfi þar af leiðandi ekki að gera það. Hann hefur þvertekið fyrir að einhverjir hagsmunaárrekstrar felist í aðkomu hans að jarðefnaiðnaði í Ölfusi þrátt fyrir þessi tengsl. "

    Allir vita að Elliði er pólitíkus , og er í sjálfstæðisflokknum , sama hvað ?
    Að vera í sjálfstæðisflokknum er ekki að vera í pólitík ?
    Að vera í sjálfstæðisflokknum er hvað ?

    Spllingin er á svo háu stigi í Þorlákshöfn , og þokan mikil að ekkert sést út ?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár